Um næstu helgi, nánar á laugardaginn 19 maí og verður hægt að horfa á fyrsta moto-ið á netinu á www.allisports.com. Því miður verður núverandi meistari Ryan Villopoto ekki með vegna meiðsla og það á einnig við Chad Reed. Tyle Rattray mun fylla í skarð Ryan Villopoto en þetta eru ansi stórir skór sem hann þarf að fylla í. James Stewart kemur inn í þessa seríu sem hálfgert "wild card". Allir vita að hann er hraður, allir vita að hann geta unnið en allir vita að hann hefur ekki keppt utanhús síðan árið 2008 og þetta er mikla meira "brutal" en supercrossið og tekur meira á líkamlega. Við tegundarskiptin, þ.e. að fara af Yamaha yfir á Suzuki, að þá vonast James Stewart að fá aftur það sjálfstraust sem hann hafði. Hans vegna vona ég að hann hafi rétt fyrir sér og þetta eigi eftir að blása lífi í feril James Stewart. Ef ekki að þá eru margir á því að dagar hans sem súperstjörnu í sportinu sé í raun taldir og hann falli í þann flokk sem heitir "has been". Ég er á því að KTM eigi eftir að vera feykisterkir í ár í AMA Outdoors mótaröðinni þar sem þar er einvalalið ökumanna og aðstoðarmanna sem er stýrt af engum öðrum en Roger DeCoster sem hefur verið valinn liðstjóri MXON liðs þeirra Bandaríkjamanna ár eftir ár. Ryan Dungey er úrræðagóður ökumaður sem skilar alltaf sínu og ungliðarnir Ken Roczen og Marvin Musquin eiga báðir heimsmeistaratitla að baki í FIM mótaröðinni og mun tilfinning er að þeir eigi eftir að blómstra í ár. Ég er einnig viss um að Davi Millsaps eigi eftir að verða "spoiler-inn" í þessari keppni því nú fær hann allt í einu 100% fókus eftir að James Stewart yfirgaf herbúðir JGR. Davi Millsaps er komin með liðsfélaga sem heitir Kyle Regal og er ekki óvanur Yamaha en engu að síður að þá er ljóst að Davi Millsaps er ökumaður númer eitt hjá JGR. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, hér er myndband frá AMA Motocross um komandi tímabil og þarna má heyra álit manna eins og Jeff Emig og Jason Weigand á ökumönnum fyrir komandi tímabil.
Hér er svo "season review" fyrir árið 2011 þar sem byrjað er að tala um 250 flokkinn.
Þá er það loksins orðið opinbert sem flestir hafa vitað að James Stewart hefur verið leystur undan samningi sínum við JGR Yamaha og þar með eru Nascar draumar hans líka líklegast úr sögunni. Verður hann nýji liðsfélagi Brett Metcalfe sem allt í einu verður að sætta sig við að verða ökumaður númer tvö hjá liðinu því James litli þarf sitt og verður númer eitt. Það er ekkert launungarmál að dramadrottning 2012 tímabilsins það sem af er, er enginn annar en James "Bubba" Stewart sem hefur ekki fundið sig í ár og margir vildu meina að hefði valið JGR liðið út af Nascar möguleika og peningum. Nú er það á enda og hvað sem pilturinn tekur sér fyrir hendur, að þá vona ég að hann finni sig á ný á Suzuki því þetta er með flottari ökumönnum í bransanum og yrði mikil eftirsjá af honum ef hann skyldi taka upp á því að fara að fjara út núna. Ekki það að nóg er til af hæfileikaríku fólki en það er eitthvað extra við James Stewart á hjóli hvort sem þú ert aðdáandi hans eða sá sem leggur hvað mest fæð á hann. Hann hefur þetta það sem Simon Cowel myndi segja, "X-factor". Hér er myndband sem tekið var heima hjá honum og er hann mjög flottur á súkkunni. Já, James litli keypti sér allar tegundir sjálfur til að prófa og virðist hafa fílað sig vel á Suzuki hjólinu. Dæmi hver fyrir sig en mér finnst hann súper "smooth" í þessu myndabandi og nú óskar maður honum bara alls hins besta í framtíðinni.
