Sett hefur verið á laggirnar ný bikarmótaröð í samvinnu við Suzuki umboðið á Íslandi sem verður í formi stigakeppni. Keppt verður í þriggja móta röð og eru glæsileg aðalverðlaun í boði og má þar fyrst og fremst nefna keppnisstyrkur frá Suzuki fyrir allt árið 2013 ásamt því að veitt verða verðlaun í öllum mótunum frá Suzuki. Til þess að eiga möguleika á þessum glæsilega aðalvinning þarf viðkomandi að vera efstur að stigum í Pro flokki í lok sumars. Suzuki blæs til þessara mótaraðar í samvinnu við þrjá klúbba og eru það VÍFA upp á Akranesi, UMFS á Selfossi og MotoMos í Mosfellsbæ. Fyrsta keppnin mun fara fram á Selfossi þann 17 maí næstkomandi og er verið að undirbúa opnun á skráningu á vef MSÍ. Öll skráning mun fara í gegnum vef MSÍ, www.msisport.is, og þurfa keppendur að eiga senda til að geta tekið þátt þó með einni undantekningu. Boðið verður upp á "Nýliðaflokk" þar sem aðilar geta komið sem svo sannarlega hafa ekki keppt áður og fengið að taka þátt í því skyni að kynnast því hvernig er að keppa. Fyrir viðkomandi er nóg að senda póst á eitt ákveðið netfnag og verður netfangið auglýst síðar. Þessi flokkur verður ekki keyrður ef þátttaka verður undir tíu keppendur í hverri keppni en þetta er liður Suzuki og klúbbana í að reyna að fá nýliða til að prófa að keppa. Lágmarksstærð hjóla í "Nýliðaflokkinn" er 125cc tvígengis eða stærri og er keyrt í 2 x 10 mínútur plús tveir hringir. Í stað þess að nota tímamæla í þessum flokki að þá verður talið. Af öðrum flokkum er að frétta að keppt verður í MX kvenna ásamt 85cc og svo Pro flokk sem mun skiptast í A og B flokk. Mun tímataka ákveða hvort viðkomandi er A eða B ökumaður en flokkarnir verða ekki keyrðir saman heldur í sitt hvoru lagi. Hröðustu 25 keppendur munu skipa Pro A flokk og hinir sem eru með lélegri tíma í tímatöku en hröðustu 25 fara í Pro B flokk. Keyrt verður í 3 x 15 mínútur plús tvo hringi. MX Kvenna og 85cc verður keyrður saman og munu þau keyra 3 x 10 mínútur plús tvo hringi en veitt verða verðlaun fyrir sitt hvorn hópinn, þ.e. sérverðlaun í MX kvenna og sérverðlaun í 85cc. En annars lítur þetta svona út.
Almennar keppnisreglur MSÍ munu gilda og þurfa hjól að verða tryggð og á númerum til að geta tekið þátt. Suzuki umboðið og klúbbarnir sem að þessu koma áskilja sér rétt til breytingar á keppnisdagskrá eftir því sem þurfa þykir. Keppnisgjald er 5.000 kr. og mun öll skráning fara í gegnum vef MSÍ eins og áður hefur komið fram. Ekki verður endurgreitt ef keppandi mætir ekki eða getur ekki tekið þátt heldur mun keppnisgjaldið þá renna til uppbyggingar á svæðum félagana.
Eins og áður hefur komið fram að þá er þrjú moto og telja þó öll til stiga. Stigagjöf er með sama fyrirkomulagi og á Íslandsmeistarmótinu í motocrossi. Sá sem er efstur að stigum að þremur mótum liðnum í Pro A flokki fær að launum styrktarsamning frá Suzuki umboðinu fyrir allt keppnistímabilið 2013 og innifalið í því er afnot af nýju Suzuki motocrosshjóli að eigin vali til æfinga og keppni á því tímabili ásamt keppnisgalla og ýmsum öðrum fríðindum. Þannig að til mikils er að vinna fyrir þann sem hreppir hnossið enda ekki um dónalega hjól að ræða.
