Tekið af motocross.is
Hér er listinn fyrir Klaustur eins og við höfum náð að skrúfa hann saman. Það hefur gengið töluvert á hvað varðar allra handa breytingar fram að þessu og algjörlega líklegt að eitthvað hafi skolast til.
Margir hafa látið fylgja góðar upplýsingar um meðkeppndur, allt of margir treysta á djúpt innsæi skráningardeildar og jafnvel hugsanalestur. Endilega farið nú yfir þennan lista sem fyrst og ef einhverjar athugasemdir eru, þá senda strax auðskiljanlegar leiðréttigar á skrá This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Setjið í subject póstsins: Klausturlisti svo pósturinn skili sér í réttar hendur.
Endilega notið fullt nafn á öllum aðilum og helst kennitölu. Engar langlokur um stöðuna – bara koma sér beint að efninu. Hver er hættur við, Hver flyst hvert o.s.frv. - og láta endilega fylgja hvernig endanlegt lið á að líta út.
Það er voðalega erfitt að átta sig á hver ætlar að gera hvað, þegar menn skrifa t.d.:
“Hæ! Ég er skráður með Didda í TVÍ en, Guddi er í mauki og er hættur við, svo að Silli sem ætlaði að keppa með Gunna pabba sínum, og er að fara til útlanda, tekur hans pláss en svo bætist Doddi í liðið (hann var skráður með Sjonna í fyrra!!) og þá erum við að spá í að vera bara í ÞRÍ. Nema sko einn fari í JÁRN, þá verður það bara ég og mamma í AFKVÆMA - OK?”Kv. Skráningardeild VÍK
Rúmlega fimmtíu keppendur hafa skráð sig til leiks í fyrstu umferð Suzuki bikarmótarðarinnar og er það ágætis skráning, ekki ósvipuð og var í bikarmótið sem haldið var til stuðnings MXON 2011. Það vantar þó á þennan lista þá sem hugsanlega hafa skráð sig í nýliðaflokkinn en það var ekki gert í gegnum vef MSÍ og ef um tíu keppendur hafa skráð sig þar, að þá eru rúmlega sextíu keppenur að fara á ráslínu á morgun. Hægt er að skoða keppendalistann á vef MSÍ með að smella hér. Hvort sem þú ert skráður eða ekki að þá skora ég á þig að koma við á Selfossi á morgun og horfa á skemmtilega keppni þar sem þrjú moto verða hjá hverjum flokk nema nýliðaflokknum. Gera má ráð fyrir töluverðu fjöri þar sem ræsingum hefur verið fjölgað úr tveimur í þrjú en ræsingarnar eru það sem mörgum finnst hvað mest spennandi á að horfa. Dagskráin er eftirfarandi og byrjar ballið kl.10:45:

Skráningarfrestur í fyrsta mótið af þremur í Suzuki bikarmótaröðinni rennur út í kvöld kl.21:00, eftir það verður ekki hægt að skrá sig. Keppnin fer fram á fimmtudaginn 17 maí, sem er almennur frídagur, ef fólk skyldi ekki vita það. Skráning er á vef MSÍ, www.msisport.is, fyrir utan þá sem ætla að skrá sig í nýliðaflokk en þá er nóg að senda póst á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Nú eru um þrettán keppendur skráðir og ég hreinlega neita að trúa því að þátttakan verði ekki meiri loksins þegar sett er á laggirnar alvöru bikarmótaröð. Búið er að gera miklar breytingar á brautinni og taka út kafla undir startið sem snýr nú vestur plús að búið er að setja upp ráshlið af dýrari gerðinni, ekki ósvipuð og upp í Bolaöldu fyrir utan að startið er í mold en ekki steypu. Einnig hefur brautin verið lengd nokkuð en við feðgar vorum þarna í gær að skoða aðstæður. Það er fín spá fyrir fimmtudaginn nánast blankalogn og eru hitatölur á uppleið en spáin hljóðar upp á ca 8°C. KOMA SVO!
