Í dag fór fram fyrstu umferðin í Suzuki bikarmótaröðinni en þetta er hluti af þriggja móta röð. Eins og svo oft hefur komið fram hér á síðunni að þá hefur brautin farið í gegnum töluverðar breytingar og var þetta fyrsta mótið sem haldið var eftir þær breytingar. Ágætis mæting var í keppnina og voru rúmlega fimmtíu keppendur sem skráðu sig til leiks. Keppnin gekk nokkuð snurðulaust fyrir sig fyrir utan að keppnisdagskráin þarfnast lítilsháttar lagfæringar og verður því kippt í liðin fyrir næsta mót. Að vísu lenti Daði "Skaði" Erlingsson í leiðindaatviki sem gerði það að verkum að hann varð að hætta keppni í síðasta moto-inu þegar handleggurinn á honum lendir á milli afturdekks og afturbrettis á hjólinu hans Guðbjarts Magnússon. Þetta tilvik var hreint og klárt slys og því miður meiddist Daði eitthvað og nú er spurning hvaða áhrif þetta hefur á kappann í sumar sem hefur byrjað ágætlega það sem af er og sérstaklega í enduro-inu. Þið getið séð atvikið þegar handleggurinn verður á milli á myndinni hér fyrir ofan og dró ég rauðan hring í kringum þetta en hann hefði mátt vera breiðari. Nokkrir nýliðar skráðu sig til leiks og var það virkilega gaman að sjá þessa kappa stíga á stokk og voru margir þeirra betri en enginn. Nú þyrfti að koma þessum köppum í B-keppnina í Íslandsmeistaramótinu og þá værum við komnir með fjölgun þar. Þau voru einhverjir sem hefðu viljað taka þátt sem skráðu sig ekki þar sem þeir vildu geta valið á milli þess hvort þeir fóru í Pro A flokk eða Pro B flokk. Þetta fyrirkomulag á keppni, þ.e. að tímataka ráði niðurröðun keppenda er þó alþekkt og þannig virkar það að ef keppendur komast ekki í gegnum niðurskurð að þá eru þeir úr leik (bestu tímar ráða vali á ráslínu). Nýji kaflinn í brautinni var nokkuð mjúkur eins og gefur að skilja eftir svona framkvæmdir og varð nokkuð þungur yfirferðar þegar á leið.
Ég er ekki með nöfn þeirra sem kepptu í nýliðaflokknum og get ég því miður ekki sagt nöfn þeirra hér eins og er, en hægt er að sjá þá sem hlut áttu að máli í myndunum sem komnar eru inn á síðuna og hægt að skoða þær allar með að smella hér. Í 85cc flokki sigraði Þorsteinn Sigurðsson eftir mjög flottan akstur. Hlynur Hrafnkelsson varð annar og Óliver Ö. Sverrisson varð þriðji. Í kvennaflokki var það Bryndís Einarsdóttir sem dómineraði nokkuð og sigraði örugglega en hörkukeppni var á milli hennar og Þorsteins Sigurðssonar í síðasta moto-inu þar sem kvenna og 85cc flokkurinn var keyrður saman. Aníta Hauksdóttir varð önnur og Karen Arnardóttir varð þriðja.
Í Pro B var það enginn annar en Gunnlaugur R. Björnsson eða sá sem við þekkjum sem Gulli endurobúðingur "Sonax" sem sigraði. Gulli var svo spenntur að taka þátt í motocrossi að hann mætti einnig á ráslínu í nýliðaflokknum og átti þetta líka glæsilega holuskot. Var ekki annað hægt en að brosa þegar Karl Gunnlaugsson keppnisstjóri veifaði honum eftir þrjá eða fjóra hringi og benti honum á að þetta væri ekki flokkurinn hans. Gerði Gulli "Sonax" mest grín af þessu sjálfur en það verður ekki af honum tekið að hann átti þrusuræsingar í öllum moto-um. Róbert Jónsson varð annar eftir jafnan akstur og Hrafnkell Sigtryggsson varð þriðji en hann tók smá jarðvegssýni í öðru moto-inu. Spurning hvort að Keli hafi verið að leita að hinni fullkomnu mold fyrir Bolaöldu? ![]()
Í Pro A varð það Viktor Guðbergsson sem reyndist hlutskarpastur. Lenti hann í hörkukeppni við Aron Ómarsson og eftir fyrstu tvo moto-in, að þá voru þeir jafnir að stigum eftir að hafa unnið sitt hvort moto-ið en Viktor hafði betur í síðasta moto-inu og landaði sigri. Lykillinn að sigri hans, fyrir utan hraðann, voru störtin sem voru mjög góð hjá honum í dag og var Aron að elta hann nánast allan tímann. Var Viktor virkilega flottur í dag og gaman að sjá að æfingar hans í vetur og keyrsla er virkilega að skila sér. Þetta á örugglega eftir að auka sjálfstraust Viktors í komandi keppnum. Aron varð að sætta sig við annað sætið í dag. Í þriðja sæti varð Ingvi B. Birgisson sem var í hörku baráttu við Bjarka Sigurðsson og var hriklega gaman að fylgjast með þeim í síðasta moto-inu en Ingvi hafði betur og var vel að þriðja sætinu komin.
