Við erum kannski ekki mikið að fylgjast með motocrossinu í Ástralíu en hún er vel þess virði að fylgjast með enda hafa komið þaðan ökumenn eins og Chad Reed og Brett Metcalfe.  En fjórða umferðin í Ástralska motocrossinu fór fram um helgina og fór hún að þessu sinni í einu sandbraut þeirra Ástrala.  Josh Coppins á Yamaha burstaði dæmið enda vanur að keppa í sandinum í Lommel.  Annar varð liðsfélagi hans í MX1.  Jay Marmont, sem fór yfir á Kawasaki frá Yamaha í vor átti ekki góðan dag og þurfti að hætta keppni vegna hnémeiðsla sem hafa verið að hrá hann upp á síðkastið.  Josh Coppins ætlar að keppa í einum til tveimur umferðum í FIM MX GP mótaröðinni og verður spennandi að sjá kappann aftur þar.  Josh Coppins leiðir stigakeppni ökumanna í MX1 með yfir 40 stiga forskoti.  Liðsfélagið Josh Coppins í MX2, Luke Styke, vann einnig sinn flokk og leiðir stigakeppni ökumanna í MX2.  Hér má sjá það helsta sem gerðist í fjórðu umferðinni.

Published in Motocross

Sú kjaftasaga verður síffellt háværari á netinu að komnir séu alvarlegir brestir í samstarf JGR Toyota Yamaha og James Stewart eftir aðeins nokkra mánaða samvinnu.  Sagan segir að James Stewart muni hugsanlega fara yfir til Suzuki og verði þá ökumaður númer eitt og Brett Metcalfe verði þá ökumaður númer tvö.  En sem komið er að þá er þetta bara kjaftasögur á netinu og oft eru þær óskhyggja sumra og eigi við afar lítið að styðjast en í sumum tilfellum hafa þær gefið sterkar vísbendingar um að eitthvað sé að.  JGR er lið sem vill fá til baka fyrir þann pening sem þeir leggja út fyrir og það er ekkert launungarmál að frammistaða hans hefur verið undir væntingum flestra ef ekki allra og ekki síst hans sjálfs.  Margir vilja rekja það til hjólsins, þ.e. Yamaha YZ450F og að hönnunin á því henti ekki stíl James Stewart.  Eitthvað gæti verið til í því og ómögulegt um það að segja.  En þeir sem virkilega þekkja til vilja meina að það sé ekki hjólið því það hafi sannað það margoft að það geti unnið og sé ekki hamlandi fyrir ökumann.  Hefur t.d. það skilað tveimur utanhús meistaratitlum í motocrossi í Ástralíu + einum supercrosstitli.  Steven Frossard hefur orðið ítalskur meistari á því tvö ár í röð og hefur lagt ekki minni mann en sjálfan heimsmeistarann Antonio Cairoli á hans heimavelli og við skulum ekki gleyma því þegar við skoðum þær keppnir að fyrsta árið var hann nýliði í 450 flokknum og í ár var hann að koma úr mjög erfiðum lunganmeiðslum og var lítið búinn að æfa fyrir ítalska meistaramótið.  Gautier Paulin sigraði á hjólinu í moto 2 í MXON í Frakklandi á síðasta ári, þannig að hjólið hefur sýnt að það á ekki að vera sá þáttur sem er hamlandi.  Motocross Action Magazine hefur margsagt það að vandamálið með James Stewart er ekki hjólið heldur uppsetning hans á fjöðruninni og þá sérstaklega að framan.  Hún sé svo stíf að það sé engu lagi líkt og það geri það að verkum að framendinn fari undan honum svo oft.  Ef þið horfið á keppnina í AMA supercrossinu 2006 að þá er hann að glíma við það nákvæmlega sama það ár og fór oftar á hausinn en ekki og þá var hann á Kawasaki.  En svo getur hreinlega verið að James Stewart þurfi einfaldlega að fara á annað hjól til að upplifa eins og hann sé að eignast nýtt upphaf í sportinu.  Fyrir suma virkar slíkt en aðra ekki.  T.d. er Jay Marmont í Ástralíu að ströggla eftir að hafa farið af Yamaha yfir á Kawasaki.  Hvað sem verður og hvernig sem þessi saga endar, að þá er eitt víst.  James Stewart vekur alltaf eftirtekt sama á hvaða tegund hann verður á og mín ósk er einfaldlega sú að hann klári einfaldlega svo sem eins og eitt stykki tímabil eins og t.d. AMA Outdoors í sumar, sama á hvaða tegund á hjóli hann verður.  Hundleiðinlegt ef Ryan Villopoto dóminerar AMA Outdoors eins og hann hefur gert í AMA Supercrossinu í ár og þá nenni ég ekki að horfa á þetta í sumar þarna í Ameríku.

