Þetta kallar maður að gera hlutina með stæl, en ríkisstjórn Belgíu tók þá ákvörðun að styrkja MXON keppnina sem á að fara fram í Lommel í september 2012 um litlar 250.000 EUR sem gera um 40 milljónir króna á núverandi gengi. Þetta er til fyrirmyndar og vonandi búið að að gefa þann tón sem gefa skal þegar kemur að þessari keppni því þetta er jú heimsmeistaramót motorcrossins og má áætla að þarna verði ekki færr en um 60-70 þúsund áhorfendur fyrir utan lið og aðstandendur. Mikil hefð er fyrir motocrossi í Belgíu og er þetta eitt af fáum ríkjum í Evrópu þar sem ökumaður í motocrossi hefur verið kosin íþróttamaður ársins í því landi. Finnar hafa einnig verið duglegir að viðurkenna akstursíþróttir með góðu brautargengi. Með þessum styrk má gera ráð fyrir að keppnin í Lommel verði ein sú glæsilegasta sem menn eiga eftir að sjá, alla vega til dagsins í dag.
Brautin sem Eyþór Reynisson og Guðbjartur Magnússon keppa í heitir víst Angreau en keppnin sjálf er kölluð "Coupe de Lavenir". Keppnin í þessu formi eins og hún er í dag er víst 40 ára gömul og má gera ráð fyrir nokkrum íburði af þeim sökum. Það er ekki eingöngu keppt í MX unglinga í þessari keppni, heldur fer líka fram keppni í 85cc flokki á sama tíma. Þannig að nóg er um að vera í þessa helgi. Í raun skilst mér að hægt verið að keppa líka í 35+ flokki þarna á sama tíma og skilst mér að Reynir Jónsson sé að spá í að taka þátt. Ég fékk upplýsingar um síðuna þar sem hægt er að skoða aðstæður og einnig skoða þau lið sem senda lið í keppnina. Síðan er http://www.coupedelavenir.be/index.php og ef ég skil þetta rétt að þá verður hægt að skoða tímana hjá ökumönnum þarna. Hér má sjá myndbönd frá keppninni þarna síðustu tvö ár og sýnist mér þetta vera mjög flott keppni.
Eyþór Reynisson og Guðbjartur Magnússon munu taka þátt í MXON unglinga fyrir Íslands hönd en þessi keppni fer fram í Belgíu helgina 8 - 9 október. Fleiri Íslendingum var boðið og ég held að Viktor Guðbergsson hafi verið einn af þeim en fer ekki að þessu sinni. Ég hef ekki nánari deili á hvar nákvæmlega þessi keppni fer fram en ég hef þó þær upplýsingar frá Reyni, faðir Eyþórs, að þetta sé um það bil 1 og hálfs klukkutíma fjarlægð frá Lommel. Því miður enginn útsending frá þessari keppni og afar lítið um hana að finna á erlendum netmiðlum, því miður. Ég veit ekki einu sinni hvort hægt verið að fylgjast með tímunum á þeim á meðan þeir keppa en það á eftir að koma í ljós. Mestu máli skiptir að þarna eru góðir ökumann að fá mikla reynslu því þátttaka í svona móti er enginn smá pakki. Ég óska þeim báðum góðs gengis og vona að ég eigi eftir að finna eitthvað bitastæðara um þessa keppni til að upplýsa ykkur um ferð þeirra og sjálfa keppnina. Ég veit þó að fyrirkomulagið er það sama og er í MXON sem við þekkjum og fylgjumst svo mikið með af mikilli áfergju.
Nokkuð vel sett saman myndband sem summar upp á skemmtilegan hátt það sem gerðist þessa helgi í Frakklandi. Hérna eru viðtöl við ökumenn strax eftir að þeir koma inn eftir að hafa keppt. Þarna má sjá mistökin hjá Antonio Cairoli og greinilegt að honum tókst sjálfum að klúðra þessu, m.ö.o. hann á þetta skuldlaust sjálfur. Keyrir hann út í bagga sem var við upphaf beygjunnar sem setur hann á granirnar. Það virðast einhver álög hvíla á Tony Cairoli á MXON og hefur hann aðeins í tvígang í þau öll skipti sem hann hefur keypt náð að klára moto, það fyrra var 2006 í Englandi þegar hann meðal annars sigraði Ryan Villopoto í MX2 + MX3 flokknum og á Ítalíu 2009 þegar hann vann fyrsta moto dagsins í MX1 + MX2. Öll önnur skipti hafa endað í tárum hjá þessum frábæra ökumanni.