Búið er að opna á vef MSÍ fyrir skráningu í fyrsta mótið af þremur í bikarmótaröð Suzuki en fyrsta mótið fer núna fram í töluvert breyttri braut þeirra á Selfossi, en búið er að lengja hana töluvert ásamt að búið er að setja upp starthlið. Þátttökugjald er 5.000 kr. og þurfa hjól að vera tryggð og á númerum til að geta tekið þátt. Almennar keppnisreglur MSÍ gilda í þessari keppni og ef þú átt ekki tímamælir, að þá er hægt að leigja hann hjá Nitró. Boðið er upp á "Nýliðaflokk" og er það flokkur fyrir þátttakendur sem aldrei hafa keppt í Íslandsmeistaramóti en vilja prófa að keppa til að fá tilfinningu fyrir því hvernig það er. Hægt er að skrá sig í þann flokk með að senda póst í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Koma þarf fram nafn, kennitala og hjólastærð og þú ættir að fá svar um hæl yfir reikningsupplýsingar til að greiða þátttökugjaldið en þátttökugjaldið er það sama. Þeir keppendur sem skrá sig í nýliðaflokk þurfa ekki að leigja sér senda þar sem talið verður í stað þess að nota senda MSÍ enda er tilgangurinn með þessum flokki fyrst og fremst að veita þeim sem hafa ekki keppt áður tækifæri á að taka þátt í svona viðburði.
Það þarf vart að taka það fram að þetta er ein besta æfing sem væntanlegir keppendur í Íslandsmeistaramótinu geta fengið því Selfoss er á keppnidagatali MSÍ í ár, fyrir utan að aðalverðlaunin eru glæsileg í "Pro" flokknum. Einnig verða góð aukaverðlaun í boði. Ungmennafélagið ætlar að gefa þrú árskort í brautina og verður dregið úr nöfnum þeirra sem eru þátttakendur í bikarmótinu. Veðurspáin fyrir fimmutdaginn 17 maí, sem er almennur frídagur, er hreint út sagt ágæt þó svo að við hefðum hugsanlega viljað sjá hitastigið lítið eitt hærra. En gert er ráð fyrir að það verði léttskýjað, blankalogn og sex stiga hita.
Í gær fór fram fyrsta og önnur umferð í Enduro-cross-country og fór hún fram í Hrunamannahreppi, rétt hjá Flúðum. Brautin var nokkuð skemmtileg en mun erfiðari en keppendur áttu von á og má þar helst kenna um úrkomunni sem var á svæðinu og gerði aðstæður mjög sleipar. Áttu ökumenn og fákar erfitt með að fóta sig og urðu oft skrautlegar aðfarir við það eitt að reyna að halda hjólinu og sér uppi. Fyrir vikið var hún skemmtileg áhorfs fyrir okkur hina sem vorum ekki að hjóla og sér í lagi fyrir þá sem voru með myndavélar á lofti. Í raun kom brautin keppendum nokkuð á óvart miðað við þær myndir sem birst höfðu á netinu og voru margir þeirra hreinlega búnir á því eftir fyrri umferðina og pökkuðu saman og fóru heim og tóku þar með ekki þátt í annari umferð. Svæðið í sjálfu sér til keppnishalds var og er frábært en eins og áður hefur komið fram að þá gerði úkoman það að verkum að erfiðleikastigið jókst margfalt. Sumir keppendur í fyrstu umferðinni fóru mjög frjálslega með hliðin og á tímabili var eins og sumir ættu bara leið hjá og velti maður því fyrir sér hvort þeir væru að taka Gullfoss, Þingvellir, Geysir þríhyrninginn á meðan flestir reyndu að ströggla í gegnum hliðin. Skortur á "race police" gerði það að verkum að margir hverjir komust upp með þetta og fengu ekki á sig víti. En engu að síður skemmtileg keppni að horfa á.
Í ECC1 hélt Kári Jónsson uppteknum hætti og sigraði en Daði "Skaði" Erlingsson var samt aldrei langt undan og hélt betur í hann í annari umferð en í fyrstu umferð. Gunnlaugur R. Björnsson eða sá sem við þekkjum sem Gulli í Sonax varð þriðji. Bjarki Sigurðsson sem var í baráttu við Gulla Sonax um þriðja sætið varð fyrir einhverju óhappi sem ég veit ekki hvað var og varð að hætta keppni í annari umferð og er fyrir vikið stigalaus eftir þá umferð.
Í ECC2 sigraði Guðbjartur Magnússon eftir hreint út sagt fanta akstur og ljóst að þessi piltur er að verða með þeim betri hér á landi sem alhliða ökumaður því hann er einnig framúrskarandi motocross ökumaður. Í öðru sæti varð Valdimar Þórðarson sem lenti í óhappi í fyrstu umferðinni á fyrsta hring og beygði gírpedalann þannig að hann gat ekki skipt um gír og svo gerði hann mistök og sat fastur í smá tíma sem kostuðu hann sitt. Jónas Stefánsson varð þriðji og var að keyra jafnt og þétt alla keppnina.