Published in Supercross

Þetta myndband er með þeim allra flottari af ökumönnum í Monster Energy Yamaha liðinu sem tekur þátt í FIM MX mótaröðinni sem hefst um næstu helgi í Hollandi.  Ökumenn í MX1 eru þeir Steven Frossard sem ég hreinlega spái heimsmeistaratitlinum í ár, David Philippaerts og svo nýji maðurinn í hópnum Shaun Simpson.  Í MX2 eru það þeir Arnaud Tonus sem er hvað sterkastur í Bretlandi í MX2 í ár og var það líka í fyrra, Zach Osbourne sem er eitthvað laskaður eftir heljarinnar krass um daginn og óvíst um þátttöku hans í fyrsta mótinu um næstu helgi og Christophe Charlier sem er sá eini sem keppir á "prototýpu" af Yamaha YZ250F með beinni innspýtingu.  Undirbúningstímabilið hefur byrjað ágætlega hjá þeim, Steven Frossard varð ítalskur meistari annað árið í röð í MX Elite og Arnaud Tonus leiðir í MX2 í bresku mótaröðinni.  En hvað um það, sjón er sögu ríkari.

Published in Motocross

Nokkuð töff myndband þar sem verið er að kynna lið Yamaha í enduro þarna "down under" og þarna er líka kyning fyrir ökumenn sem eru að testa hjólið.  Þeir kunna alveg að leika sér þarna.

Published in Enduro

Síðustu ár hefur ekki verið mikið gert til að bæta hið "trygga" eins og Ástralir kalla Yamaha WR450F hjólið og hefur það nánast verið óbreytt frá 2007 en nú hefur Yamaha heldur betur tekið sig saman í andlitinu og búið til nýtt hjól sem byggir að hluta til á Yamaha YZ250F, YZ450F og gamla WR450F og úr varð hjól sem er að fá mjög góða dóma alls staðar sem ég hef komist yfir það á netinu eða í öðrum miðlum.  Grindinn úr YZ250F hjólinu hefur þótt með afbrigðum góð fyrir 2012 árgerðina og það bragð að nota hana í nýtt WR450F virðist hafa heppnast mjög vel að mati gagnrýnanda.  Margir bjuggust við að mótorinn úr YZ450F yrði notaður í nýja WR450F hjólið en Yamaha ákvað að nota uppfærðan mótor úr WR450F og er þetta nánast sami mótor og var í YZ450F hjólinu árið 2009 fyrir utan að hann er kominn með beina innspýtunga og verið breytt fyrir enduro sérstaklega.  Þetta útspil virðist ekki valda vonbrigðum enda hefur mótorinn sömu stillanlegu eiginleika sem einkennt hefur YZ450F hjólinu og er hægt að "tjúnna" hann til með lítilli fyrirhöfn með það sem þeir kalla GYTR Power Tuner sem er lítið eitt stærra en iPod.  Hvað um það, en miðað við þær aðstæður sem ég horfði menn reynsluaka í þessu myndbandi hér fyrir neðan og sést vel á 2:07 mínútu, að þá kom fyrst upp í hugann á mér Klaustur og aðstæður sem eru þar.  Já, það væri gaman að prófa eitt svona stykki við þær aðstæður og efast ég ekki um að þetta hjóli kitli mann og annan.  Það eru mörg myndbönd til af nýja Yamaha WR450F en ég verð að segja að þeir þarna "down under" í Ástralíu gera þetta einstaklega smekklega og koma þeim skilaboðum sem þarf að koma vel frá sér.

Published in Enduro
Tuesday, 13 March 2012 22:40

Smá innsýn í heim James Stewart

Hér er fyrsta myndbandið af einhverjum inn í heim James "Bubba" Stewart og er sett saman af Red Bull.  Fyrsti þátturinn fjallar nokkuð um það hvernig það kom til að hann fór að hjóla og keppa og er tekinn áður en hann gekk til liðs við JGR Yamaha fyrir komandi supercross tímabil.  Svo sem enginn ný sannindi þarna en alltaf gaman að sjá þennan dreng hjóla þó hann hafi stundum aðeins villst af leið.  Sumir eins og t.d. J-Law hefur verið elskaður fyrir það á meðan James Stewart hefur fengið bágt í skóginn en það fara svo sem ekki margir í skónna hans J-Law.  Hér er svo sjálft myndbandið.

