Þeir sem sátu heima og horfði á endursýningu í sjónvarpi geta heldur betur nagað sig í handabökin því aðstæður á Hafravatni voru eins og best verður á kosið og veðrið hreint út sagt frábært. Við hjónin vorum að vísu ekki þarna fyrr en um tvöleytið en að sjálfsögðu voru menn úr "harða genginu" mættir á staðinn og láta sig sjaldan vanta. Ísinn er frá 15 - 20 cm þykkur þar sem við hjólamenn erum vanir að vera og ráðleggjum við ökumönnum að fara ekki inn á mitt vatnið til þess að þurfa ekki að upplifa sömu minningu og Gunni "painter" síðasta vetur. En það þurfti að ná í hjólið hans á 12 metra dýpi fyrir utan að það getur verið mjög erfitt að koma sér upp á ísinn í fullum herklæðum. Jæja, nóg um það. Við hefðum helst viljað vera lengur eins og aðtæður voru í dag. Katoom sveif þarna um eins og sá sem valdið hefur og var hreint út sagt vangefið grip í hjólinu hans sem var með heimatilbúnum skrúfum. Vonandi koma fleiri myndir í kvöld eða á morgun.