Í tvímenning var mikil barátta og voru þeir kristófer Finnson og Baldvin Gunnarsson í mikilli baráttu við Gunnar Sölvason og Atla M. Guðnason sem endaði með því að þeir fyrrnefndu höfðu betur. Var mjög gaman að fylgjast með þessum tveimur liðum því þau voru nánast "bar-to-bar" hluta af keppninni og bæði lið ætluðu sér sigur. Í þriðja sæti urðu reynsluboltarnir Stefán Gunnarsson og Kristján Steingrímsson.
Í 40+ flokknum sigraði Hjörtur P. Jónsson og keyrði hann jafnt og þétt alla keppnina. Ekkert óðagot á honum og gerði fyrir vikið minna af mistökum en aðrir sem skilaði fyrsta sæti í þessum flokki. Í öðru sæti varð Sigurður H. Magnússon og í þriðja sæti varð Birgir Guðbjörnsson sem er ótrúlega seigur.
Í B flokk sigraði Þórarinn Þórarinsson og var að vonum mjög sáttur með daginn. Skagamaðurinn Ernir F. Sigurðsson varð annar og Haraldur Björnsson varð þriðji með jöfnum akstri.
Í kvennaflokki sigraði Bryndís Einarsdóttir, Signý Stefánsdóttir varð önnur og Guðfinna Gróa Pétursdóttir varð þriðja. Það voru fimm stelpur skráðar en því miður datt Tedda út vegna meiðsla og voru það bara fjórar dömur sem tóku þátt. Mig minnir að það þurfi að vera minnst fimm keppendur skráðir til að hann gildi til Íslandsmeistara og vegna meiðsla Teddu sem tók því ekki þátt að þá nær flokkurinn ekki þeim fjölda sem þarf. Vona að ég hafi rangt fyrir mér því við þurfum á öllum keppendum að halda í þessu sporti og við það að flokkurinn telji ekki til Íslandsmeistara vegna þess að einn keppenda vantaði er sorglegt.
Í 85cc flokki voru það því miður bara tveir keppendur sem skráðu sig og tóku þátt. Stóðu piltarnir sig hreint út sagt frábærlega og enginn uppgjöf á þeim við þessar erfiðu aðstæður. En sama gildir hér eins og í öllum flokkum, lágmark fimm keppendur þarf í fyrstu umferð til að flokkurinn telji til Íslandsmeistara. Eitthvað þarf að gera til að laða að ungu piltana því það eru fleiri þarna úti á 150cc fjórgengishjólum og 85 tvígengishjólum sem við þurfum sárlega að laða að í þetta sport. Hvað það er nákvæmlega veit ég satt að segja ekki, en legg til að allir sem áhuga hafa á þessu sporti leggi höfuðið í bleyti í því skyni að finna nýja leiðir til að laða að fleiri keppendur því ef enginn verður endurnýjunin, að þá fjarar þetta hægt og rólega út eftir því sem gömlu hundarnir detta út. En víkjum aftur af þessum tveimur sem stóðu sig frábærlega. Viggó S. Pétursson hafði betur í baráttunni í dag og varð Sebastian G. A. Vignisson að sætta sig við annað sætið í dag.
Heildarúrslit eftir helgina má nálgast með að smella hér. Ég tók slatta af myndum og má nálgast þær með að smella hér. Nú er bara spurning um að koma sér í gírinn með að renna norður til sjá þriðju og fjórðu umferð sem fer fram á glæsilgegu svæði KKA manna sem fer fram 16 júní og er hluti af dagskrá Bíladaga.