Að lokum var klúbburinn með happdrætti þar sem í verðlaun var árskort í brautina og komu þeir til greina sem skráðu sig í keppnina. Daði, Bjarki og Silja urðu hlutskörpust og geta haft samband við klúbbinn til þess að nálgast árskortin sín í brautina. En eins og ég sagði að þá þótti keppnin heppnast ágætlega fyrir utan smá klúður í byrjun með dagskránna.
Ef einhver skyldi finna startsveif í brautinni, að þá myndi ég gjarnan þiggja að viðkomandi hefði samband við mig þar sem sonur minn missti sína í tímatökunni. Hægt er að hafa samband við mig í netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hringja í síma 896-5957. Að síðustu vildi ég þakka fyrir mig og mína og sérstklega keppendum, klúbbnum og Suzuki sem gerði þetta mót að veruleika. Sjáumst hress í næsta Suzuki bikarmóti sem verður í Akrabraut.
Rúmlega fimmtíu keppendur hafa skráð sig til leiks í fyrstu umferð Suzuki bikarmótarðarinnar og er það ágætis skráning, ekki ósvipuð og var í bikarmótið sem haldið var til stuðnings MXON 2011. Það vantar þó á þennan lista þá sem hugsanlega hafa skráð sig í nýliðaflokkinn en það var ekki gert í gegnum vef MSÍ og ef um tíu keppendur hafa skráð sig þar, að þá eru rúmlega sextíu keppenur að fara á ráslínu á morgun. Hægt er að skoða keppendalistann á vef MSÍ með að smella hér. Hvort sem þú ert skráður eða ekki að þá skora ég á þig að koma við á Selfossi á morgun og horfa á skemmtilega keppni þar sem þrjú moto verða hjá hverjum flokk nema nýliðaflokknum. Gera má ráð fyrir töluverðu fjöri þar sem ræsingum hefur verið fjölgað úr tveimur í þrjú en ræsingarnar eru það sem mörgum finnst hvað mest spennandi á að horfa. Dagskráin er eftirfarandi og byrjar ballið kl.10:45:

Um næstu helgi, nánar á laugardaginn 19 maí og verður hægt að horfa á fyrsta moto-ið á netinu á www.allisports.com. Því miður verður núverandi meistari Ryan Villopoto ekki með vegna meiðsla og það á einnig við Chad Reed. Tyle Rattray mun fylla í skarð Ryan Villopoto en þetta eru ansi stórir skór sem hann þarf að fylla í. James Stewart kemur inn í þessa seríu sem hálfgert "wild card". Allir vita að hann er hraður, allir vita að hann geta unnið en allir vita að hann hefur ekki keppt utanhús síðan árið 2008 og þetta er mikla meira "brutal" en supercrossið og tekur meira á líkamlega. Við tegundarskiptin, þ.e. að fara af Yamaha yfir á Suzuki, að þá vonast James Stewart að fá aftur það sjálfstraust sem hann hafði. Hans vegna vona ég að hann hafi rétt fyrir sér og þetta eigi eftir að blása lífi í feril James Stewart. Ef ekki að þá eru margir á því að dagar hans sem súperstjörnu í sportinu sé í raun taldir og hann falli í þann flokk sem heitir "has been". Ég er á því að KTM eigi eftir að vera feykisterkir í ár í AMA Outdoors mótaröðinni þar sem þar er einvalalið ökumanna og aðstoðarmanna sem er stýrt af engum öðrum en Roger DeCoster sem hefur verið valinn liðstjóri MXON liðs þeirra Bandaríkjamanna ár eftir ár. Ryan Dungey er úrræðagóður ökumaður sem skilar alltaf sínu og ungliðarnir Ken Roczen og Marvin Musquin eiga báðir heimsmeistaratitla að baki í FIM mótaröðinni og mun tilfinning er að þeir eigi eftir að blómstra í ár. Ég er einnig viss um að Davi Millsaps eigi eftir að verða "spoiler-inn" í þessari keppni því nú fær hann allt í einu 100% fókus eftir að James Stewart yfirgaf herbúðir JGR. Davi Millsaps er komin með liðsfélaga sem heitir Kyle Regal og er ekki óvanur Yamaha en engu að síður að þá er ljóst að Davi Millsaps er ökumaður númer eitt hjá JGR. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, hér er myndband frá AMA Motocross um komandi tímabil og þarna má heyra álit manna eins og Jeff Emig og Jason Weigand á ökumönnum fyrir komandi tímabil.
Hér er svo "season review" fyrir árið 2011 þar sem byrjað er að tala um 250 flokkinn.