Sem sagt fyrsta mótið fer fram þann 17 maí í glæsilegri og stækkaðri braut UMFS á Selfossi. Næsta keppni fer fram 23 júní í endurbættri braut VÍFA upp á Skaga (Akrabraut) þar sem búið er að setja upp starthlið og meira til. Síðasta keppnin fer síðan fram í MotoMos og miðað við núverandi dagskrá að þá gerum við ráð fyrir að hún fari fram 18 ágúst þar sem aðalverðlaunin verða veitt. Þessi dagsetning gæti breyst eithvað en þá verður það auglýst mjög ítarlega. Sem sagt keppnirnar munu raðast þannig:
Keppnisdagskráinn er tilbúinn en hægt er að niðurhjala henni neðst í þessari frétt. Hún er þó birt með fyrirvara og gæti tekið breytingum á næstu dögum. Einnig munum við birta ítarlegri upplýsingar um keppnina sjálfa. Nú er bara að fara að æfa sig og ljóst að það er nóg um að vera í þessu sporti á Íslandi...
Opnað var í gær eftir breytingar í MotoMos og var hreint út sagt ágætis mæting á svæðinu og rúlluðu þarna í kringum 40 hjól í gegn á um þremur tímum. Töluverðar breytingar hafa verið gerða á brautinni og lét fólk almennt vel af þessum breytingum og er brautin orðin mun tæknilegri en hún var. Eins og ég hef sagt áður að þá býður landslagið upp á mjög skemmtileg upp og niðurstökk og hefur verið skerpt á því. Einn pallurinn býður upp á töluverða hæð og var gaman að fylgjast með mönnum eins og Hinrik #60, Daða "skaða" #298 og Ásgeir Elíasson #277 taka þann pall. Við húsið er búið að lengja beygjuna upp með tilheyrandi upp og niðurstökki. Það var ein beygja sem varð vel blaut þegar á leið og fyrir vikið nokkuð trikkí að fara í gegnum. Klúbburinn gerir ráð fyrir ágætis mætingu í kvöld þar sem þetta er eina brautin í 10 mínútna fjarlægð frá borginni sem er opin í kvöld. Hægt er að sjá myndir frá brautinni með að smella hér. Minnum á miða á N1 og að einnig er hægt að kaupa sér árskort í brautina með að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .
Vegna mikillar rigningar í nótt hefur verið ákveðið að fresta opnun MotoMos um sólarhring og verður hún opnuð kl.15 Sunnudag en ekki í dag, laugardaginn 28 apríl.
Síðustu daga hefur brautin hjá MotoMos farið í gegnum miklar breytingar og nú loksins sér fyrir endann á því með opnun brautarinnar á sunnudaginn kl.15. Búið er að bæta við pöllum, færa beygjur, hækka palla, setja upp þvottaaðstöðu og meira til ásamt því að lágmarksbreidd brautarinnar er í það minnsta 6 metrar. Á næstunni stefnir félagið á að helluleggja í kringum húsið ásamt því að sá fræjum á svæðið og gróðursetja tré. Samhliða því kynnir MotoMos nýjan opnunartíma sem mun gilda í sumar og er hann eftirfarandi.
MotoMos býður fólk að virða þessa opnunartíma. Miðar í brautina fæst í N1 í Mosfellsbæ og einnig er hægt að kaupa sér árskort í brautina með að senda póst á netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Vefmyndavélum verða settar upp á næstu dögum til að fylgjast með umferð á svæðinu.
Ein breyting gæti orðið á opnunartímanum í sumar, en hugmyndir eru um að hafa lokaða æfingu eingöngu fyrir félagsmenn MotoMos einu sinni í viku og yrði þriðjudagur líklegast fyrir valinu. Félagsmenn eiga þá að geta komið og hjólað í brautinni undir leiðsögn þjálfara sér að kostnaðarlausu. Fyrirkomulagið verður auglýst nánar síðar.
