Tuesday, 15 February 2011 14:00

Íscross í henni Ameríku Vs. Ísland

Written by 

Hef ekki séð mikið af myndum frá Ameríku um íscross en datt inn á þetta hjá vini mínum Dubach Racing.  En við skoðunina hjá Dr. D. að þá sé ég smá stílbrigðarmun á íslenskum ökumönnum og ökumönnum í Ameríku.  Er hann fyrst og fremst í því að við hér á landi hvílum við undantekningarlaust annan fótinn alltaf á ísnum þegar við tökum beygjur og hef ég helst séð Sigurð "Lopason", og systurnar Andreu og Ásdísi Kjartansdætur sem beita þeirri tækni að setja fótinn út eins og gert er í motocrossbraut en ekki tylla honum á ísinn.  En ökumenn í Ameríku virðast undantekningarlaust keyra eins og þeir séu að keyra í motocrossbraut, sjá mynd fyrir neðan og í haus með fréttinni.  Við það virðast þeir ná að leggja hjólið algjörlega á hliðina og tekið skal fram að þeir eru að keyra á "standard" dekkjum.  Fyrir neðan er mynd af af ökumanni í Ameríku og af núverandi Íslandsmeistara í íscrossi.  Nú er stóra spurninginn, hvort er betra?

Read 769 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:17