Margir urðu eitt spurningarmerki þegar Christophe Pourcel hætti skyndlega keppni í þriðju og síðustu umferð á MXON keppninni núna um helgina. Þar sem hann hefur oft gefið manni tilefni til að halda að toppstykkið sé að hlaupa með hann í gönur að þá var það einmitt það fyrsta sem kom upp í huga manns og í viðtalinu í lok keppninnar þegar Frakkar tóku á móti silfrinu að þá var hann ekkert að gefa neinar almennar skýringar á því afhverju hann hætti keppni. En hér má sjá glöggt að það var ekkert annað í stöðunni hjá Christope Pourcel en að hætta keppni því það var víst músin í afturdekkinu sem gekk út en ekki í framdekkinu eins og ég hélt fyrst. Þar með urðu vonir Frakka um að velta sigurgöngu Bandaríkjamanna að engu og enn og aftur má sjá hverslags meistaraheppni hafi hvílt yfir Bandaríkjamönnum í þessari keppni. Ekki það að þeir voru með firnasterkt lið en alveg eins og árið 2009 að þá áttu aðrar þjóðir verulegan möguleika að velta þeim úr sessi en sökum óviðráðanlegra aðstæðna gekk það ekki upp. Ég hef aldrei séð mús fara svona áður eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.

Maður vissi það að það myndi ekki líða langur tími þar til keppnin frá því um helgina myndi fara á netið og nú er þetta komið á YouTube. Fyrir þá sem hafa ekki séð þessa keppni að þá myndi ég horfa á hana því þetta var mjög skemmtileg keppni í alla staði. Enn sem fyrr hvílir bölvun yfir Antonio Cairoli þegar kemur að MXON og mun hann líklegast fyrstur manna vilja gleyma þessari keppni. Ekki nóg með að hann fór á granirnar í fyrstu beygju, heldur datt hann aftur nokkrum mínútum síðar og brotnuðu stýrisklemmurnar og stýrið þannig að eitthvað hefur höggið verið. Ekki nóg með það, heldur meiddi hann sig illa á úlniði og verður í hvíld næstu vikurnar. Á myndinni hér með þessari frétt má sjá hvernig hjólið hans Tony Cairoli var þegar starfsmenn KTM voru að taka það út úr brautinni og ljóst að mikil vinna var framundan hjá þeim að gera það tilbúið fyrir þriðju umferðinni og var það heppni fyrir þá að mesta bilið á milli umferða er fyrir MX1 gaurana sem taka þátt í fyrsta riðla og svo í síðasta riðli sem er númer þrjú.
En víkjum aftur að þessum myndböndum. Gæðin á þeim á YouTube eru ásættanleg og því ekkert að því að skella þessu í tölvuna og horfa á þetta yfir pop og kók í kvöld. Þetta var hörkukeppni og ég endurtek að það var meistaraheppni yfir Bandaríkjamönnum þetta árið og ekki ósvipað og var á Ítalíu 2009. En þá voru Ítalir í vænlegri stöðu með þá Tony Cairoli og David Philippaerts í broddi fylkingar en Tony Cairoli lenti í miklu samstuði í ræsingunni í þriðju og síðustu umferðinni og þar með var draumur Ítala úti.
Það er eiginlega með smá trega að maður skrifi þennan pistil, því þetta markar þau skil að 2011 tímabilinu í motocrossinu er endanlega lokið og nú hefst biðin eftir 2012 tímabilinu og undirbúningskeppnum. Já, þetta er víst búið í ár og nú tekur við "spekúlasjónir" hver verður í hvaða liði og hver verður fyrir utan lið. Hverjir fara til Bandaríkjana og öfugt, þ.e. hvaða Bandaríkjamenn sem komast ekki að í liðum í AMA fara til Evrópu og taka þátt í FIM MX mótaröðinni. Þannig að þó tímabilinu sé formlega lokið að þá mun maður fylgjast með að meiri áfergju en áður því maður vill vita hvað er í gangi og hver mun keyra fyrir hvern.
