Vetur í kortunum framundan og þeir sem voru eitthvað að spara við sig að setja undir trellana, ættu að skella þeim undir sem fyrst. Kannski erum við að fara að upplifa svona aftur en hver man ekki eftir þegar VÍK opnaði Bolaöldu að vetri til og voru menn að hjóla í brautinni á trellum í svarta myrkri með ljósabúnaði og fannst það ekki leiðinlegt. En hér er myndband sem ég setti saman á sínum tíma fyrir um tveimur árum síðan og efast ég ekki um að bæði Gunni "painter", Einar "púki", Árni "lögga" o.fl. væri til í smá svona.