Wednesday, 09 February 2011 20:42

Rúmlega þrjátíu keppendur skráðir í íscrossið um helgina

Written by 

Rúmlega þrjátíu keppendur hafa skráð sig til leiks í aðra umferð til Íslandsmeistara í íscrossi sem fer fram á Leirutjörn á Akureyri laugardaginn 12 febrúar.  Hægt er að sjá listann yfir keppendur með að smella hér.  Keppninni var flýtt til gera hana hluta af vetrar- og útivistarhátíðinni Éljagangur sem haldin er þessa sömu helgi á Akureyri, en hún verður sett á morgun kl.19 í Hlíðarfjalli.  En mörg fyrirtæki í þessum geira munu sýna vörur sýnar ásamt því að ýmsar uppákomur verða í gangi yfir hátíðana.  Nú er um að gera að skella sér norður og sjá herlegheitinn, enda veðurspáin þeim norðanmönnum hressilega í vil þessa helgi.

Read 608 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:13