Tuesday, 25 January 2011 09:26

Tímabilið að hefjast - skráningarfrestur í íscrossið rennur út kl.21 í kvöld!

Written by 

Já, ótrúlegt en satt að þá er tímabilið hjá okkur er að hefjast og fyrsta keppni ársins verður um næstu helgi, laugardaginn 29 janúar og fer hún fram á Mývatni.  Frestur til að skrá sig í fyrstu umferðina í íscrossi rennur út kl. 21 í kvöld...  Já, gott fólk, fresturinn er ekki lengur til miðnættis eins og verið hefur heldur verður lokað á skráningu á slaginu kl.21.  Nú er um að gera að skella sér norður á ísinn en ég efast ekki um að það verði vel haldið utan um hlutina þarna í sveitinni hjá þeim fyrir norðan eins og venjulega.  Frábært að koma þangað og fólkið á svæðinu gestrisið í meira lagi.  Hægt er að skrá sig á heimasíðu MSÍ en MSÍ ítrekar að fólk skuli kanna aðgang sinn á svæðinu sem fyrst því ekki verður hægt að redda skráningu bakdyrameginn að skráningarfresti liðnum.  Þeir sem hafa ekki tekið þátt áður og hafa áhuga til, að þá þurfa þeir að stofna aðgang á Felix sem er það kerfi innan ÍSÍ sem heldur utan um skráningarkerfi allra aðildarfélaga.  Ef þú lendir í veseni með skráningu að þá þarft þú að hafa samand við formann þess aðildarfélags sem viðkomandi er í, sbr. ef þú ert í VÍK að þá hefurðu samband við Kela formann.  Keppt verður í eftirfarandi flokkum.

  • Vetrardekkjaflokki
  • Kvennaflokki
  • Unglingaflokki (keyrir með vetrardekkjaflokki ef 5 eða fleiri skrá sig)
  • 85cc flokki (keyrir með kvennaflokki ef 5 eða fleiri skrá sig)

Að lokinni dagskrá á laugardaginn er öllum keppendum boðið frítt í jarðböðin og er um að gera að nýta sér þessa frábæru aðstöðu til að slaka á eftir keppnina.  Koma svo, hefjum tímabilið af krafti.  2011 er árið...

Read 651 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:02