Wednesday, 16 March 2011 15:54

Um fjörtíu keppendur skráðir í íscrossið sem mun fara fram í flóðlýsingu á föstudagskvöldið

Written by 

Um fjörtíu keppendur eru skráðir í síðustu íscrosskeppni ársins sem haldin verður samhliða með stóru Mývatnshátíðinni núna um helgina og er greinlegt að norðanmenn er að bæta í hvað þátttöku varðar.  Þarna má sjá nöfn sem ég hef ekki séð á lista í rúmt ár og má þar nefna Bjarka Sigurðsson #670, Hafþór "Grant" Ágústsson #430, Theodóraf B. Heimisdóttir eða bara Tedda eins og við þekjkjum hana ásamt Sgiþóru B. Kristjánsdóttir sem hefur ekkert keppt í ár það sem af er.  Ánægjulegt að sjá þetta lið vera komið á ísinn aftur en heildarlistann með keppendum má sjá með að smella hér.  Nýjung verður hvað þessa íscrosskeppni varðar, en það á að keyra hana að kveldi til og nýtast við flóðlýsingu og er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert, að ég held.  Nú er bara spurning hvernig það mun takast til í á hvort að veðurspáin verði keppendum hagstæð því snjókoma getur heft skyggni töluvert en fram af var slík spá fyrir norðurlandið en nú lítur út fyrir að það verði léttskýjað á Mývatni á föstudaginn og eigi ekki að fara að snjóa fyrr en aftur á laugardag.  Þannig að þetta lítur ágætlega út hvað kvöldið varðar. 

Þó svo að keppnin sem slík sé merkileg fyrir þær sakir að vera að kveldi til, að þá má ekki gleyma því að Íslandsmeistarar verða krýndir þetta kvöld.  Í kvennaflokknum leiðir Signý Stefánsdóttir með 11 stigum en næst á eftir henni kemur Andrea D. Kjartansdóttir og í þriðja sæti er systir hennar Ásdís E. Kjartansdóttir aðeins stigi á eftir Andreu.  Þannig að ef Signý fatast flugið í einu moto-i að þá eiga báðar systurnar möguleika á Íslandsmeistaratitlinum því 75 stig eru í pottinum.  Í unglingaflokk leiðir Ingvi B. Birgisson með 22 stigum á næsta keppenda, sem er Ásgeir Hall.  Haraldur Ö. Haraldsson er í þriðja sæti í stigakeppninni og er hann 11 stigum á eftir Ásgeiri en Ásdís E. Kjartansdóttir er einungis 1 stigi á eftir Haraldi og því getur staðan breyst hratt í síðustu keppninni.  Í vetrardekkjaflokknum að þá leiðir Kári Jónsson með 24 stigum og miðað við akstur hans upp á síðkastið að þá þarf eitthvað að koma upp á til þess að hann landi ekki titlinum.  En í öðru sæti er Daði Erlingsson en Sigurður Bjarnason er ekki langt undan og munar 10 stigum á Sigurði og Daða og allt opið.  Í opna flokknum leiðir Þorgeir Ólason með 5 stiga forskot á Ragnar I. Stefánsson og því er allt opið upp á gátt í þessum flokki.  Jóna Á. Þorláksson er í þriðja sæti, 16 stigum á eftir Ragnari og á fræðilega möguleika á Íslandsmeistaratitli.  Ekki verður krýndur Íslandsmeistari í 85cc flokki þar sem ekki náðist lágmarks skráning fyrir fyrsta mót ársins, en til þess að svo verði þurfa 5 eða fleiri keppendur að skrá sig í fyrsta mót ársins.  Þannig að því miður, verður ekki formlega krýndur Íslandsmeistari í þessum flokki.

Read 724 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:38