Síðan hefur loksins fengið þá andlitslyftingu sem hún þurfti á að halda og þetta útlit er það sem mun koma til með að vera þar til hún fær næst upphalningu. Hægt er að gera "like" á MotoSport.is á Facebook og fá þannig upplýsingar um nýjar fréttir beint í æð. Myndakerfið er orðið virkt aftur og get ég loksins farið að setja inn eitthvað að þeim myndum sem ég hef tekið frá því í lok ágúst og til dagsins í dag. Nú þegar eru komnar hátt í sjöhundruð myndir í nýja myndakerfið og fleiri á leiðinni. Athugasemdakerfi verður einnig sett á laggirnar og verður hægt innan skamms að tjá sig um fréttir og málefni og verður athugasemdakerfið að öllum líkindum tengt facebook, þannig að þeir geta eingöngu tjáð sig sem eru facebook notendur. Þetta er gert til að reyna að tryggja að allar athugasemdir sé hægt að rekja beint til þess sem skrifar og ég mun ekki hika við að henda út skrifum sem ég tel að sé fólki ekki sæmandi.