http://www.redbullusa.com/cs/Satellite/en_US/Video/james-stewart-new-suzuki-021243204950407
Sú kjaftasaga verður síffellt háværari á netinu að komnir séu alvarlegir brestir í samstarf JGR Toyota Yamaha og James Stewart eftir aðeins nokkra mánaða samvinnu. Sagan segir að James Stewart muni hugsanlega fara yfir til Suzuki og verði þá ökumaður númer eitt og Brett Metcalfe verði þá ökumaður númer tvö. En sem komið er að þá er þetta bara kjaftasögur á netinu og oft eru þær óskhyggja sumra og eigi við afar lítið að styðjast en í sumum tilfellum hafa þær gefið sterkar vísbendingar um að eitthvað sé að. JGR er lið sem vill fá til baka fyrir þann pening sem þeir leggja út fyrir og það er ekkert launungarmál að frammistaða hans hefur verið undir væntingum flestra ef ekki allra og ekki síst hans sjálfs. Margir vilja rekja það til hjólsins, þ.e. Yamaha YZ450F og að hönnunin á því henti ekki stíl James Stewart. Eitthvað gæti verið til í því og ómögulegt um það að segja. En þeir sem virkilega þekkja til vilja meina að það sé ekki hjólið því það hafi sannað það margoft að það geti unnið og sé ekki hamlandi fyrir ökumann. Hefur t.d. það skilað tveimur utanhús meistaratitlum í motocrossi í Ástralíu + einum supercrosstitli. Steven Frossard hefur orðið ítalskur meistari á því tvö ár í röð og hefur lagt ekki minni mann en sjálfan heimsmeistarann Antonio Cairoli á hans heimavelli og við skulum ekki gleyma því þegar við skoðum þær keppnir að fyrsta árið var hann nýliði í 450 flokknum og í ár var hann að koma úr mjög erfiðum lunganmeiðslum og var lítið búinn að æfa fyrir ítalska meistaramótið. Gautier Paulin sigraði á hjólinu í moto 2 í MXON í Frakklandi á síðasta ári, þannig að hjólið hefur sýnt að það á ekki að vera sá þáttur sem er hamlandi. Motocross Action Magazine hefur margsagt það að vandamálið með James Stewart er ekki hjólið heldur uppsetning hans á fjöðruninni og þá sérstaklega að framan. Hún sé svo stíf að það sé engu lagi líkt og það geri það að verkum að framendinn fari undan honum svo oft. Ef þið horfið á keppnina í AMA supercrossinu 2006 að þá er hann að glíma við það nákvæmlega sama það ár og fór oftar á hausinn en ekki og þá var hann á Kawasaki. En svo getur hreinlega verið að James Stewart þurfi einfaldlega að fara á annað hjól til að upplifa eins og hann sé að eignast nýtt upphaf í sportinu. Fyrir suma virkar slíkt en aðra ekki. T.d. er Jay Marmont í Ástralíu að ströggla eftir að hafa farið af Yamaha yfir á Kawasaki. Hvað sem verður og hvernig sem þessi saga endar, að þá er eitt víst. James Stewart vekur alltaf eftirtekt sama á hvaða tegund hann verður á og mín ósk er einfaldlega sú að hann klári einfaldlega svo sem eins og eitt stykki tímabil eins og t.d. AMA Outdoors í sumar, sama á hvaða tegund á hjóli hann verður. Hundleiðinlegt ef Ryan Villopoto dóminerar AMA Outdoors eins og hann hefur gert í AMA Supercrossinu í ár og þá nenni ég ekki að horfa á þetta í sumar þarna í Ameríku.
Áhugaverður punktur í nýjasta tölublaði Motocross Action Magazine en þar er lesandi að spyrja um muninn á uppsetningu hjóla á t.d. Ricky Carmichael og James Stewart, en blaðið hefur fjallað um einkennilegar uppsetningar hjá þeim báðum. Hjá Ricky Carmichael að þá var hjólið sérstaklega sett upp fyrir lítinn ökumann og var aftur demparinn stilltur sérstaklega með það fyrir augum hversu lár hann var í loftinu. Uppsetninginn var svo sérstök að nánast enginn ökumaður leið vel á hjólinu hans Ricky Carmichael. Hvað hjólið hans James Stewart varðar er að hann er með framdemparana svo stífa að þeir nánast hreyfast ekki við högg. Bendir MXA tímaritið á að þetta geti hentað vel í fullkominni braut eða þegar hún er splunkuný og hefur James Stewart sýnt það að hann nær frábærum tíma í tilraunaakstri eða í tímatöku. En þegar kemur að hinum raunverulega heimi þar sem þú hittir ekki alltaf akkúrat í þína línu og brautirnar geta slitnað mismunandi og illa, að þá henti þetta engan veginn og gerir það að verkum framendinn á það til að skauta undann manni með tilheyrandi falli og við höfum svo sem orðið vitni af því oftar en einu sinni síðustu ár. Í raun fullyrðir Motocross Action Magazine, sem hefur prófað bæði hjól Ricky Carmichael og James Stewart, að James Stewart eigi ekki við vandamál að stríða þegar kemur að hjóli, heldur er hans helsta vandamál uppsetning á framdemparanum. Eða eins og þeir orða svo pent, "James doesn't have tire or bike issues - he has fork issue".