Skráningarfrestur í fyrsta mótið af þremur í Suzuki bikarmótaröðinni rennur út í kvöld kl.21:00, eftir það verður ekki hægt að skrá sig. Keppnin fer fram á fimmtudaginn 17 maí, sem er almennur frídagur, ef fólk skyldi ekki vita það. Skráning er á vef MSÍ, www.msisport.is, fyrir utan þá sem ætla að skrá sig í nýliðaflokk en þá er nóg að senda póst á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Nú eru um þrettán keppendur skráðir og ég hreinlega neita að trúa því að þátttakan verði ekki meiri loksins þegar sett er á laggirnar alvöru bikarmótaröð. Búið er að gera miklar breytingar á brautinni og taka út kafla undir startið sem snýr nú vestur plús að búið er að setja upp ráshlið af dýrari gerðinni, ekki ósvipuð og upp í Bolaöldu fyrir utan að startið er í mold en ekki steypu. Einnig hefur brautin verið lengd nokkuð en við feðgar vorum þarna í gær að skoða aðstæður. Það er fín spá fyrir fimmtudaginn nánast blankalogn og eru hitatölur á uppleið en spáin hljóðar upp á ca 8°C. KOMA SVO!
Við erum kannski ekki mikið að fylgjast með motocrossinu í Ástralíu en hún er vel þess virði að fylgjast með enda hafa komið þaðan ökumenn eins og Chad Reed og Brett Metcalfe. En fjórða umferðin í Ástralska motocrossinu fór fram um helgina og fór hún að þessu sinni í einu sandbraut þeirra Ástrala. Josh Coppins á Yamaha burstaði dæmið enda vanur að keppa í sandinum í Lommel. Annar varð liðsfélagi hans í MX1. Jay Marmont, sem fór yfir á Kawasaki frá Yamaha í vor átti ekki góðan dag og þurfti að hætta keppni vegna hnémeiðsla sem hafa verið að hrá hann upp á síðkastið. Josh Coppins ætlar að keppa í einum til tveimur umferðum í FIM MX GP mótaröðinni og verður spennandi að sjá kappann aftur þar. Josh Coppins leiðir stigakeppni ökumanna í MX1 með yfir 40 stiga forskoti. Liðsfélagið Josh Coppins í MX2, Luke Styke, vann einnig sinn flokk og leiðir stigakeppni ökumanna í MX2. Hér má sjá það helsta sem gerðist í fjórðu umferðinni.
Seint í gær fór fram fjórða umferðin í FIM MX GP mótaröðinni og fór hún fram í fyrsta sinn í Mexíkó. Ekki gekk þessi keppni snurðulaust fyrir sig og á tímabili var hreint út sagt allt í loft upp á milli ökumanna og skipuleggjanda á svæðinu og neituðu ökumenn að taka þátt í undanrásum eða það sem við þekkjum á slæmri íslensku sem "pre-qualifying race". Fóru einunings tveir ökumenn í MX2 flokkinn í undanrásirnar að innfæddum ökumönnum frátöldum og enginn í MX1. Var á tímabili óvíst hvort það yrði keppt yfir höfuð en mér skilst að liðin hafi verið þvinguð til þátttöku með beinum og óbeinum hótunum frá FIM um sektir og meira til. Óstaðfestar fréttir herma að lík hafi fundist við innganginn sem er skelfilegt í sjálfu sér en kemur manni svo sem ekki á óvart þegar Mexíkó á í hlut þar sem glæpagengi virðast ráða lögum og lofum í landinu þar sem svæðisstríð gengja á milli er daglegt brauð með limlestingu fórnarlamba. Ekki góð byrjun á samstarfi FIM og staðarhaldara í Mexíkó en þeir gerðu með sér fimm ára samning. Allt yfirbragð mótsins sýndi að ekki var allt með felldu og ekki nóg með það, heldur var útsendingin frá mótinu ein sú versta í manna minnum í fyrra moto-inu hjá MX2 og engan vegin boðleg fyrir mót af þessari stærðargráðu með beinar útsendingu á netinu og á tveimur sjónvarpsstöðvum á heimsvísu. YoutStream, þeir sem sjá um fjölmiðlahlutann hjá FIM, gáfu mér þá skýringu þegar ég leitaði til þeirra óhress með útsendinguna að vinnuvél hefði tekið í sundur CAT5 tölvukapla og ljósleiðara fyrir fimm kvikmyndatökuvélar og því hefði útsendinginn í byrjun verið eins og hún var. Það lagaðist í síðari moto-inu eftir hlé en engu að síður ekki ásættanlegt að mínu mati. Christophe Pourcel sagði það beint út að þetta hefði verið ein sú allra versta braut sem hann hefði hjólað í á ævinni og hún hefði verið stórhættuleg.