Jæja, en víkjum aftur að aðalúrslitum dagsins en eins og segir í fyrirsögn að þá sigruðu Bandaríkjamenn í sjöunda sinn og haf þeir unnið óslitið síðan þeir hófu aftur þátttöku árið 2005, en Bandaríkjamenn hættu þátttöku í árið 2002 og tók það þá nokkur ár að átta sig á því að þarna áttu þeir heima. Síðan þá hefur lið Bandaríkjamanna verið ósigrandi þó oft hafi það verið tæpt. Í ár var það engin undantekning og eftir fyrstu tvö moto-in var spennan mikil, en eins og svo oft áður að þegar þeir virkilega þurfa á því að halda að þá skila þeir því framlagi sem þarf til að viðhalda sigurgöngu þeirra í MXON keppninni. Bandaríkjamenn byrjuðu ekkert rosalega vel en þeir byrjuðu heldur ekkert rosalega illa. Ryan Dungey skilaði sínu ágætlega og endaði þriðji í fyrstu umferðinni á meðan Blake Baggett fór í frumskógarferð og telst góður að hafa endað sautjándi. Í annari umferðinni var það ennþá meiri spenna og endaði Ryan Villopoto þriðji eins og Ryan Dungey í fyrstu umferðinni og aftur endaði Blake Baggett í sautjánda sæti og ljóst að hann var Akilesarhæll Bandaríkjamanna (veiksti hlekkurinn). Á meðan hafði Chad Reed sigrað í fyrstu umferðinni og Gautier Paulin sigrað í annari umferðinni.
Fyrir síðustu umferðinni var komin töluverð spenna og Frakkar stóðu best að vígi með tíu stiga forskot á Bandaríkjamenn sem voru í öðru sæti. Það var því ljóst að Bandaríkjamenn þurfti að enda í efstu tveimur sætunum til að sigra og eitthvað þurfti að koma upp á hjá Frökkum. Þegar ræst var að þá var Ryan Villopoto með holuskotið og Ryand Dungey var í þriðja sæti. Fljótlega náði Chistophe Pourcel fram úr Ryan Dungey og var orðin þriðji og allt að verða vitlaust en áður en maður vissi af að þá var hann úr leik og maður vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Velti maður mikið fyrir sér hvort toppstykkið á þessum frábæra ökumanni hefði klikkað eina ferðina enn og hann hefði látið skapið hlaupa með sig í gönur. Bandaríkjamenn kláruðu svo í efstu tveimur sætunum og koma saman yfir endalínuna á rásmarkinu á meðan Gautier Paulin var að ströggla við að halda áttunda sætinu. Þessi úrslit þýddu að Bandaríkjamenn sigruðu eina ferðina enn og Frakkar urðu að sætta sig við annað sætið sem er þrátt fyrir allt frábær árangur. Ástralar náðu framúrskarandi árangur og endaðu í þriðja sæti og þar með rættist spá mín á facebook frá því á föstudag en þetta var sú röðun sem ég spáði fyrir. Eftir verðlaunaafhendinguna að þá fengum við loksins að vita hvað hefði komið fyrir hjá Christophe Pourcel en í einni lendingunni að þá gaf framdekkið sig og músinn skaust að hluta til út úr dekkinu og stóð út í loftið. Þannig fór um sjóferð þá og ótrúleg meistaraheppni virðist hvíla yfir þessu bandaríska liði. Frakkar stóðu því eftir með sárt ennið en reyndu að bera höfuðið hátt. Næsta keppni verður í Lommel í Belgíu.