Sett hefur verið á laggirnar ný bikarmótaröð í samvinnu við Suzuki umboðið á Íslandi sem verður í formi stigakeppni. Keppt verður í þriggja móta röð og eru glæsileg aðalverðlaun í boði og má þar fyrst og fremst nefna keppnisstyrkur frá Suzuki fyrir allt árið 2013 ásamt því að veitt verða verðlaun í öllum mótunum frá Suzuki. Til þess að eiga möguleika á þessum glæsilega aðalvinning þarf viðkomandi að vera efstur að stigum í Pro flokki í lok sumars. Suzuki blæs til þessara mótaraðar í samvinnu við þrjá klúbba og eru það VÍFA upp á Akranesi, UMFS á Selfossi og MotoMos í Mosfellsbæ. Fyrsta keppnin mun fara fram á Selfossi þann 17 maí næstkomandi og er verið að undirbúa opnun á skráningu á vef MSÍ. Öll skráning mun fara í gegnum vef MSÍ, www.msisport.is, og þurfa keppendur að eiga senda til að geta tekið þátt þó með einni undantekningu. Boðið verður upp á "Nýliðaflokk" þar sem aðilar geta komið sem svo sannarlega hafa ekki keppt áður og fengið að taka þátt í því skyni að kynnast því hvernig er að keppa. Fyrir viðkomandi er nóg að senda póst á eitt ákveðið netfnag og verður netfangið auglýst síðar. Þessi flokkur verður ekki keyrður ef þátttaka verður undir tíu keppendur í hverri keppni en þetta er liður Suzuki og klúbbana í að reyna að fá nýliða til að prófa að keppa. Lágmarksstærð hjóla í "Nýliðaflokkinn" er 125cc tvígengis eða stærri og er keyrt í 2 x 10 mínútur plús tveir hringir. Í stað þess að nota tímamæla í þessum flokki að þá verður talið. Af öðrum flokkum er að frétta að keppt verður í MX kvenna ásamt 85cc og svo Pro flokk sem mun skiptast í A og B flokk. Mun tímataka ákveða hvort viðkomandi er A eða B ökumaður en flokkarnir verða ekki keyrðir saman heldur í sitt hvoru lagi. Hröðustu 25 keppendur munu skipa Pro A flokk og hinir sem eru með lélegri tíma í tímatöku en hröðustu 25 fara í Pro B flokk. Keyrt verður í 3 x 15 mínútur plús tvo hringi. MX Kvenna og 85cc verður keyrður saman og munu þau keyra 3 x 10 mínútur plús tvo hringi en veitt verða verðlaun fyrir sitt hvorn hópinn, þ.e. sérverðlaun í MX kvenna og sérverðlaun í 85cc. En annars lítur þetta svona út.
Almennar keppnisreglur MSÍ munu gilda og þurfa hjól að verða tryggð og á númerum til að geta tekið þátt. Suzuki umboðið og klúbbarnir sem að þessu koma áskilja sér rétt til breytingar á keppnisdagskrá eftir því sem þurfa þykir. Keppnisgjald er 5.000 kr. og mun öll skráning fara í gegnum vef MSÍ eins og áður hefur komið fram. Ekki verður endurgreitt ef keppandi mætir ekki eða getur ekki tekið þátt heldur mun keppnisgjaldið þá renna til uppbyggingar á svæðum félagana.
Eins og áður hefur komið fram að þá er þrjú moto og telja þó öll til stiga. Stigagjöf er með sama fyrirkomulagi og á Íslandsmeistarmótinu í motocrossi. Sá sem er efstur að stigum að þremur mótum liðnum í Pro A flokki fær að launum styrktarsamning frá Suzuki umboðinu fyrir allt keppnistímabilið 2013 og innifalið í því er afnot af nýju Suzuki motocrosshjóli að eigin vali til æfinga og keppni á því tímabili ásamt keppnisgalla og ýmsum öðrum fríðindum. Þannig að til mikils er að vinna fyrir þann sem hreppir hnossið enda ekki um dónalega hjól að ræða.
Sem sagt fyrsta mótið fer fram þann 17 maí í glæsilegri og stækkaðri braut UMFS á Selfossi. Næsta keppni fer fram 23 júní í endurbættri braut VÍFA upp á Skaga (Akrabraut) þar sem búið er að setja upp starthlið og meira til. Síðasta keppnin fer síðan fram í MotoMos og miðað við núverandi dagskrá að þá gerum við ráð fyrir að hún fari fram 18 ágúst þar sem aðalverðlaunin verða veitt. Þessi dagsetning gæti breyst eithvað en þá verður það auglýst mjög ítarlega. Sem sagt keppnirnar munu raðast þannig:
Keppnisdagskráinn er tilbúinn en hægt er að niðurhjala henni neðst í þessari frétt. Hún er þó birt með fyrirvara og gæti tekið breytingum á næstu dögum. Einnig munum við birta ítarlegri upplýsingar um keppnina sjálfa. Nú er bara að fara að æfa sig og ljóst að það er nóg um að vera í þessu sporti á Íslandi...
