Hér eru mikilvægar upplýsingar fyrir alla þá sem ætla sér að keppa í einhverjum greinum á Mývatnsmótinu 2011, varðandi skráningar og fyrirkomulag. Nú er um að gera að græja tuggurnar, skella sér í sveitina og taka þátt í stærstu og flottustu mótorsportveislu vetrarins !
Samhliðabraut - föstudagur kl. 14:00.
Keppni fer fram við Kröflu. Mæting keppenda kl. 13:00-13:30. Skráning á staðnum eða senda póst á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Keppt er í tveimur flokkum, opnum flokki og +35 ára. Allir keyra tímatökur og 8 bestu tímar í hvorum flokki komast í útsláttarkeppni. Keppnisgjald kr. 3000 (kr. 5000 fyrir bæði Samhliðabraut og Fjallaklifur).
Fjallaklifur (Hillcross) – föstudagur kl. 16:00.
Keppni fer fram við Kröflu. Mæting keppenda kl. 15:00-15:30. Skráning á staðnum eða senda póst á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Keppt er í einum opnum flokki. Útsláttarkeppni þar sem 3-4 keppendur eru ræstir í einu. Keppnisgjald kr. 3000 (kr. 5000 fyrir bæði Samhliðabraut og Fjallaklifur).
Ískross – föstudagur kl. 20:00.
Lokaumferðin í Íslandsmótinu. Keppni fer fram í flóðljósum á Stakhólstjörn við Skútustaði. Mæting keppenda kl. 19:00. Skráning fer fram á vef MSÍ (www.msisport.is).
SnoEnduro – laugardagur kl. 10:00.
Keppni fer fram í Reykjahlíðarheiði. Ekið uppá flugvöll og vestan við flugbrautina að norðurenda flugvallarins (ath. alls ekki inná brautina). Mæting keppenda kl. 09:00. Skráning á staðnum eða senda póst á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Keppt er í tveimur flokkum, 0-600cc og +600cc. Ath. röðun á ráslínu fer eftir skráningu, þannig að þeir sem skrá sig fyrst komast fremst á ráslínu. Hópstart (hlaupandi start) þar sem ekinn er 9,5 km hringur í klukkutíma frá kl. 10:00-11:00 og svo ræst aftur og ekinn öfugur hringur frá kl. 12:00-13:00. Skoðunarhringur ekinn með keppendum sem þess óska kl. 09:30. Keppnisgjald kr. 5000 (kr. 8000 fyrir bæði SnoEnduro og SnoCross).
Snocross – laugardagur kl. 15:00.
Keppni fer fram ofan við Kröfluvirkjun. Mæting keppenda kl. 14:00. Ath. skráning eingöngu með tölvupósti fyrir kl. 22:00 á fimmtudag á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Keppt verður í tveimur flokkum, sportflokki og opnum flokki. Brautin verður öllum fær með vúppsum, litlum stökkpöllum og kröppum beygjum. Keppnisgjald kr. 5000 (kr. 8000 fyrir bæði SnoEnduro og SnoCross).
Ísspyrna – laugardagur kl. 17:00.
Keppni fer fram á Stakhólstjörn við Skútustaði. Mæting keppenda kl. 16.30. Skráning á staðnum eða senda póst á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Keppt er í einum opnum flokki með útsláttarfyrirkomulagi. Keppnisgjald kr. 3000.