En víkjum að úrslitum, í MX1 sigraði Antonio Cairoli og jók þar með forskot sitt í stigakeppni ökumanna. Það verður ekki af kappanum tekið, hann er algjör snillingur og veit upp á hár hvað hann er að gera. Annar eftir daginn varð Clément Desalle sem var eiginlega mjög ósáttur með sig í lok móts að hafa látið David Philippaerts sigra síðari moto-ið. Þessi sigur David Philippaerts kom honum í þriðja sætið en hann lenti í svaðalegu krassi fljótlega eftir ræsingu í fyrra moto-inu þar sem nokkrir ökumenn og þar á meðal Shaun Simpsons, Steven Frossard o.fl. hættu keppni. David Philippaerts náði að halda áfram og endaði tíundi í forra moto-inu og því var sigur hans í síðari moto-inu ennþá sætari fyrir vikið. Í MX2 var það Jeffrey Herlings sem dómineraði hreinlega og þrátt fyrir gífuryrði Tommy Searl að þá virðist vera fátt í kortunum sem bendir til þess að hann verði ekki heimsmeistari ökumanna. Annar varð Tommy Searl sem var ekki sáttur við sjálfan sig og úrslit dagsins. Í þriðja sæti varð liðsfélagi Jeffrey Herlings, Jeremey Van Horebeek. Michale Leib sem keyrði svo vel í Ítalíu lenti í því að innfæddur ökumaður gerði stór mistök og lenti Michael Leib á honum og varð úr leik það sem eftir var. Er þetta ekki eina tilfellið sem frekar lélegir ökumenn frá Mexíkó voru að gera alls kyns gloríur um alla braut og hreinlega flæktust fyrir en ráslínan hefði verið ansi fáttækleg ef þeir hefði ekki verið til staðar. Þó hefði mátt áætla að þeir hefðu aldrei komist í gegnum niðurskurð ef FIM liðin hefðu verið með fulla liðskipan á svæðinu enda kostnaðurinn að fara til Suður-Ameríku gífurlegur og fullt af liðum sem sátu eftir heima. Hér má sjá það helsta sem fór fram í Mexíkó en þetta er aðalega úr síðari moto-um því gæði myndatöku var svo léleg í því fyrra. Næsta keppni fer fram í Basilíu og var ekki annað að sjá á ökumönnum að þeir væru fegnir að vera á leið frá Mexíkó.
Búið er að opna á vef MSÍ fyrir skráningu í fyrsta mótið af þremur í bikarmótaröð Suzuki en fyrsta mótið fer núna fram í töluvert breyttri braut þeirra á Selfossi, en búið er að lengja hana töluvert ásamt að búið er að setja upp starthlið. Þátttökugjald er 5.000 kr. og þurfa hjól að vera tryggð og á númerum til að geta tekið þátt. Almennar keppnisreglur MSÍ gilda í þessari keppni og ef þú átt ekki tímamælir, að þá er hægt að leigja hann hjá Nitró. Boðið er upp á "Nýliðaflokk" og er það flokkur fyrir þátttakendur sem aldrei hafa keppt í Íslandsmeistaramóti en vilja prófa að keppa til að fá tilfinningu fyrir því hvernig það er. Hægt er að skrá sig í þann flokk með að senda póst í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Koma þarf fram nafn, kennitala og hjólastærð og þú ættir að fá svar um hæl yfir reikningsupplýsingar til að greiða þátttökugjaldið en þátttökugjaldið er það sama. Þeir keppendur sem skrá sig í nýliðaflokk þurfa ekki að leigja sér senda þar sem talið verður í stað þess að nota senda MSÍ enda er tilgangurinn með þessum flokki fyrst og fremst að veita þeim sem hafa ekki keppt áður tækifæri á að taka þátt í svona viðburði.
Það þarf vart að taka það fram að þetta er ein besta æfing sem væntanlegir keppendur í Íslandsmeistaramótinu geta fengið því Selfoss er á keppnidagatali MSÍ í ár, fyrir utan að aðalverðlaunin eru glæsileg í "Pro" flokknum. Einnig verða góð aukaverðlaun í boði. Ungmennafélagið ætlar að gefa þrú árskort í brautina og verður dregið úr nöfnum þeirra sem eru þátttakendur í bikarmótinu. Veðurspáin fyrir fimmutdaginn 17 maí, sem er almennur frídagur, er hreint út sagt ágæt þó svo að við hefðum hugsanlega viljað sjá hitastigið lítið eitt hærra. En gert er ráð fyrir að það verði léttskýjað, blankalogn og sex stiga hita.