Síðasta laugardag fór fram fyrsta umferðin til Íslandsmeistara í motocrossi. Mikil spenna var fyrir mótið og það af tvennum ástæðum. Í fyrsta lagi var búið að fjölga umferðum úr fimm í sex og var tímabilið að byrja allt af því mánuði fyrr en venjulega og lék mönnum forvitni á að sjá hvernig menn kæmu undan vetri því undirbúningur var styttri. Í öðru lagi var Aron Ómarsson að snúa aftur á ráslínu eftir árs fjarveru og hlökkuðu margir til að sjá hann og Eyþór Reynisson Íslandsmeistara í MX2 og MX Open eigast við í ár. Keppnin fór fram í Bolaöldu og voru aðstæður hreint út sagt ágætar þó hálf kalt hafi verið í veðri framan af þar sem norðanáttin gældi við kinnar með sínum kalda kossi. Það voru þó óvenju mikið af afföllum af ökumönnum í keppninni og meiddust um sex ökumenn og sumir nokkuð alvarlega. Er þetta með hæsta móti frá því að ég fór að fylgjast með þessu og meðal þeirra sem þurftu á aðhlynningu að halda voru Friðgeir Guðnason sem fór í aðgerð í morgun vegna óvenjulegs viðbeinsbrots, Tedda sem rifbeinsbrotnaði á tveimur og meira til og svo Eyþór Reynisson sem laskaðist verulega á öxl en er ekki brotinn að sögn lækna. Já, við Íslendingar virðumst ætla að taka upp ósiði ökumanna í AMA Supercrossinu í ár og hefja sumarið með stæl, alla vega hvað meiðslalistann varðar. Hvað sem olli því, að þá vona ég að þessu sé hér með lokið í ár og fleiri ökumenn falli ekki frá keppni vegna meiðsla.
En víkjum að keppninni sjálfri.
MX kvenna: Bryndís Einarsdóttir kom, sá og sigraði hjá skvísunum. Signý Stefánsdóttir átti þrusustart í báðum moto-um en tók því miður of oft jarðvegssýni úr Bolaöldu, vissi ekki að hún væri komin með nýja söfnunaráráttu, og fyrir vikið missti hún Bryndísi frá sér og gat ekki veitt henni þá keppni sem þurfti. Alla vega í fyrra moto-inu. Það verður ekki af Bryndís tekið að hún keyrði KTM 125-una fanta vel en það hefði verið skemmtilega ef Signý hefði ekki þurft að falla við og veitt henni þá keppni sem hefði kætt okkur áhorfendur. Kannski næst, hver veit. Karen Arnardóttir, núverandi Íslandsmeistari, var ekki með sökum meiðsla á hendi sem hún varð fyrir á æfingu rétt fyrir mót einmitt í Bolaöldu en í staðinn sveiflaði hún pylsum og gosi í takti við GusGus sem hljómaði ótt og títt í hátalarkerfinu þennan dag. Einnig keyrði Aníta Hauksdóttir vel og skilaði það sér í því að hún varð í öðru sæti eftir daginn. Úrslit dagsins voru þá þannig að Bryndís Einarsdóttir sigraði, Aníta Hauksdóttir varð önnur og Signý Stefánsdóttir varð þriðja. Vinkonurnar og hefðarfrúrnar Björk og Tedda í áttu ekki góðan dag. En eins og að framan var greint, að þá lenti Tedda því miður í því að detta illa eftir að ökumaður fellur fyrir framan hana með. Bína fer í aðgerð á hendi á morgun og verður frá í einhvern tíma.
Það atvik átti sér stað að einn ökumaður tók framúr þegar verið var að sinna Teddu út í braut og það þrátt fyrir að veifað væri gulu flaggi. Fyrir vikið að þá var þátttaka hennar dæmd ógild í umræddu moto-i og fékk hún enginn stig. En til áréttingar fyrir þá sem ekki vita að þá er stranglega bannað að taka framúr á gulu flaggi og sérstaklega þegar verið er að sinna slösuðum ökumanni út í braut. Einnig ítreka ég það fyrir ökumönnum að passa að skipta ekki um línu á palli, eða með öðrum orðum halda þeirr akstursstefnu sem þú hefur þegar þú kemur á pallinn. Allt annað skapar mikla hættu og getur valdið því að hraðari ökumaður getur lent í því að stökkva beint á þann sem er fyrir framan þar sem sá skipti um línu upp á palli við lendingu eða skipti um línu í lofti. Tvær vinkonur lentu saman á stóra pallinum í síðari moto-inu sem endaði á þann veg að önnur þeirra fer fram af pallinum sunnan meginn (þar sem er brattara og fjarri áhorfendum). Var það mikil mildi að ekki fór verr hjá henni og þótti það undrum sæta þegar hún komst hjálparlaust upp og hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist. Já, lukkudísirnar voru svo sannarlega með henni í för í þetta skiptið.
