Friday, 28 January 2011 00:37

Brautir og brautarsmíði

Written by 

Síðustu vikur höfum við getað horft á AMA Supercrossið okkur til mikillar gleði og ánægju.  Nú eru búnar þrjár umferðir af sautján og áhorfendir hafa líklegast tekið eftir eins og ég að það hefur verið jafnt á með efstu fimm ökumönnum, þó svo að James Stewart og Ryan Villpoto beri af þessum efstu fimm.  Trey Canard, Ryan Dungey og Chad Reed eru hinir sem hafa skilað sér í topp fimm í síðustu þremur umferðum.  Ég var sáttur við brautina í Anaheim en að sama skapi var ekki ýkja spenntur fyrir brautinni í Phoenix sem mér þótti á köflum nokkuð einstíga.  Aftur á móti fannst mér brautin um síðustu helgi, á Dodger Stadium, vera mjög skemmileg og bjóða upp á mikið "action".  Síðasta keppni var af mörgum talin ein sú mesta spennandi í mörg herrans ár og sérstaklega fyrstu tíu mínúturnar í opna flokknum.   

Í Lites flokknum hefur þetta verið aðeins blandaðara en samt eru þetta nokkurn vegin Monster Pro Circuit sem hafa verið mjög öflugir en lið Troy Lee Design ásamt Rockstar Makita Suzuki hafa nokkurn vegin einokað verðlaunapallinn.  Samt hefur spennan verið til staðar í Lites flokknum eins og í opna flokknum þó hún hafi ekki náð þeim hæðum sem opni flokkurinn náði um síðustu helgi.  En hvað veldur?  Afhverju eru þessar keppnir allt í einu meira spennandi en til dæmis í fyrra eða árið 2009?  Eru ökumennirnir orðnir svona miklu betri eða hjólin orðin það góð og jöfn að það eru ekki lengur bara topp liðin sem geta blandað sér í baráttuna?  Ég er ekki viss um að Ricky Charmichael sé á því að samþykkja án andmæla að ökumenn séu orðnir betri á þessum þremur árum frá því að hann hætti að keppa í motocrossi.  En hvað er það?  Afhverju voru topp fimm til sex ökumenn í hnapp í tíu mínútur og skiptust á að taka forystu?
 
Persónulega held ég að fleiri ökumenn sé komnir með betra æfingarprógram heldur en áður og þar fyrir utan að þá virðast æ fleiri gera sér ljóst hvað þeir þurfa að leggja á sig til að komast á toppinn.  Að sjálfsögðu eru hjólin orðin betri í það heila, alla vega verð ég að trúa því því maður er alltaf að endurnýja þessi hjól og að sjálfsögðu vill maður réttlæta það að maður sé að kaupa betra hjól en það sem maður var á.  Enn... Það er eitt  sem ég hef tekið eftir í viðræðum við ökumenn í keppninni og hef hlustað með meiri athygli núna en í fyrstu keppninni.  Kannski hafa fleiri tekið eftir því sem Josh Hansen sagði eftir sigur sinn í undanriðlinum en þar tjáði hann það að honum þótti brautin í grunninn nokkuð "basic" eða einföld og því væru svo margir á svipuðum hraða.  Er þetta málið?  Er hér komin ástæðan fyrir því að svo margir ökumenn eru að blanda sér í topp baráttuna og við erum að horfa á jafn spennandi keppnir og raun ber vitni?  Hvort sem þetta er ástæðan eða ekki að þá eru áhorfendur og fjölmiðlar yfir sig hrifnir og gæti þetta orðið til þess að áhorfendamet verði slegið í ár.  Alla vega hefur síðasta umferð vakið mikla athygli í öðrum miðlum en þeim sem einblína á þetta sport.
 
Erum við þarna komnir að ákveðnum kjarna er kemur að brautum og það sem áhorfendur koma til að sjá?  Ef valið stendur á milli hvort við viljum mjög tæknilegar brautir eða góða aðsókn í keppnir og í áhorfendastæði, hvort ætli yrði ofan á?  Ég er ansi hræddur um að á endanum yrði þetta engin samkeppni og sportið mun alltaf, eins og hvert annað markaðslögmál, aðlaga sig að breytum aðstæðum sem þýðir það sem áhorfendur vilja sjá.  Framleiðendur, auglýsendur/kostendur, flestir ökumenn sem og klúbbar myndu allir vilja sjá sem flesta áhorfendur því þar með fá þeir mest fyrir sinn snúð sem og meiri líkur yrði á meiri nýliðun í sportið.  
 
