Fréttatilkynning frá Akstursíþróttafélagi Mývatnssveitar
Það lítur út fyrir að fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Ískrossi ætli að verða mjög sterkt mót en nú þegar er vitað að eftirfarandi mæta:
Kári Jónason Íslandsmeistari í enduró og akstursíþróttamaður ársins
Ingvi Björn Birgisson Íslandsmeistari í enduro B
Guðbjartur Magnússon Íslandsmeistari í motocross 85cc flokki
Bryndís Einarsdóttir akstursíþróttakona ársins
Signý Stefánsdóttir Íslandsmeistari í motocross kvennaflokki
Andrea Dögg Kjartansdóttir Íslandsmeistari í ískrossi kvennaflokki
Auk þessara mæta margar gamlar og nýjar kempur í mótið. Minnt er á að skráningu lýkur kl 21.00 í kvöld og að engar undantekningar frá þeirri reglu eru leyfðar. Ísinn á Mývatni er jarðýtuheldur og eru þeir í Akstursíþróttafélagi Mývatnssveitar þekktir fyrir vel skipulögð mót. Ekki spillir að öllum keppendum er boðið í Jarðböðin að lokinni keppni. Veðurspáin er hagstæð, en það spáir suðvestanáttum með með björtu veðri og lítilsháttar frosti norðaustanlands. Meðfylgjandi er dagskrá fyrir mótið sem hægt er að smella á neðst og vista sem viðhengi, en eftirfarandi eru í framkvæmdastjórn mótsins:
Stefán Gunnarsson Keppnisstjóri
Kristján Steingrímsson Brautarstjóri
Lárus Björnsson Skoðunarmaður
Einar Smárason Tímavörður
Guðmundur Hannesson MSÍ eftirlitsmaður