Í gær fór fram mjög skemmtileg íscrosskeppni á Leirutjörn á Akureyri og voru aðstæður eins og best verður á kosið. Með tímanum mynduðust smá pollar ofan á ísnum sums staðar en það jók bara sjónrænu áhrifin og hafði einnig áhrif á gripið á sumum stöðum. Þetta var önnur umferðin til Íslandsmeistara í íscrossinu og voru rúmlega þrjátíu keppendur skráðir til leiks og þar af nokkur ný andlit sem ég hef ekki áður séð á keppnum hingað til, sem er mjög gott. Enda þarf sportið á fleiri virkum ökumönnumm að halda í alla flokka. Í öllum flokkum myndaðist hellings barátta og var mjög gaman að sjá t.d. baráttuna í opna flokknum um annað sætið og einnig voru mikil tilþrif í vetrardekkjaflokknum og gengu menn ákveðið til verks í því skyni að sigra andstæðinginn. Svo vasklega var gengið fram að sum hjólin urðu nánast "fokheld" eftir hamaganginn og má þar sérstaklega nefna viðureign Kristófers Finnsonar og Daða Erlingssonar sem endaðu með fyrrgreindum hætti og hallaði á Daða í það skiptið. Allt samt í góðu og allir skildu í sáttir, en hér fyrir neðan má sjá hvernig hjólið hans Daða leit út eftir atganginn. Víkjum að úrslitum dagins.
85cc flokkur:
1. Adam H. Jóhannesson
2. Kristján H. Garðarsson
3. Einar Sigurðsson
Kvennaflokkur:
1. Signý Stefánsdóttir
2. Ásdís E. Kjartansdóttir
3. Andrea D. Kjartansdóttir
Unglingaflokkur:
1. Ingvi B. Birgisson
2. Guðbjartur Magnússon
3. Ásgeir Hall
Vetrardekkjaflokkur:
1. Kári Jónsson
2. Daði Erlingsson
3. Sigurður Bjarnason
Opinn flokkur:
1. Þorgeir Ólason
2. Jón Á. Þorláksson
3. Ragnar I. Stefánsson
Tók helling af myndum og eitthvað af myndböndum. Hægt er að skoða myndir frá keppninni með að smella hér, en ég klúðraði þessu eina ferðina enn þar sem þetta kom í möppuna þar sem allar myndirnar í íscrossi eru en ekki í sérmöppu eins og ég hélt að ég hefði gert þegar ég setti þær inn. Það er búið að ganga allt á afturfótunum hjá mér að setja þetta inn og tekið drjúgan tíma. Fyrsta myndin frá keppninni sjálfri ber heitið "img_0256". Ég á svo eftir að sjá til hvort ég nenni að klippa saman þetta myndband.