Published in Supercross

Steven Frossard er greinilega að ná sér að fullu eftir meiðslin sem hann varð fyrir síðasta haust og nú er svo komið að hann er búinn að leggja heimsmeistarann sjálfann að velli í þremur keppnum í röð í ítalska meistaramótinu og er þar með á góðri leið með að halda titli sínum sem Ítalíumeistarinn í MX1.  David Philippaerts er einnig allur að koma til og varð hann annar í báðum moto-inum.  Greinilegt að þeir félagar eru að finna sig vel á Yamaha YZ450F hjólinu enda báðir á sömu tegund frá í fyrra.  Christophe Charlier gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði í MX2 með miklum yfirburðum á nýja Yamaha YZ250FM sem er hjól með beina innspýtingu og því miður ekki í boði fyrir almenning ennþá.  Varð hann jafnframt sjötti í "Elite" hópnum þar sem MX1 og MX2 eru keyrði saman í einu og síðasta moto-i dagsins.  En það gekk vel hjá Yamaha á fleiri vígvöllum en á Ítalíu og í Ameríku þar sem liðsfélagarnir James Stewart og David Millsaps voru eitt og tvö í 450 flokknum í Daytona supercrossinu.  Sigraði Zach Osbourne í Englandi í MX2 og nýr liðsfélagi hans varð annar en þessir tveir þurfa að hafa augun á Arnaud Tonus sem sigraði í fyrsta moto-inu og því síðasta en lauk ekki keppni í moto-i tvö en endaði samt fjórði í það heila.  Er það álit manna í Englandi að hann sé sá sem menn þurfa að sigra í MX2 og leiðir hann stigakeppnina til meistara í Englandi.  Þessir kappar eru allir á Yamaha YZ250F.  Kevin Strijbos greinlega að finna sig vel á Suzuki hjólinu og sigraði í MX1 í breska Maxxis mótinu.  En það var líka keppt í Hollandi þar sem Joe Roleants, liðsfélagi Jeffrey Herlings í Red Bull KTM, sigraði í MX2 í sandkeppni.  Jeffrey Herlings þurfti að fara inn með ónýta gjörð í fyrsta moto-inu en náði samt að vinna sig upp en ógjörniningur fyrir hann að sigra fyrir vikið í það heila.  Evgeni Bobryshev sigraði í MX1 í sömu keppni þrátt fyrir að vera lasinn.  Hér er svo nokkur myndbönd frá Ítalíu og Hollandi.

Published in Motocross
Monday, 27 February 2012 16:23

Zach Osborne #338 - alltaf flottur

Þetta verður líklegast síðasta árið sem við Evrópubúar eigum eftir að sjá þennan keppa á gamla meginlandinu og miklar líkur eru á því að hann hverfi aftur heim til Bandaríkjana eftir komandi sumar sökum góðrar frammistöðu í AMA Supercrossinu þar sem meir en minni líkur eru á því að hann fari á samning þar.  En Zach Osborne hefur keppt á meginlandinu í FIM mótaröðinni í að verða þrjú ár við ágætan orðstír.  Hann slasaðist vísu síðasta sumar og varð að hætta frekari keppni nánast áður en keppnistímabilið byrjaði en hann sýndi það í AMA Supercrossinu að hann er tilbúinn í slaginn á ný þar sem hann stóð sig með miklum ágætum.  Hann er einn af bestu fimm keppendum að mínu mati í MX2 flokknum í ár og gæti hæglega með smá heppni staðið uppi sem MX2 meistari í FIM mótaröðinni.  Zach Osborne gerir sér grein fyrir að líklegast er þetta síðasti séns fyrir hann að klára dæmið í MX2 því hann þarf að fara upp um flokk á næsta ári sökum aldursreglna FIM og það ýtir ennþá frekar undir þær sögusagnir að hann sé á leið heim aftur þar sem hann mun keppa.  En ekki eru sömu aldursreglur í AMA hvað Lites flokkinn varðar en Lites flokkurinn er MX2 flokkur þeirra í AMA og miðast við 250cc hjól.  Zach Osborne er í liði með Arnaud Tonus og saman keppa þeir fyrir Monster Energy Yamaha í MX2.