Tökum bara "Freestyle" sem dæmi.  Fyrir um það bil 10 árum var þetta nánast óþekkt keppnisform og voru þetta nokkrir ófyrirleitnir einstaklingar með viðhorfs vandamál í stórum stíl sem gátu illa rúmast innan hefðbundinnar reglna í akstursheiminum sem byrjuðu að gera eitthvað annað því þeim fannst svo mikli peningalykt af öllu sem gekk í hinu hefðbundnu keppnihaldi.  Síðan urðu þessir gæjar bara nokkuð góðir í því sem þeir voru að gera og með betri trikkum fóru þeir að fá meiri athygli sem endað með því að haldnar voru heilu keppnirnar og mótaraðir settar í gang sbr. DEW Tour í Ameríku.  Það sem meira er, áhorfendur flykkjast á þessi "show" og oftar en ekki er kjaftfullt á sýningarstað.  Eru þessir óhefluðu einstaklingar búnir að búa til einhverja mestu markaðsmaskínu sem komið hefur fram í mótorhjólasporti hin síðari ár og græða á tá á fingri, að vísu með smá marmblettum og beinbrotum hér og þar.  Engu að síður að þá eru tappar eins og Brian Deagan o.fl. heldur betur búnir að ná að gera þetta að féþúfu sem er í sjálfu sér bara mjög gott og frábært að þeir geta lifað svona vel á þessu.  En það er afar áhugavert að horfa á þætti frá því þegar þetta var að byrja að ryðja sér til rúms og menn eins og Brian Deagan úthúðuðu hefðbundnu keppnishaldi í supercrossi og þá peninga sem voru í spilinu.  Já, "freestyle" var sport hinu óhefðbundnu uppreisnarseggja og stundað af ástríðu en ekki peningana vegna.  Þetta hefur heldur betur snúist við og markaðslögmálið heltekið það eins og flest allar aðrar íþróttir sem allt í einu vekja athygli og fara að njóta einhverjar hylli.
 
En hvað kemur þetta við brautum og brautarsmíði á Íslandi?  Jú, það sem ég ætlaði mér upphaflega að ræða um hér hvort við við hér á landi þyrftum aðeins að staldra við og horfa þá þróun sem hefur átt sér stað síðustu ár með gagnrýnu hugarfari.  Hvað hefur gerst hér heima?  Jú, undantekningarlaust erum við að horfa upp á fækkun keppenda í bæði motocrossi og sérstaklega endurokeppnum.  Margar ástæður geta legið þar að baki og að sjálfsögðu spilar efnahagur margra mjög stóran þátt í dæminu, en ég það læðist að mér sá grunur að þetta sé ekki eingöngu ástæðan fyrir því að við erum að horfa á fækkun ökumanna í keppnum.  Nei, ég held að brautir og lögun þeirra skipti hér líka máli.  Í endurokeppnum hefur orðið nánast algjört hrun og hafa keppendur farið niður í rétt rúmlega þrjátíu talsins sem verður að teljast afar lélegt.  Árið 1999 voru rúmlega hundrað keppendur sem tóku þátt og ef við værum að horfa til þeirrar miklu aukningu sem orðið hefur í hjólaeign landsmanna að þá ættum við vera að horfa á tvö til þrjúhundruð keppendur að meðaltali í endurokeppnum.  Í motocrossinu höfum við á síðustu árum ætlað gera allt í einu í brautarlagningu og brautirnar eiga vera bæði motocross og supercrossbraut í einu og sömu brautinni.  Þetta einfaldlega gengur ekki upp.  M.ö.o. við verðum að hætta að byggja brautir fyrir örfáa og horfa á heildina. 
 
Horfum á AMA motocrossið.  Skoðið brautirnar þar því þar erum við alltaf að horfa hýrum augum um að allt sé svo æðislegt.  Utanhúsbrautir eru einfaldlega motocrossbrautir en ekki supercrossbrautir.  Vísulega hafa pallar bæst við og eitt og annað komið til þannig að brautirnar eru orðnar tæknilegri en þær voru fyrir t.d. tuttugu árum síðan en það er hæg þróun sem hefur átt sér stað en ekki gert í einum spreng eins og við höfum kannski verið að gera hér heima.  M.ö.o. kannski erum við að gera hlutina aðeins of hratt og leyfum ekki sportinu að þróast eðlilega í ljósi þess hversu ungt það er.  Fyrir örfáum árum síðan var Bolaalda ekki til og ein elsta skipulagða motocrossbrautin var Sólbrekka.  Horfum aðeins aftur á þetta með gagnrýnu hugarfari og veltum fyrir okkur hvaða brautir eru vinsælastar hjá ökumönnum?  Síðasta sumar var það tvímælalaust braut KKA manna á Akureyri sem bar höfuðið og herðar yfir aðrar brautir hvað vinsældir snertir og má segja að sú braut sé í grunninn nokkuð "old school" motocross og segi ég þetta "with no disrespect" þar sem mér fannst lang skemmtilegast að hjóla þarna síðasta sumar.
 
