Sunday, 30 January 2011 00:40

Fyrsta umferðin í íscrossi afstaðinn

Written by 

Í gær, laugardaginn 29 janúar, fór fram fyrsta umferðin í íscrossi og var hún haldin á Mývatni.  Mývetningar kunna þetta alveg og þarf ekkert að fara neinum orðum um framkvæmd mótsins sem tókst í alla staði vel.  Það eina sem háði keppendum í dag að það var strekkingur í dag sem hafði áhrif á ökumenn og féllu sumir meira að segja á ráslínu þegar verið var að stilla sér upp sökum vindhviða sem áttu til að skella á keppendum óumbeðnar.  Hátt í fjörtíu keppendur voru skráðir og ég gat ekki betur séð en flestir skemmtu sér ágætlega.  Kári var alveg með þetta í vetrardekkjaflokknum og var eiginlega aldrei ógnað í dag.  Meiri spenna var í opna flokknum þar sem "gömlu brýnin" Toggi og Raggi áttust við um forystuna og endaði það með því að Raggi hafði þetta.  Önnur úrslit voru eftirfarandi:


85cc flokkur:

  • Adam H. Jóhannesson
  • Kristján H. Garðarsson
  • Óliver Ö. Sverrisson

Kvennaflokkur:

  • Andrea D. Kjartansdóttir
  • Signý Stefánsdóttir
  • Ásdís E. Kjartansdóttir

Unglingaflokkur:

  • Ingvi B. Birgisson
  • Ásgeir Hall
  • Ásdís E. Kjartansdóttir

Vetradekkjaflokkur:

  • Kári Jónsson
  • Daði Erlingsson
  • Sigurður Bjarnason

Opin flokkur:

  • Ragnar I. Stefánsson
  • Þorgeir Ólason
  • Steingrímur Ö. Kristjánsson

Því miður meiddist Bryndís Einarsdóttir í tímatökunni og endaði á spítala þar sem henni verkjaði mikið í öxlina.  En Bryndís varð fyrir því óhappi að "hi-sæta" hressilega með fyrrgreindum afleðingum og óskum við henni skjótum bata.  Ég smellti eitthvað af myndum og hægt er að skoða þær með að smella hér.  Því miður kemur ekki mappan sem ég var búin að setja þetta í, heldur koma þarna allar myndirnar sem ég var búin að setja inn í íscrossi í ár og biðst ég velvirðingar á því.  Er ekki búin að ná betri stjórn á myndalbúminu en þetta og er ennþá að læra á þetta nýja kerfi.

Read 958 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:09