MX 85cc: Tveir ökumenn voru í algjörum sérflokki þennan dag og það voru þeir Hlynur Hrafnkelsson og Þorsteinn Sigurðsson sem stungu aðra keppendur af og hengju límdir við hvorn annan frá fyrstu beygju og allt til loka. Voru þeir að keyra á hörkutíma, eða á 2:09 hringinn sem var sami hraði og margir í MX unglinga voru að keyra á. Hlynur hafði betur og leiddi alla hringi frá ræsingu allt til enda með Þorsteinn andandi í hálsmálið á sér allan tímann. Oft munaði mjóu og sérstaklega í fyrra moto-inu þegar Þorsteinn var ansi nálægt því að ná framúr en Hlynur var með stáltaugur og hafði betur. Hrikalega flottur akstur á þessum piltum. Sá ökumaður sem hafði vonast eftir að geta blandað sér í topp baráttuna með þeim tveim, Óliver Örn Sverrisson er búinn að eiga í lítilsháttar vélarbilun síðustu daga sem gerir það að verkum að hjólið vinnur ekki upp á snúning og því varð hann að horfa á eftir þeim tveimur strax eftir fyrstu beygju. Óliver varð þó nokkuð öruggur í þriðja sæti eftir daginn þrátt fyrir að sárlaga vantaði upp á vinnslu í hjólinu. Sem sagt Hlynur Hrafnkelsson sigurvegari dagsins, Þorsteinn Sigurðsson í öðru sæti og Óliver Örn Sverrisson í þriðja sæti. Það er ljóst að þessi flokkur á eftir að verða spennandi í sumar ef þetta heldur áfram sem horfir.
Veitt voru verðlaun fyrir 85cc yngir ins og venjulega og var Kári Tómason hlutskarpastur af þeim ökumönnum. Davíð N. Ragnarson, sonur Ragga heimsmeistara, varð í öðru sæti og Sebastian G. Arnfjörð Vignisson varð þriðji. Sárlega vantar meiri nýliðun í sportið og er þessi flokkur með minnsta móti sem hlýtur að vera áhyggjuefni hjá MSÍ.
MX unglinga: Þessi flokkur var spennandi eins og alltaf og var Guðbjartur Magnússon sem var með góðar ræsingar. En fljótlega sýndi Ingvi B. Birgisson hvað í honum bjó og keyrði hreint út sagt frábærlega til sigurs. Þessi gaur er súper "smooth" og hrein unun að horfa á kvikindið keyra. Það virkar allt svo átakalaust. Þeir Guðbjartur og núverandi Íslandsmeistari unglinga, Hinrik Óskarsson, virðist alltaf finna leið til að finna hvorn annan og berjast. En þessi háttur hefur verið á síðan þeir kepptu í 85cc flokknum. Er þetta svona svipað og þegar James Stewart og Chad Reed virðist fyrir einhverja hluta sakir alltaf finna hvorn annan út í braut til að berjst sín á milli. Já, það er eitthvað sem dregur þessa tvo saman. Að þessu sinni hafði Hinrik betur en hafði ekki svar við hraða Ingva og varð að sætta sig við annað sætið í fyrsta móti ársins. Í sjálfu sér ekki slæm úrslit en greinlegt að pilturinn vildi meira. Guðbjartur Magnússon endaði þriðji eftir daginn og ljóst að þessir þrír eru sér á parti í ár. Sá ökumaður sem hefur tekið hvað mest framförum síðustu ár er Aron Berg Pálsson sem hefur bætt sig mikið á milli ára. Ég man þegar hann byrjaði að keppa og er dagur og nótt á milli þess hvernig hann ók þegar hann tók þátt í fyrstu keppni sinni og til dagsins í dag. "Keep up the hard work, Aron".
Veitt voru verðlaun fyrir yngri flokk ökumanna í MX unglinga og að þessu sinni var bara einn ökumaður sem uppfyllti þau skilyrði en það var hann Ísak F. Hilmarsson.