Sett hefur verið á laggirnar ný bikarmótaröð í samvinnu við Suzuki umboðið á Íslandi sem verður í formi stigakeppni. Keppt verður í þriggja móta röð og eru glæsileg aðalverðlaun í boði og má þar fyrst og fremst nefna keppnisstyrkur frá Suzuki fyrir allt árið 2013 ásamt því að veitt verða verðlaun í öllum mótunum frá Suzuki. Til þess að eiga möguleika á þessum glæsilega aðalvinning þarf viðkomandi að vera efstur að stigum í Pro flokki í lok sumars. Suzuki blæs til þessara mótaraðar í samvinnu við þrjá klúbba og eru það VÍFA upp á Akranesi, UMFS á Selfossi og MotoMos í Mosfellsbæ. Fyrsta keppnin mun fara fram á Selfossi þann 17 maí næstkomandi og er verið að undirbúa opnun á skráningu á vef MSÍ. Öll skráning mun fara í gegnum vef MSÍ, www.msisport.is, og þurfa keppendur að eiga senda til að geta tekið þátt þó með einni undantekningu. Boðið verður upp á "Nýliðaflokk" þar sem aðilar geta komið sem svo sannarlega hafa ekki keppt áður og fengið að taka þátt í því skyni að kynnast því hvernig er að keppa. Fyrir viðkomandi er nóg að senda póst á eitt ákveðið netfnag og verður netfangið auglýst síðar. Þessi flokkur verður ekki keyrður ef þátttaka verður undir tíu keppendur í hverri keppni en þetta er liður Suzuki og klúbbana í að reyna að fá nýliða til að prófa að keppa. Lágmarksstærð hjóla í "Nýliðaflokkinn" er 125cc tvígengis eða stærri og er keyrt í 2 x 10 mínútur plús tveir hringir. Í stað þess að nota tímamæla í þessum flokki að þá verður talið. Af öðrum flokkum er að frétta að keppt verður í MX kvenna ásamt 85cc og svo Pro flokk sem mun skiptast í A og B flokk. Mun tímataka ákveða hvort viðkomandi er A eða B ökumaður en flokkarnir verða ekki keyrðir saman heldur í sitt hvoru lagi. Hröðustu 25 keppendur munu skipa Pro A flokk og hinir sem eru með lélegri tíma í tímatöku en hröðustu 25 fara í Pro B flokk. Keyrt verður í 3 x 15 mínútur plús tvo hringi. MX Kvenna og 85cc verður keyrður saman og munu þau keyra 3 x 10 mínútur plús tvo hringi en veitt verða verðlaun fyrir sitt hvorn hópinn, þ.e. sérverðlaun í MX kvenna og sérverðlaun í 85cc. En annars lítur þetta svona út.
Almennar keppnisreglur MSÍ munu gilda og þurfa hjól að verða tryggð og á númerum til að geta tekið þátt. Suzuki umboðið og klúbbarnir sem að þessu koma áskilja sér rétt til breytingar á keppnisdagskrá eftir því sem þurfa þykir. Keppnisgjald er 5.000 kr. og mun öll skráning fara í gegnum vef MSÍ eins og áður hefur komið fram. Ekki verður endurgreitt ef keppandi mætir ekki eða getur ekki tekið þátt heldur mun keppnisgjaldið þá renna til uppbyggingar á svæðum félagana.
Eins og áður hefur komið fram að þá er þrjú moto og telja þó öll til stiga. Stigagjöf er með sama fyrirkomulagi og á Íslandsmeistarmótinu í motocrossi. Sá sem er efstur að stigum að þremur mótum liðnum í Pro A flokki fær að launum styrktarsamning frá Suzuki umboðinu fyrir allt keppnistímabilið 2013 og innifalið í því er afnot af nýju Suzuki motocrosshjóli að eigin vali til æfinga og keppni á því tímabili ásamt keppnisgalla og ýmsum öðrum fríðindum. Þannig að til mikils er að vinna fyrir þann sem hreppir hnossið enda ekki um dónalega hjól að ræða.
Sem sagt fyrsta mótið fer fram þann 17 maí í glæsilegri og stækkaðri braut UMFS á Selfossi. Næsta keppni fer fram 23 júní í endurbættri braut VÍFA upp á Skaga (Akrabraut) þar sem búið er að setja upp starthlið og meira til. Síðasta keppnin fer síðan fram í MotoMos og miðað við núverandi dagskrá að þá gerum við ráð fyrir að hún fari fram 18 ágúst þar sem aðalverðlaunin verða veitt. Þessi dagsetning gæti breyst eithvað en þá verður það auglýst mjög ítarlega. Sem sagt keppnirnar munu raðast þannig:
Keppnisdagskráinn er tilbúinn en hægt er að niðurhjala henni neðst í þessari frétt. Hún er þó birt með fyrirvara og gæti tekið breytingum á næstu dögum. Einnig munum við birta ítarlegri upplýsingar um keppnina sjálfa. Nú er bara að fara að æfa sig og ljóst að það er nóg um að vera í þessu sporti á Íslandi...
Síðasta laugardag fór fram fyrsta umferðin til Íslandsmeistara í motocrossi. Mikil spenna var fyrir mótið og það af tvennum ástæðum. Í fyrsta lagi var búið að fjölga umferðum úr fimm í sex og var tímabilið að byrja allt af því mánuði fyrr en venjulega og lék mönnum forvitni á að sjá hvernig menn kæmu undan vetri því undirbúningur var styttri. Í öðru lagi var Aron Ómarsson að snúa aftur á ráslínu eftir árs fjarveru og hlökkuðu margir til að sjá hann og Eyþór Reynisson Íslandsmeistara í MX2 og MX Open eigast við í ár. Keppnin fór fram í Bolaöldu og voru aðstæður hreint út sagt ágætar þó hálf kalt hafi verið í veðri framan af þar sem norðanáttin gældi við kinnar með sínum kalda kossi. Það voru þó óvenju mikið af afföllum af ökumönnum í keppninni og meiddust um sex ökumenn og sumir nokkuð alvarlega. Er þetta með hæsta móti frá því að ég fór að fylgjast með þessu og meðal þeirra sem þurftu á aðhlynningu að halda voru Friðgeir Guðnason sem fór í aðgerð í morgun vegna óvenjulegs viðbeinsbrots, Tedda sem rifbeinsbrotnaði á tveimur og meira til og svo Eyþór Reynisson sem laskaðist verulega á öxl en er ekki brotinn að sögn lækna. Já, við Íslendingar virðumst ætla að taka upp ósiði ökumanna í AMA Supercrossinu í ár og hefja sumarið með stæl, alla vega hvað meiðslalistann varðar. Hvað sem olli því, að þá vona ég að þessu sé hér með lokið í ár og fleiri ökumenn falli ekki frá keppni vegna meiðsla.
