Svona gera þeir þetta í Kanada, þ.e. íscrossið og þeir kalla þetta einfaldlega ísakstur en við eru náttúrlega miklu flottari heldur en allir aðrir og köllum þetta íscross..:0) Það sem vekur hvað mestan áhuga hjá mér er varnirnar á brettunum og kannski er þetta ekki óvitlaust til að vernda ökumenn og tæki. Nokkuð ljóst að mun færri hjól hefðu orðið "fokheld" eftir síðustu keppni en urðu ef svona hlífar hefðu verið á fram- og afturdekki þó svo að sumar þeirra sé alveg forljótar. Já, það var ekki bara Daði Skaði sem varð nokkrum plöstum fátækari, heldur líka Halli Jr. o.fl. Hvað um það, en þetta er áhugavert myndband og alltaf gaman að sjá hvernig aðrir gera hlutina og hvort við getum eitthvað lært af því eða öfugt. Takið eftir dekkjunum hjá þeim. Get ekki betur séð an margir sé einfaldlega að keyra á karbítskrúfum sem eru skrúfaðar utan á dekkinn. Fyrir neðan má sjá myndband + mynd og þar á meðal kolldýfur sem keppendur hafa tekið þarna úti.