Því miður að þá hafa óprúttnir náungar tekið upp á þeim ósóma að stela frá klúbbum sem eru nú ekki vel fjáðir og í raun er reksturs nánast allra klúbba í járnum ár eftir ár. Ég veit ekki hvað þessum einstaklingum gengur til en ítrekað hefur verið stolið olíu af jarðýtu félagsins í MotoMos og var það eins og við manninn mælt, að um leið og við birtum myndir af breytingum sem verið er að gera í MotoMos að þá voru þessi skítseiði mættir og stálu rúmlega 100 lítrum af olíu af beltagröfu sem er að vinna á svæðinu. Þannig að það bendir til þess að þessir aðilar séu annað hvort hjólamenn eða hreinlega að þeir fylgjast með síðum félagana til að sjá hvað er í gangi til að stela. Alla vega lyktar það af því hvað MotoMos varðar og nú um daginn var stolið rafgeymi í beltagröfu sem er að vinna við breytingar á brautinni á Selfoss. Þessi búgrein, þ.e. þjófnaður er að valda klúbbunum töluverðu tjóni og töluverðum búsifjum því þeir berjast í bökkum ára á milli að halda úti starfsemi og brautum sem allir vilja að séu í toppstandi en enginn virðist vera tilbúinn að greiða krónu fyrir en hafa allir skoðanir á því hvað betur má fara. Fyrir suma kann fólki þykja það undarlegt að verið sé að væla yfir rúmlega 100 lítrum af olíu eða einum ræfils rafgeymi en þetta kostar allt peninga gott fólk, peninga sem klúbbarnir vildu betur nota í starfsemina í stað þess að vera bæta það tjón sem þessi endurtekinn þjófnaður veldur. Afleiðingarnar eru einfaldlega þær að klúbbarnir geta gert minna fyrir sína félagsmenn en þeir vildu gera fyrir utan að drepa niður áhuga þeirra sem eru að starfa í þessu í sjálfboðaliðastarfi. Þið sem þetta stundið getið varla lagst lægra en með því að stela frá þessum klúbbum. Vona að þið séuð stoltir af afrekum ykkar. Eina leiðin sem virðist vera til að reyna að koma í veg fyrir þetta er að koma upp eftirlitsmyndavélum sem kostar peninga og klúbbarnir vildu frekar nota í annað.
Eins og það hefur líklegast ekki farið framhjá þeim sem eru að hjóla þessa dagana að þá er MotoMos lokuð vegna breytinga. Mikið hefur gerst á síðasta sólarhring og eru þeir Eysteinn, Balli og Þórir hreinlega að fara hamförum þarna upp í MotoMos. Er búið að vera tilfærsla á brautinni frá klöppunum til að koma í veg fyrir steinahrun í brautina fyrir utan að brautin hefur verið breikkuð þannig að hún sé í það minnsta aldrei minni en 6 metrar á breidd. Ekki nóg með það, heldur er verið að færa eina aksturleiðina til og búa til nýtt step up upp eina brekkuna næst húsinu og niður aftur. Þannig að það er helling um að vera þarna og verður gaman að sjá hvernig breytingar koma til með að ganga í fólk. Hér má sjá tilfærsluna sem átt hefur sér stað í dag hér fyrir ofan og eru þessir tappar hreinlega óstöðvandi.
Brautin í MotoMos lokar í dag vegna breytinga. ÖLL UMFERÐ Í BRAUTINNI ER BÖNNUÐ! Stór vinnutæki verða á svæðinu og er ekki hægt að gera það sem þarf að gera ef umferð er í brautinni. Brautin verður opnuð aftur mjög fljótlega og verður það auglýst rækilega þegar af því verður.
Árskortin eru komin í sölu fyrir árið 2012 og marg borgar það sig fyrir hjólandi einstaklinga að kaupa slíkt. Verðskráin fyrir árið 2012 er eftirfarandi:
Til að kaupa árskort þarf að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og Bryndís mun sjá um rest ásamt að upplýsa um reikning MotoMos til að greiða fyrir árskortin.
