Nú eru flestir ef ekki allir þeir sem hafa hugsað sér að gera eitthvað í motocrossi eða enduro farnir að hugsa sér alvarlega til hreyfings og byrjaðir á sínu undirbúningstímabili á fullu. Enda hefst undirbúningur fyrir keppnisdag ekki daginn fyrir, heldur mörgum mánuðum á undan og árangurinn í keppnum er oftast ef ekki alltaf sökum góðs undirbúnings. Sumir gera það sama ár eftir ár og eru með ákveðið prógram sem þeir vilja ekki fara út úr, enda virkar það fínt fyrir þá. Fyrir aðra, að þá hafa margir reynt að hjóla eins mikið og hægt er um helgar ef tíðin gefur tilefni til þess en gera lítið þar fyrir utan til undirbúnings. Okkar fjölskylda hefur verið í þeim hópi, þ.e. sett eingöngu púður í það að hjóla og hafa gaman af en höfum ekki farið í aðrar æfingar með sem er góður hluti af undirbúning fyrir sumarið. Í fyrsta sinn hefur orðið breyting á og við byrjuðum í crossfit hjá CrossFit Reykjavík undir leiðsögn Árna Gunnarssonar. Ég verð að segja alveg eins og er að crossfit hefur komið mér gjörsamlega á óvart og hversu vel við höfum fundið okkur í því. Ekki nóg með að tímarnir taka á, heldur eru þeir skemmtilegir og áður en maður veit af er tíminn liðinn og maður stendur eftir pungsveittur eftir átökin mjög svo sáttur.
En hvað er crossfit? Hér tek ég texta af heimasíðu CrossFit Reykjavík en hann þar er að finna eftirfarandi skilgreiningu á hvað crossfit er:
Markmið CrossFit er að auka lífsgæði og heilsu fólks. CrossFit skilar miklu líkamlegu hreysti á mjög breiðum grunni. CrossFit kerfið er hannað þannig að hægt er að aðlaga það að getu allra, óháð líkamlegri færni, þess vegna er það tilvalið fyrir hvern sem er. Sömu æfingar eru gerðar af eldri borgurum og afreks íþróttamönnum, þyngdir og ákefð er aðlöguð en við breytum ekki kerfinu. CrossFit leggur áherslu á að bæta færni á 10 eftirfarandi sviðum:
1. ÚTHALD - geta líkamans til að safna, vinna úr og bera súrefni
2. ÞREK / ÞOL - geta líkamans til að vinna úr, flytja, geyma og nýta orku
3. STYRKUR - geta vöðva einingar, eða samsetningu af vöðvum til að beita afli
4. LIÐLEIKI - geta til að hámarka hreyfingu um liðamót
5. AFL - geta vöðva til að skila hámarks afli á lágmarks tíma
6. HRAÐI - geta til að draga úr þeim tíma sem það tekur að endurtaka ákveðna hreyfingu
7. SAMHÆFING - geta til að sameina nokkrar mismunandi hreyfingar í eina ákveðna hreyfingu
Fyrir okkur að þá stendur upp úr fjölbreytileiki æfingana og að þú ert alltaf að gera eitthvað nýtt. Ég hef prófað stunda hefðbundna líkamsrækt og fer nú tvennum sögum af árangrinum, en mér leiddist slíkar æfingar alltaf og mér fannst þær taka allt of langan tíma því maður gat staðið í því að dóla sér allan tíma og kjafta frá sér ráð og rænu á meðan æfingu stóð. Crossfit er þveröfugt, hnitmiðaðar æfingar og eins og einn þjálfarinn orðaði, "ef þú getur kjaftað á meðan á aðalæfingu stendur, að þá ertu einfaldlega ekki að taka á miðað við getu".
Með þessum pistli er ég ekki að tala niður aðra líkamsrækt, því ég styð alla tegund líkamsræktar svo framarlega sem viðkomandi finnur sig í því sem hann er að gera og er að gera eitthvað fyrir sjálfan sig. En crossfit er ein af fáum tegundum æfinga sem ég fíla og fíla í ræmur. Ef þú ert ekki byrjaður á neinu er varðar undirbúning, einfaldlega þar sem þú ert ekki ennþá vaknaður eftir jólin, að þá er komin tími til og ég skora á þig að kanna hvort að crossfit sé eitthvað sem hentar þér. Crossfit er kennt á nokkrum stöðum og í Reykjavík mæli ég að sjálfsögðu með CrossFit Reykjavík, enda æfi ég sjálfur þar og hef ekki samanburð annars staðar frá. Á Akureyri er staðsett stöð sem ber nafnið CrossFit Hamar og trúi ég ekki öðru en Unnar og þeir sem að þeirri stöð standa, geri það með sóma. Hægt er að skoða heimasíðu CrossFit Reykjavík með að smella hér.