MX-B: Þessi flokkur er orðin hrikalega stór og þetta er andskotans ekki orðin neinn B-flokkur lengur... Þið fyrirgefið orðbragðið. Þetta er sannkallaður hetjuflokkur sem skartar mörgum af betri ökumönnum landsins. Þessi flokkur er keyrður með 40+ flokknum og þegar hópurinn er komin saman í einn flokk á ráslínu að þá er þetta sannarlega hetjuflokkur enda þarna eru ökumenn sem keppt hafa óslitið nánast í tugi ára eins og t.d. Raggi heimsmeistara, Reynir Jónsson, Haukur Þorsteinsson svo einhverjir séu nefndir. Fyrir vikið að þá er orðið hriklega gaman að horfa á þennan flokk en ég man þá tíð þegar ég vildi þennan flokk burt út Íslandsmótaröðinni og taldi að hann ætti betur heima í bikarmótum. Well... Ef hann væri ekki til staðar í dag, að þá væri keppnin af fátækleg og hátt í þrjátíu ökumönnum fátækari. Ég er alla vega hæstánægður í dag að þessi hópur ökumanna er með í Íslandsmeistaramótinu enda litríkir karektarar þarna á ferð sem flestir hafa gott af að kynnast. Í B-flokknum undir 40 ár að þá sigraði Atli M. Guðnason, Jóhann S. Gunnarsson varð annar og Michael B. David varð þriðji en hann tók góða dýfu í fyrstu beygju ásamt Robert Knasiak. Í flokki heldri manna, að þá sigraði Ragnar I. Stefánsson örugglega, Reynir Jónsson varð annar og Haukur Þorsteinsson varð þriðji. Já, að horfa á verðlaunapallinn í þetta skipti var eins og "flash back" til ársins 1990 eða eitthvað álíka :)
MX2: Eftir nokkra hringi í þessum flokki var ljóst að núverandi Íslandsmeistari Eyþór Reynisson myndi ekki skora hátt í þessu móti þar sem hann endaði í sjúkrabíl með laskaða öxl og varð því með DNF (Did Not Finish) í mótinu. En Ingvi B. Birgisson og Hinrik Óskarsson tóku einnig þátt í MX2 flokknum og að mínu mati er það ákveðið þrekvirki sem ég mæli ekki með að menn geri nema þeir hafi styrkleika og getu til. En viti menn, Ingvi B. Birgisson gerði sér lítið fyrir og sigraði í þessum flokki og vann því tvöfalt þennan dag. Annar varð Hjálmar Jónsson en ég var alltaf að spá í að mér fannst eitthvað öðruvísi við Hjámar í mótinu og síðan komst ég að því í lok dags að það var að hann var að keyra á 250F hjóli og tók þátt í MX2. Þá varð það bara einfaldlega það, var orðin vanur að sjá piltinn á 450 hjóli. Í þriðja sæti varð Kjartan Gunnarsson sem fór einu sinni hressilega fram fyrir sig og var þar með í hóp þeirra sem tók góða dýfu í þessari keppni. En Kjartan varð ekki meint af, sem betur fer.
MX Open: Þegar Eyþór Reynisson féll og varð að hætta keppni varð ljóst að ekki yrði sú keppni þennan dag á milli hans og Aron Ómarssonar sem var að hefja keppni aftur. En sem betur fer fyrir áhorfendur að þá var þetta ekki alveg spennulaust og var Viktor Guðbergsson ekkert á því að láta Aron taka öll stiginn heim. Aron sigraði fyrsta moto-ið en Viktor gerði sér lítið fyrir og hafði betur í síðari moto-inu og stóð uppi sem sigurvegari dagsins í MX Open. Var virkilega gaman að sjá keppnina í þessum flokki og fannst mér hann skemmtilegri að horfa á en oft áður og mikil barátta á milli ökumanna. Kári Jónsson endaði þriðji eftir daginn eftir jafnan og góðan akstur en mér skilst að hann hafi hreinlega verið búinn á því í lokin. Sem sagt Viktor Guðbergsson endaði fyrstur eftir daginn, Aron Ómarsson annar en á jafn mörgum stigum og Viktor og Kári Jónsson þriðji.
Það er ljóst eftir þetta fyrsta mót að það verður spenna í nánast öllum flokkum. Enginn virðist ætla að geta gert tilkall til þess að labba með þetta heim og verð ég að segja að byrjunin lofar góðu þó svo að ég hefði gjarnan viljað vera án þeirra meiðsla sem ökumenn urðu fyrir í fyrsta móti ársins. Vill ég þakka VÍK fyrir að taka keppnina að sér með svona litlum fyrirvara sem og öllum keppendum sem tóku þátt því án þeirra væri ekkert Íslandsmeistaramót. Get varla beðið eftir næsta móti og er ekki frá því að ég er bara nokkuð spenntur fyrir sumrinu. Hvað myndir varðar að á tók ég slatta af myndum en þær voru aldrei þessu vant slitróttari en nokkrum sinni áður og verð ég að segja mér til afsökunnar að þennan dag varð ég að sinna óvenju miklu mekkastarfi, hlut sem ég hef ekki þurft að hafa mikið fyrir síðustu ár og hef ég því haft þann lúxus að geta vafrað um svæðið og tekið myndir í gegnum tíðina. Hægt er að skoða myndirnar frá mér með að smella hér en það vantar inn í myndirnar allan MX Unglinga og einnig B-flokk af framangreindri ástæðu. Biðst ég forláts á því. Ég tók upp eitthvað myndaband af síðari moto-inu í MX Open sem ég mun birta fljótlega á síðunni. Maður mótsins var að mínu mati Ingvi B. Birgisson sem sigraði bæði MX unglinga og MX2.
