Ég var að fá þær fréttir að nóg ís væru á Leirutjörn og voru menn að keyra á honum á F350 bíl ásamt að borað var í hann hér og þar og fór 17cm langur bor hvergi í gegnum hann. Þannig að það lítur bara ágætlega út með keppnina á morgun. Það er smá blástur þarna fyrir norðan núna og um 5°C hiti en það á að fara að kólna og vindurinn á að detta niður. Það er mjög flott spá fyrir morgundaginn og í raun er fín spá fyrir Akureyri alla helgina. Upplýsingar um aðra viðburði á Éljagangi má sjá á heimasíðunni, www.eljagangur.is. Á vef MSÍ er tilkynning varðandi lánsenda og skráning þeirra á "mín síða" á vef MSÍ, en það mun flýta fyrir keppnisstjóra og tímatökumanni að gera allt klárt. Hægt er að sjá tilkynninguna með að smella hér.