Er ég þá orðin samnefnari og talsmaður þess að ég vilji ekki að motocrossið eða enduro þróast hér á landi?  Nei, alls ekki eða það vona ég ekki.  Ég er einfaldlega að benda á þá staðreynd að þetta er ungt sport á Íslandi sem verður að taka út sinn vöxt og vaxtakippi á þeim hraða sem sportið þolir en ekki setja allt á stera einn, tveir og bingó og ætla sér að verða heimsmeistari á tveimur dögum.  Eða eins og þeir orða það svo skemmtilega þarna út menn fara fram úr sjálfum sér í keppni, "let the race come to you". 
 
Minn punktur í þessu öllu saman er að við þurfum að leyfa motocrossbraut að vera motocrossbraut og ef við viljum bæta supercrossi við, að þá einfaldlega setjum við upp slíka braut en reynum ekki að sameina þetta í einni og sömu brautinni.  Þó svo þetta sé stundað á sömu tækjum að þá eru þetta ólíkar brautir þar sem supercrossið er tæknilegra og byggist meira á stökkrythmum, vúppsum og stuttum, þröngum brautum á meðan motocrossið er "wide open" með meiri hraða.  Að sjálfsögðu þurfum við að þróa ökumenn í að verða betri en þeir eru í dag, en þar held ég að þetta snúist meira um grunninn frá byrjun en sterabrautir sem eiga að leysa allt á einum til tveimur árum.  Ryan Dungey er t.d. ennþá að gera einfaldar grunnæfingar í sínu æfingarprógrammi.
 
Kjarninn í þessum langa pistli er einfaldlega sá að ég held að félög þurfi að horfa til þess hvernig þau geta höfðað til fjöldans en á sama tíma hafa til hliðsjónar hvað hægt sé að gera til að gera ökumenn betri.  Í hinum fullkomna heimi að þá ætti þetta að vera þannig að hver klúbbur átti að vera með barnabraut, byrjendabraut, aðalbraut og svo tæknibraut.  Já, barnabrautin og byrjendabrautin þurfa ekki að vera í fullri lengd, heldur snúast þær um það að notandinn öðlist aukið öryggi og njóti þess að hjóla á meðan aðalbrautin á að vera sú braut sem er í fullri lengd og þróast í takt við getu ökumanna.  Tæknibrautin á að vera sérstök æfingabraut fyrir lengra komna, hún þarf ekki að vera í fullri lengd, heldur svona 700 - 800 metrar svo auðvelt sé að laga og breyta í samræmi við breyttar kröfur þar sem þeir sem vilja erfiðari brautir fái líka sína útrás.  Vonandi mynda það síðan leiða til þess að eftir því sem ökumenn yrði tæknilega betri, að þá væri hægt að þróa aðalbrautina í samræmi við það.  Að sjálfsögðu skiptir svo umhirða, viðhald og rakastig geysilega miklu máli þegar kemur að motocrossbrautum.
 
Í enduroinu að þá á þetta að vera nokkuð svipað nema þar yrði um eina aðalbraut fyrir fjöldann og síðan væri geðveikt að koma upp alvöru extreme braut fyrir þá sem það vilja.  Þannig myndum við ekki standa í veg fyrir þróun á ökumönnum en jafnframt myndum höfða til fjöldans.  Jú, því ef engin nýliðun á sér stað, að þá lognast þetta sport út af sjálfu sér.  Að sjálfsögðu ætti að reyna að koma upp trial svæði og aðstöðu fyrir "freestyle".
 
Jæja, þá er ég búin að koma þessu út úr mér.  Sjálfsagt eru fullt af fólki sem er ekki sammála mér og er það bara hreint út sagt frábært því það væri nú ekki gaman ef allir væru eins og með sömu skoðanir.  Ég skal líka vera fyrstur til að breyta um skoðun ef það kemur í ljós að ég hef rangt fyrir mér.  Vona að fólk hafi lifað það af að lesa þetta allt saman...
 
Read 779 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:09