En víkjum að keppninni sjálfri.
MX kvenna: Bryndís Einarsdóttir kom, sá og sigraði hjá skvísunum. Signý Stefánsdóttir átti þrusustart í báðum moto-um en tók því miður of oft jarðvegssýni úr Bolaöldu, vissi ekki að hún væri komin með nýja söfnunaráráttu, og fyrir vikið missti hún Bryndísi frá sér og gat ekki veitt henni þá keppni sem þurfti. Alla vega í fyrra moto-inu. Það verður ekki af Bryndís tekið að hún keyrði KTM 125-una fanta vel en það hefði verið skemmtilega ef Signý hefði ekki þurft að falla við og veitt henni þá keppni sem hefði kætt okkur áhorfendur. Kannski næst, hver veit. Karen Arnardóttir, núverandi Íslandsmeistari, var ekki með sökum meiðsla á hendi sem hún varð fyrir á æfingu rétt fyrir mót einmitt í Bolaöldu en í staðinn sveiflaði hún pylsum og gosi í takti við GusGus sem hljómaði ótt og títt í hátalarkerfinu þennan dag. Einnig keyrði Aníta Hauksdóttir vel og skilaði það sér í því að hún varð í öðru sæti eftir daginn. Úrslit dagsins voru þá þannig að Bryndís Einarsdóttir sigraði, Aníta Hauksdóttir varð önnur og Signý Stefánsdóttir varð þriðja. Vinkonurnar og hefðarfrúrnar Björk og Tedda í áttu ekki góðan dag. En eins og að framan var greint, að þá lenti Tedda því miður í því að detta illa eftir að ökumaður fellur fyrir framan hana með. Bína fer í aðgerð á hendi á morgun og verður frá í einhvern tíma.
Það atvik átti sér stað að einn ökumaður tók framúr þegar verið var að sinna Teddu út í braut og það þrátt fyrir að veifað væri gulu flaggi. Fyrir vikið að þá var þátttaka hennar dæmd ógild í umræddu moto-i og fékk hún enginn stig. En til áréttingar fyrir þá sem ekki vita að þá er stranglega bannað að taka framúr á gulu flaggi og sérstaklega þegar verið er að sinna slösuðum ökumanni út í braut. Einnig ítreka ég það fyrir ökumönnum að passa að skipta ekki um línu á palli, eða með öðrum orðum halda þeirr akstursstefnu sem þú hefur þegar þú kemur á pallinn. Allt annað skapar mikla hættu og getur valdið því að hraðari ökumaður getur lent í því að stökkva beint á þann sem er fyrir framan þar sem sá skipti um línu upp á palli við lendingu eða skipti um línu í lofti. Tvær vinkonur lentu saman á stóra pallinum í síðari moto-inu sem endaði á þann veg að önnur þeirra fer fram af pallinum sunnan meginn (þar sem er brattara og fjarri áhorfendum). Var það mikil mildi að ekki fór verr hjá henni og þótti það undrum sæta þegar hún komst hjálparlaust upp og hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist. Já, lukkudísirnar voru svo sannarlega með henni í för í þetta skiptið.
MX 85cc: Tveir ökumenn voru í algjörum sérflokki þennan dag og það voru þeir Hlynur Hrafnkelsson og Þorsteinn Sigurðsson sem stungu aðra keppendur af og hengju límdir við hvorn annan frá fyrstu beygju og allt til loka. Voru þeir að keyra á hörkutíma, eða á 2:09 hringinn sem var sami hraði og margir í MX unglinga voru að keyra á. Hlynur hafði betur og leiddi alla hringi frá ræsingu allt til enda með Þorsteinn andandi í hálsmálið á sér allan tímann. Oft munaði mjóu og sérstaklega í fyrra moto-inu þegar Þorsteinn var ansi nálægt því að ná framúr en Hlynur var með stáltaugur og hafði betur. Hrikalega flottur akstur á þessum piltum. Sá ökumaður sem hafði vonast eftir að geta blandað sér í topp baráttuna með þeim tveim, Óliver Örn Sverrisson er búinn að eiga í lítilsháttar vélarbilun síðustu daga sem gerir það að verkum að hjólið vinnur ekki upp á snúning og því varð hann að horfa á eftir þeim tveimur strax eftir fyrstu beygju. Óliver varð þó nokkuð öruggur í þriðja sæti eftir daginn þrátt fyrir að sárlaga vantaði upp á vinnslu í hjólinu. Sem sagt Hlynur Hrafnkelsson sigurvegari dagsins, Þorsteinn Sigurðsson í öðru sæti og Óliver Örn Sverrisson í þriðja sæti. Það er ljóst að þessi flokkur á eftir að verða spennandi í sumar ef þetta heldur áfram sem horfir.
