Saturday, 19 March 2011 15:31

Travis Pastrana og hans 24 klukkustunda martröð sem akstursíþróttamaður

Written by 

Þessi gaur er ekkert venjulegur og flokkast sjálfsagt sem einn af þeim ofvirkari í bransanum.  En góðir ökumenn gera líka mistök og hér má sjá það sem Travis Pastrana kallaði sjálfur, verstu 24 tímar á sínum ferli.  Allavega hvað skemmdir varðar, en honum tókst að eyðileggja eitt stykki NASCAR bíl + einn rallýbíl með öllu.  Áhugavert að hann virðist vera komin með nýja sponsor-a og er það Boost Mobil og Samsung sem virðast vera orðnir helstu styrktaraðilar Travis Pastrana.  Fyrir mér vakir sú spurning hvort að samstarf Travis Pastrana og DC sé þar með formlega lokið eða hvort þessir aðilar séu eingöngu tengdir aksturskeppnum hans á bílum.  En Travis Pastrana og DC hafa tengst nánast órjúfanlegum böndum til fjölda ára og væri það saga til næsta bæjar ef þeim kafla hjá báðum aðila væri lokið.  En hér má sjá myndband af "Demolition" Travis Pastrana og 24 tíma martröðinni hans.


More Motocross Videos

Read 1397 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:37