Félagsgjaldið er 5.000 kr. fyrir einstakling en 8.000 kr. fjölskyldugjald óháð fjölda. Það er hagur fyrir þá sem hjóla að vera félagi og þarf sá sem hefur hug á að keppa t.d. á Klaustri eða í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi eða enduro-cross country að vera skráður félagi í klúbb. Seðlar fyrir félagsgjöldum hafa verið sendir út og stofnast krafa á þá sem eru í heimabanka. Ef breyta þarf í fjölskyldugjald að þá þarf að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og við munum laga það ásamt að upplýsa um reikning til að borga inn fjölskyldugjaldið.
MotoMos er búið að koma upp þvottaaðstöðu og verða tvær háþrýstidælur til afnota fyrir iðkendur í sumar og er ein nú þegar komin í notkun. Lítilsháttar gjald verður rukkað fyrir notkun á dælunum og er það 100 kr. fyrir 5 mínútur og er það gert með að borga í sjálfsala. Er það eingöngu gert til að standa undir kostnaði við dælurnar. MotoMos verður með lokað kvöld einu sinni í viku þar sem félagsmenn geta eingöngu komið og hjólað ásamt að fá leiðsögn hjá þjálfara sér að kostnaðarlausu en þurfa að kaupa miða í braut ef þeir eiga ekki árskort. Nánari upplýsingar um það verða settar á netið þegar það er frágengið og verður það auglýst sérstaklega. Einnig munum við upplýsa ákveðin opnunartíma á brautinni eftir nokkra daga.
Næstu daga verður farið í frekari vinnu á svæðinu og er stefnan sett á að búa til barnabraut fyrir 65/85cc hjól sem verður viðvarandi. Einnig verður sáð grasfræjum í kringum brautina og gróðursett tré. Lítilsháttar breyting verður gerð á aðalbrautinni og verður hún lengd lítillega. Vökvunarkerfið er ekki komið í gang ennþá en um leið og hætta á næsturfrosti er úr sögunni, að þá verður hægt að setja upp búnaðinn og hefja notkun á honum.
MotoMos vill koma því til skila að búið er að laga öll uppstökkinn í brautinni en ákveðið var að láta "röttsana" sem komið hafa í beygjurnar halda sér þar sem almenn ánægju hefur verið með að keyra í braut sem myndast þessar línur. Væri afar skynsamlegt ef fólk labbaði einn hring og týndi grjót úr brautinni og þá væri hún "perfect" fyrir átökin. Muna eftir miðum í brautina á N1.
Hér er smá myndband af Guðna "eltihrelli" að elta Óliver #338 í MotoMos í dag og gefur þetta svona smá innsýn í það hvernig brautin var í dag. Guðni hefur farið svo hratt síðustu daga að ég hef ekki náð að festa hann á filmu og eins gott að hann sé sjálfur með myndavél á hausnum á sér til að taka myndir... ![]()
Fjölskyldan hélt áfram uppteknum hætti og hélt upp á páskana eins og hún hefur gert síðustu ár, þ.e. hjólandi og fórum við upp í MotoMos í dag. Brautin leyndi á sér og var betri en ég átti von á miðað við alla þessa ofankomu og áganginn sem var fyrsta daginn eftir opnun. Vísu var svalara í veðri en verið hefur og fer víst kólnandi næstu daga og eitthvað var vel eftir af pollum hér og þar eftir ofankomuna en engu að síður að þá skemmtu þeir sér sem höfðu fyrir að mæta ágætlega í dag. Brautin er þó mun harðari en á opnunardaginn og væri alveg óvitlaust að labba hring og týna stærstu steina úr. Stefnt er að því að ribba brautina aftur í þessari viku en ekki ennþá ljóst hvenær það verður nákvæmlega. Tók eitthvað af myndum í dag og er hægt að sjá þær með að smella hér. Nú getur maður horft sáttur á FIM mótaröðina á morgun eftir hjólamennskuna síðustu daga.