Veitt voru verðlaun fyrir 85cc yngir ins og venjulega og var Kári Tómason hlutskarpastur af þeim ökumönnum. Davíð N. Ragnarson, sonur Ragga heimsmeistara, varð í öðru sæti og Sebastian G. Arnfjörð Vignisson varð þriðji. Sárlega vantar meiri nýliðun í sportið og er þessi flokkur með minnsta móti sem hlýtur að vera áhyggjuefni hjá MSÍ.
MX unglinga: Þessi flokkur var spennandi eins og alltaf og var Guðbjartur Magnússon sem var með góðar ræsingar. En fljótlega sýndi Ingvi B. Birgisson hvað í honum bjó og keyrði hreint út sagt frábærlega til sigurs. Þessi gaur er súper "smooth" og hrein unun að horfa á kvikindið keyra. Það virkar allt svo átakalaust. Þeir Guðbjartur og núverandi Íslandsmeistari unglinga, Hinrik Óskarsson, virðist alltaf finna leið til að finna hvorn annan og berjast. En þessi háttur hefur verið á síðan þeir kepptu í 85cc flokknum. Er þetta svona svipað og þegar James Stewart og Chad Reed virðist fyrir einhverja hluta sakir alltaf finna hvorn annan út í braut til að berjst sín á milli. Já, það er eitthvað sem dregur þessa tvo saman. Að þessu sinni hafði Hinrik betur en hafði ekki svar við hraða Ingva og varð að sætta sig við annað sætið í fyrsta móti ársins. Í sjálfu sér ekki slæm úrslit en greinlegt að pilturinn vildi meira. Guðbjartur Magnússon endaði þriðji eftir daginn og ljóst að þessir þrír eru sér á parti í ár. Sá ökumaður sem hefur tekið hvað mest framförum síðustu ár er Aron Berg Pálsson sem hefur bætt sig mikið á milli ára. Ég man þegar hann byrjaði að keppa og er dagur og nótt á milli þess hvernig hann ók þegar hann tók þátt í fyrstu keppni sinni og til dagsins í dag. "Keep up the hard work, Aron".
Veitt voru verðlaun fyrir yngri flokk ökumanna í MX unglinga og að þessu sinni var bara einn ökumaður sem uppfyllti þau skilyrði en það var hann Ísak F. Hilmarsson.
MX-B: Þessi flokkur er orðin hrikalega stór og þetta er andskotans ekki orðin neinn B-flokkur lengur... Þið fyrirgefið orðbragðið. Þetta er sannkallaður hetjuflokkur sem skartar mörgum af betri ökumönnum landsins. Þessi flokkur er keyrður með 40+ flokknum og þegar hópurinn er komin saman í einn flokk á ráslínu að þá er þetta sannarlega hetjuflokkur enda þarna eru ökumenn sem keppt hafa óslitið nánast í tugi ára eins og t.d. Raggi heimsmeistara, Reynir Jónsson, Haukur Þorsteinsson svo einhverjir séu nefndir. Fyrir vikið að þá er orðið hriklega gaman að horfa á þennan flokk en ég man þá tíð þegar ég vildi þennan flokk burt út Íslandsmótaröðinni og taldi að hann ætti betur heima í bikarmótum. Well... Ef hann væri ekki til staðar í dag, að þá væri keppnin af fátækleg og hátt í þrjátíu ökumönnum fátækari. Ég er alla vega hæstánægður í dag að þessi hópur ökumanna er með í Íslandsmeistaramótinu enda litríkir karektarar þarna á ferð sem flestir hafa gott af að kynnast. Í B-flokknum undir 40 ár að þá sigraði Atli M. Guðnason, Jóhann S. Gunnarsson varð annar og Michael B. David varð þriðji en hann tók góða dýfu í fyrstu beygju ásamt Robert Knasiak. Í flokki heldri manna, að þá sigraði Ragnar I. Stefánsson örugglega, Reynir Jónsson varð annar og Haukur Þorsteinsson varð þriðji. Já, að horfa á verðlaunapallinn í þetta skipti var eins og "flash back" til ársins 1990 eða eitthvað álíka :)
MX2: Eftir nokkra hringi í þessum flokki var ljóst að núverandi Íslandsmeistari Eyþór Reynisson myndi ekki skora hátt í þessu móti þar sem hann endaði í sjúkrabíl með laskaða öxl og varð því með DNF (Did Not Finish) í mótinu. En Ingvi B. Birgisson og Hinrik Óskarsson tóku einnig þátt í MX2 flokknum og að mínu mati er það ákveðið þrekvirki sem ég mæli ekki með að menn geri nema þeir hafi styrkleika og getu til. En viti menn, Ingvi B. Birgisson gerði sér lítið fyrir og sigraði í þessum flokki og vann því tvöfalt þennan dag. Annar varð Hjálmar Jónsson en ég var alltaf að spá í að mér fannst eitthvað öðruvísi við Hjámar í mótinu og síðan komst ég að því í lok dags að það var að hann var að keyra á 250F hjóli og tók þátt í MX2. Þá varð það bara einfaldlega það, var orðin vanur að sjá piltinn á 450 hjóli. Í þriðja sæti varð Kjartan Gunnarsson sem fór einu sinni hressilega fram fyrir sig og var þar með í hóp þeirra sem tók góða dýfu í þessari keppni. En Kjartan varð ekki meint af, sem betur fer.