Íslendingar tóku þátt í B-keppninni og enduðuð þeir í þrítugusta og fyrsta sæti í það heila en Viktor Guðbergsson endaði í tuttugusta og sjötta sæti, Eyþór Reynisson þar á eftir og Kári Jónsson síðan næstur á eftir Eyþóri. Þannig að þeir komu því í röð íslensku ökumennirnir. Árangur íslenska liðsins er í samræmi við það sem hann hefur verið frá þáttöku Íslendinga í fyrstu keppninni árið 2007. Þannig að það má segja að við séum á svipuðu róli og verið hefur. Allir ökumenn heilir eftir því sem ég best veit og óska ég strákunum til hamingju með árangurinn. Fyrir neðan má sjá myndband af annari og þriðju umferð en hér er endanlega staða liða í A-keppninni.
MXoN: Nations Classification
Þar sem manni leiðist aldrei að sjá eitthvað frá þessu sporti að þá set ég hér enn eitt myndbandið frá gærdeginum og er það tengt Monster Energy. Monster Energy er stærsti styrktaraðili FIM og sérstakur styrktaraðili MXON og gera þeir það með glæsibrag. Mér skilst að dömurnar sem fylgja hafi fangað athygli "Íthor" eins og hann var kallaður í dag ![]()
Fyrir þá sem misstu af undanriðlunum í Motocross of Nations í dag, að þá eru hér myndbönd eftir flokkum. Fyrst er það MX1, síðan MX2 og að lokum MX Open. Íslendingar var síðasta þjóðinn til að sleppa inn í B-keppnina sem verður á undan A-keppninni á morgun. Því miður verður ekki sýnt frá B-keppninni á morgun þrátt fyrir að þetta er sýnt á vef útsendingarfyrirtækis FIM, Youthstream, og verður að teljast einkennilegt þar sem þetta er auglýst sem ólympíuleikar hjólamanna en á ólympíuleikum er sýnt frá undanriðlum sem og milliriðlum og það í sjónvarpi. MX-LIFE.TV hafði talað um í upphafi útsendinga á þessum vef að það yrði sýnt mjög ítarlega frá MXON og þar á meðal B-keppninni en þeir hafa bakkað með það.
Nú er nýlokið undanriðlum í Motocross of Nations sem er ólympíuleikar okkar hjólamanna og skemmst er frá því að segja að liða Bandaríkjamanna virðist vera mjög dómenarandi í þessari keppni. Í MX1 undanriðlinum var það Ryan Dungey sem sigraði en hann fékk keppni frá Ítalanum Antonio Cairoli og munaði rúmri sekúndu á milli þeirra. Íslendingurinn Viktor Guðbergsson var í 24 sæti um tíma en endaði í 28 sæti. Þegar MX2 riðilinn byrjaði, að þá átti maður von á því að Ken Roczen, Dean Wilson og Marvin Musquin myndi veita Blake Battett frá USA einhverja keppni en hann hreinlega rótburstaði þetta og hvarf hreinlega. Ken Roczen hlekktist á og þurfti að vinna sig upp og endaði þetta þannig að Blake Baggett hreinlega tók keppinauta sína í nefið og vann með rúmlega mínútu forskoti. Næsti maður var Marvin Musquin frá Frakklandi og Dean Wilson sem varð þriðji. Eyþór Reynisson, eða "Íthor" eins og þulurinn kallaði hann var um tíma í 20 sæti en dettur og þurfti að vinna sig upp. Endaði hann í 29 sæti. Í síðasta riðli dagsins var það MX Open og þar var það sama sagan hjá liði USA. Ryan Villopoto hreinlega hvarf sjónum og átti enginn möguleika í hann. Verður að segjast að lið USA hefur sjaldan hin síðari ár litið sterkara út og verður erfitt að velta þeim úr sessi sem áskrifandur að sigri í þessari keppni. Ítalinn David Guarneri varð annar og Frakkinn Gautier Paulin varð þriðji. Þar með var það ljóst að USA var með fyrsta val á ráslhliði, Ítalir með annað val og Frakkar þriðja val. Íslendingurinn Kári Jónsson tók þátt í MX Open og var hann um tíma í 24 sæti en endaði eftir daginn í 30 sæti. Það dugði til þess að íslenska liðið komst inn í B-keppnina og mun sú keppni fara fram klukktíma á undann A-keppninni. A keppnin hefst kl.11 að íslenskum tíma.
Óska Íslendingum til hamingju með árangurinn og er hann mjög svipaður og verið hefur í öðrum keppnum hingað til.