Wednesday, 01 December 2010 23:17

KTM 450 SX-F hjól ársins að mati MXA

Written by 

 

Þá var eitt tímaritið í henni Ameríku og vefmiðilinn að gefa út sinn dóm yfir hvaða hjól þeir teldu að væri besta hjólið í 450cc flokknum en það er tímaritið Motocross Action Magazine sem þeir skammstafa gjarnan sem MXA.  Fyrir valinu varð KTM 450 SX-F eins og í fyrra.  Þetta tímarit horfir mjög stíft á mótor og fjöðrun og miða sína dóma út frá því.  Þeir eru oft nokkuð umdeildir en það verður ekki annað sagt en að þeir fara óhikað sínar eigin leiðir.  Þannig að annað árið í röð velja þeir KTM 450 SX-F hjólið sem besta 450 hjólið í sínum flokki.  Annars var röð hjóla eftirfarandi:

1.  KTM 450 SX-F
2.  Suzuki RM 450-Z
3.  Yamaha YZ450F
4.  Kawasaki KX450F
5.  KTM 350 SX-F
6.  Honda CR450-F

Þá hafið þið það.  Þá hafa bæði Motocross Action Magazine og Racer X tilkynnt sitt val og fleiri dómar á leiðinni.

sx_action2_01.jpg

Read 643 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 23:59