Published in Motocross

Í dag fór fram stærsta strandakeppni í þolakstri sem fer fram ár hvert á ströndum Frakklands.  Til leiks voru skráðir rúmlega ellefuhundruð keppendur (1100) og þar af margir af frægustu enduroköppum Frakklands ásamt nokkrum af frambærilegustu ökumönnum í motocrossi eins og Tanel Leok og Nicolas Aubin.  Motocross ökumenn hafa í auknu mæli farið að taka þátt í þessari keppni og vann Steve Ramon hana á síðasta ári.  Aðstæður voru með þær allar erfiðustu sem skipuleggjendur keppninnar hafa nokkurn tímann upplifað en vetur konungur hefur heldur betur hafið innreið sína í Evrópu og snjóaði t.d. í fyrsta sinn í Róm í tæp þrjátíu ár og var Frakkland ekki undanskilið af því.  Var um 12-15 cm metra snjór yfir brautinni þennan morgun og var mikil ráðstefna um það hvort það ætti að halda keppnina en að lokum tóku skipuleggjendur ákvörðun um að láta keppnina fara fram þrátt fyrir kuldann og að brautin yrði að öllum líkindum harðari en keppendur ættu að venjast.  Hægt var að fylgjast með keppnina á netinu og var hreint út sagt magnað að sjá ræsinguna þegar um ellefuhundruð keppendur lögðu af stað í einu eftir fjörunni og fljólega var ljóst að um helmingur keppenda hafði ekkert í þetta að gera eins og venjulega og voru þeir hreinlega fyrir.  En það er hluti af skemmtanagildi keppninnar og er ótrúlegt að sjá þá sem eru í toppbaráttunni þræða í gegnum aðra keppendur sem sitja pikkfastir í sandinum.  

Sigurvegari keppninnar var enginn annar en Jean-Claude Mousse sem er fertugur fransmaður og sigraði síðast árið 1999.  Jean-Claude Mousse keppti að þessu sinni á Yamaha YZ450F hjólinu og var hann í harðri baráttu við motocross ökumennina Nicolas Aubin og Tanel Leok en hafði betur þrátt fyrir að hafa verið keyrður niður einu sinni, dottið einu sinni hressilega og fengið Nicolas Aubin ofan á sig í þokkabót.  En Jean-Claude Mousse hafði betur á Yammanum og að vonum mjög sáttur við sigurinn.  Nicolas Aubin varð í öðru sæti og Tanel Leok varð í þriðja sæti og greinilegt að motocross ökumenn eru farnir að setja æ meira mark sitt á þessa keppni.

Published in Enduro

Þá er Dakar rallýinu lokið og í raun lauk það á mánudaginn.  Ég hef ekki flutt daglegar fréttir af Dakar rallýinu þó svo að ég hafi fylgst með því á hverjum degi og stafar það einfaldlega af tómri léti.  Keppnin í ár var eins og ævinleg nokkuð hörð en fljótlega varð ljóst í hjólaflokknum að baráttan myndi standa á milli Cyril Despres sigurvegara frá árinu 2010 og Marc Coma sigurvegara frá í fyrra, báðir á KTM.  Sá sem var næstur þeim var Helder Rodrigues á Yamaha sem endaði í þriðja sæti eins og í fyrra.  Cyril Despres og Marc Coma voru í raun í algjörum sérflokki en lentu þó í ýmsu eins og aðrir keppendur.  Helsti munurinn á þeim og öðrum var þó að þeir virtust villast minnst af þeim sem kepptu.  Cyril Despre sigraði með um klukkutíma forskot og tæplega19 mínútna betur á Marc Coma og var heildartíminn hans 43:01:54.  Marc Coma var á 44:21:31 og Helder Rodrigues sem varð þriðji var á 44:39:28.  Hér fyrir neðan má sjá samantekt frá keppninni í ár, en ég naut þess að geta séð þetta á EuroSport á hverju kvöldi góða samantekt eftir hvern dag.  Fyrir neðan má svo sjá atvikið þegar Cyril Despres endastakkst þegar jarðvegurinn var eitt drullusvað og í kjölfarið koma Helder Rodrigues sem gerði sömu mistök.  

Þessi keppni er ekkert grín og því miður slasast fjöldinn allur af keppendum í þessari keppni og eru iðulega afföll í mótorhjólaflokknum.  Fyrir neðan samantektina er svo krössin hjá Ike Klaumann sem meiddist mjög illa og þar fyrir neðan Quin Alxis Cody.

Hér er svaðalegt atvik þegar Ike Klaumann fer fram fyrir sig og varð úr leik.  En ökumenn eru að keyra á rúmlega 100 km/klst og síðan fá þeir hjólið ofan á sig sem getur verið hátt í 150-160 kg. og er það ekkert grín.  Það þarf ekki að taka fram að Ike Klaumann varð úr leik við þetta krass.

Hér má svo sjá þegar Quin Alexis Cody fór hressilega á granirnar og hefur þetta ekki verið gott.  Hann þurfti að hætta keppni eins og gefur að skilja.

 

Published in Enduro
Page 1 of 5