Arctic Trucks er komið með í hús 2011 árgerðinar af hinu byltingarkenndu hjóli Yamaha YZ450F ásamt því að þarna er líka Yamaha YZ250F. Arctic Trucks hefur verið að stíga fleiri skref í að þjóna mótorhjólafólki betur eftir að hafa tekið við Yamaha umboðinu frá MotorMax og nú nýlega getur Arctic Trucks boðið upp á alla hluti sem Parts Unlimitied er með á sínum boðstólum, en það er einn allra stærsti dreifingaraðili á mótorhjólabúnaði í heiminum. Ofan á þetta allt saman að þá var Arctic Trucks að landa samningi við UFO og verður söluaðili þess á Íslandi. En UFO er framleiðandi á ýmsum mótohjólabúnaði eins og t.d. göllum, hjálmum, skóm o.fl. sem hægt verður að fá á mjög hagstæðu verði. Einnig framleiðir UFO plast á öll hjól og kostar t.d. allt settið á Yamaha YZ85 ekki nema um 12 þúsund krónur. Þannig að það er eitt og annað að gerast hjá Arctic Trucks þess dagana og gott að það sé smá hugur í mönnum.


