Nú þegar skráningu er lokið er ljóst að um fjörtíu keppendur hafa skráð sig til leiks í fyrstu umferð til Íslandsmeistara sem fer fram á Mývatni, laugardaginn 29 janúar. Er þetta ágætis hópur og efast ég ekki um að það verði vel tekið á því. Ég sakna samt nokkura nýliða sem hugðust hefja ísakstur á þessu tímabili í undirbúningi sínum fyrir MX í sumar og ökumanna frá Akureyri en þeir verða bara að eiga það við sjálfan sig að hafa ekki skráð sig. Það gladdi mig að sjálfur Katoom hefur ekki getað staðist freistinguna og hefur skráð sig til leiks. Spurning hvort hann mæti í appelsínugula galanum sínum eins og síðast þegar hann keppti á Mývatni en Katoom hefur kvartað yfir að gallinn sér farinn að hlaupa helst til mikið á milli ára og þrengjast þar sem ekki er ætlast til að hann þrengist. Mér skilst á Stefáni fyrir norðan að það sé kjöraðstæður á Mývatni. Ísinn er um 40 cm þykkur, enginn snjór á honum og það liggur ekkert vatn yfir honum. Sem sagt eins flott og hægt er að hafa það. Hægt er að sjá listann yfir keppendur með að smella hér og dagskránna má niðurhjala neðst í fréttinni.