Tuesday, 21 December 2010 22:16

XC útgáfa af KTM 350 og 250

Written by 

KTM hefur sett í framleiðslu XC útgáfu af 250 og 350 hjólinu með beinni innspýtingu.  Þetta er eitt af því sem ég fíla við KTM en það er hversu breitt úrval er í boði fyrir ökumenn og virðist vera endalausir möguleikar á því að finna hjól sem hentar þér en ekki bara eitt ríkisrekið hjól fyrir alla að hætti Marteins Mosdal.  Enginn framleiðandi býður t.d. upp á jafn mikið úrval af tvígengishjólum.  Hægt er að lesa hvað Dirt Rider Magazine fannst um þessi hjól með að smella hér, en þessi útgáfa er "enduro-race ready" frá framleiðanda og gætu hentað mjög vel í endurocross.  Ég veit að nokkrir hér heima hafa áhuga á þessum XC hjólum og skilst með að KTM á Íslandi hafi átt möguleika á að fá eitthvað af þessum hjólum sem eingöngu er ætluð fyrir Ameríku markað og sagan segir að við eigum eftir að sjá svona hjól hér á landi strax í janúar.

Read 480 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:01