Er ekki frá því að það sé komin smá firðingur í magann yfir þessu öllu saman og þetta sumar á bara eftir að verða skemmtilegt. Fyrsta keppni ársins í motocrossi verður á Laugardaginn og fer hún fram í Bolaöldu. Tímataka hefst kl.09:30 en fyrsta keppni dagsins hefst kl.12:00. Er ekki við hæfi að horfa á syrpuna sem Maggi setti saman frá árinu í fyrra, til að kynda upp í mannskapnum.
Um helgina fer fram fyrsta umferðin í motocrossi til Íslandsmeistara og fer keppnin fram á svæði VÍK í Bolaöldu, beint á móti Litlu kaffistofunni. Fyrsta umferðin átti að fara fram í Sólbrekku en vegna manneklu hjá VÍR var keppnin færð og tók VÍK við henni með stuttum fyrirvara. Ágætis skráning er í keppnina þó svo að maður sakni alltaf einhvers á milli ára og eru um áttatíu keppendur skráðir til leiks um næstu helgi. Enn og aftur virðist sá tími sem keppendur hafa til skráningar koma keppendum á óvart en síðustu tvö ár hefur verið lokað fyrir skráningu á þriðjudagskvöld kl.21 í þeirri viku sem keppnin fer fram, engar undantekningar... En það virðist vera sér íslenskt að skrá sig aldrei fyrr en á síðustu stundu og þá helst eina mínútu í lokun. Breytt fyrirkomulag er við núverandi mótaröð að fimm bestu umferðirnar af sex telja til stiga fyrir ökumenn og lið. Það þýðir að keppandi getur tekið ákvörðun um að sleppa einu móti í von um að hann skori ágætlega í næstu fimm umferðum. En mitt mat er að það er betra að keppa í öllum umferðum sumarsins og ef svo illa skyldi fara fyrir einhverjum að það gangi illa, að þá hefur keppandinn alla vega sex umferðir upp á að hlaupa í stað þess að gefa þetta "jóker" spil frá sér strax af hendi og mega illa við slæmu gengi í næstu fimm umferðum. Hægt er að skoða keppandalistann með að smella hér.
Keppt verður með sama sniði og síðustu ár og er hægt að nálgast keppnisdagskrá dagsins hér á pdf formi. Tímataka hefst kl.09:30 og keppnin sjálf byrjar kl.12. Aðgangseyrir er mjög hóflegur, eða rétt um 500 kr. pr. einstakling en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Skora ég á alla að fara og horfa á skemmtilegt mót því Bolaalda er mjög áhorfendavæn þar sem það sést vel yfir alla brautina. Léttar veitingar verða í boði á svæðinu og ætti enginn að láta sér leiðast.
Um næstu helgi hefst fyrsta umferð til Íslandsmeistara í motocrossi og fer keppnin fram í Bolaöldu þar sem keppnin í Sólbrekku fellur niður vegna manneklu. Að þessu sinni er gert ráð fyrir sex keppnum í motocrossi til Íslandsmeistara. Mörgum finnst fyrsta keppnin vera kannski óvenju snemma og að mörgu leyti er það rétt, þ.e. að tímabilið í motocrossi hefur að öllu jafna ekki byrjað um þetta leyti en hafa ber í huga að brautirnar eru oftast í hvað bestu ástandi í upphafi sumars þegar rakinn eftir veturinn leitar upp. Bolaalda er í ágætis standi þessa dagana og er búið að koma upp vökvunarkerfinu til að viðhalda rakastigi, en hún er að vísu lokuð í dag vegna viðhalds eftir helgina. Veðurspáinn fyrir næstu helgi er mjög flott, heiðskírt, logn og brakandi sól. Síðasti skráningardagur er annað kvöld, þriðjudag kl.21 og er ekki ráð nema í tíma sé tekið því oft vill eitt og annað koma upp á þegar beðið er með þetta fram á síðustu stundu. Gerum þetta ár flott MX ár og sýnum að það er ennþá töggur í okkur í þessu sporti.