MX Open: Þegar Eyþór Reynisson féll og varð að hætta keppni varð ljóst að ekki yrði sú keppni þennan dag á milli hans og Aron Ómarssonar sem var að hefja keppni aftur. En sem betur fer fyrir áhorfendur að þá var þetta ekki alveg spennulaust og var Viktor Guðbergsson ekkert á því að láta Aron taka öll stiginn heim. Aron sigraði fyrsta moto-ið en Viktor gerði sér lítið fyrir og hafði betur í síðari moto-inu og stóð uppi sem sigurvegari dagsins í MX Open. Var virkilega gaman að sjá keppnina í þessum flokki og fannst mér hann skemmtilegri að horfa á en oft áður og mikil barátta á milli ökumanna. Kári Jónsson endaði þriðji eftir daginn eftir jafnan og góðan akstur en mér skilst að hann hafi hreinlega verið búinn á því í lokin. Sem sagt Viktor Guðbergsson endaði fyrstur eftir daginn, Aron Ómarsson annar en á jafn mörgum stigum og Viktor og Kári Jónsson þriðji.
Það er ljóst eftir þetta fyrsta mót að það verður spenna í nánast öllum flokkum. Enginn virðist ætla að geta gert tilkall til þess að labba með þetta heim og verð ég að segja að byrjunin lofar góðu þó svo að ég hefði gjarnan viljað vera án þeirra meiðsla sem ökumenn urðu fyrir í fyrsta móti ársins. Vill ég þakka VÍK fyrir að taka keppnina að sér með svona litlum fyrirvara sem og öllum keppendum sem tóku þátt því án þeirra væri ekkert Íslandsmeistaramót. Get varla beðið eftir næsta móti og er ekki frá því að ég er bara nokkuð spenntur fyrir sumrinu. Hvað myndir varðar að á tók ég slatta af myndum en þær voru aldrei þessu vant slitróttari en nokkrum sinni áður og verð ég að segja mér til afsökunnar að þennan dag varð ég að sinna óvenju miklu mekkastarfi, hlut sem ég hef ekki þurft að hafa mikið fyrir síðustu ár og hef ég því haft þann lúxus að geta vafrað um svæðið og tekið myndir í gegnum tíðina. Hægt er að skoða myndirnar frá mér með að smella hér en það vantar inn í myndirnar allan MX Unglinga og einnig B-flokk af framangreindri ástæðu. Biðst ég forláts á því. Ég tók upp eitthvað myndaband af síðari moto-inu í MX Open sem ég mun birta fljótlega á síðunni. Maður mótsins var að mínu mati Ingvi B. Birgisson sem sigraði bæði MX unglinga og MX2.
Þá er það loksins orðið opinbert sem flestir hafa vitað að James Stewart hefur verið leystur undan samningi sínum við JGR Yamaha og þar með eru Nascar draumar hans líka líklegast úr sögunni. Verður hann nýji liðsfélagi Brett Metcalfe sem allt í einu verður að sætta sig við að verða ökumaður númer tvö hjá liðinu því James litli þarf sitt og verður númer eitt. Það er ekkert launungarmál að dramadrottning 2012 tímabilsins það sem af er, er enginn annar en James "Bubba" Stewart sem hefur ekki fundið sig í ár og margir vildu meina að hefði valið JGR liðið út af Nascar möguleika og peningum. Nú er það á enda og hvað sem pilturinn tekur sér fyrir hendur, að þá vona ég að hann finni sig á ný á Suzuki því þetta er með flottari ökumönnum í bransanum og yrði mikil eftirsjá af honum ef hann skyldi taka upp á því að fara að fjara út núna. Ekki það að nóg er til af hæfileikaríku fólki en það er eitthvað extra við James Stewart á hjóli hvort sem þú ert aðdáandi hans eða sá sem leggur hvað mest fæð á hann. Hann hefur þetta það sem Simon Cowel myndi segja, "X-factor". Hér er myndband sem tekið var heima hjá honum og er hann mjög flottur á súkkunni. Já, James litli keypti sér allar tegundir sjálfur til að prófa og virðist hafa fílað sig vel á Suzuki hjólinu. Dæmi hver fyrir sig en mér finnst hann súper "smooth" í þessu myndabandi og nú óskar maður honum bara alls hins besta í framtíðinni.
http://www.redbullusa.com/cs/Satellite/en_US/Video/james-stewart-new-suzuki-021243204950407