Ellefta umferðin fór fram í Indianapolis um síðustu helgi. Margir vonuðust nú til að James Stewart fengi aukið sjálfstraust eftir sögulegan sigur í Daytona um síðustu helgi og myndi nú fara að velgja Ryan Villopoto undir uggum með framhaldið. Ja, ég ætla nú ekki að röfla um þessa blessuðu keppni og leyfa þeim sem vilja að horfa á hana að gera það einfaldlega hér fyrir neðan. Ætla þó að leyfa mér að segja að keppnin í Lites flokknum var söguleg og afar áhugaverð áhorfs. Er hún hér í heild sinni eins og hún var sýnd á Speed TV án auglýsinga. Gæðin eru mjög góð og ekkert af því að horfa á þetta á YouTube í dag.
Hér er fyrsta myndbandið af einhverjum inn í heim James "Bubba" Stewart og er sett saman af Red Bull. Fyrsti þátturinn fjallar nokkuð um það hvernig það kom til að hann fór að hjóla og keppa og er tekinn áður en hann gekk til liðs við JGR Yamaha fyrir komandi supercross tímabil. Svo sem enginn ný sannindi þarna en alltaf gaman að sjá þennan dreng hjóla þó hann hafi stundum aðeins villst af leið. Sumir eins og t.d. J-Law hefur verið elskaður fyrir það á meðan James Stewart hefur fengið bágt í skóginn en það fara svo sem ekki margir í skónna hans J-Law. Hér er svo sjálft myndbandið.
Um helgina fór fram níunda umfeðrin í AMA Supercrossi og fór hún fram í St. Louis. Margir bíða með ofvænni eftir keppninni sem fer fram í St. Louis þar sem jarðvegurinn sem notaður er á að heita að vera einstakur hvað drullumallara varðar og þykir með afbrigðum góður. Ég er einn af þeim sem gerði slíkt en ég verð eiginlega að segja að þessi keppni var eiginlega með þeim leiðinlegri í ár og varð ég fyrir miklum vonbrigðum. Alla vega var ekki þess virði að vaka eftir henni. Þetta var einhvern allt ráðið nánast eftir startið og síðan voru menn í tómri halarófu það sem eftir lifði kvöldsins áhorfendum til mikillar gleði eða þannig, alla vega hvað aðalkeppnina varðar. Undanriðlarnir voru ágætir. Það var einn og einn sem var að gera eitthvað og taka framúr en þar fyrir utan, mjög bragðlítil keppni og greinilegt að fjarvera Chad Reed er farin að sjást í opna flokknum. Ég ætla nú ekki alveg að eyðileggja áhugann fyrir þeim sem eiga eftir að horfa á keppnina en hægt er að horfa á hana hér fyrir neðan. En persónulega hefur mér fundist aðeins fjara undan supercrossinu í ár og er það ekki eins spennandi og í fyrra. Kannski eru væntingar mínar hreinlega of miklar í dag en mér finnst ekkert óeðlilegt að maður sé með væntingar þegar maður lítur á listann yfir ökumenn. Þetta er ÖLL keppnin, bæði lites og 450 flokkurinn.
Þar sem mér fannst þetta ekki neitt sérstaklega spennandi keppni, að þá verður fjallað um úrslitinn í mjög stuttu máli. Þau voru einfaldlega þannig að Justin Barcia tók anstæðinga sína í nefið og þurfa aðrir að fara að fá smá sinnep til að sprauta upp í óæðri endann á sér til að fara að eiga einhvern séns í kappann. Ken Roczen varð annar og Blake Wharton komst í fyrsta sinn á pall eftir mistök Justin Bogle sem var í rassgatinu á Ken Roczen fram á síðasta hring þegar hann gerir mistök og lýtur í gras. Það var eiginlega það mest spennandi í aðakeppninni í Lites flokknum. Í stóra flokknum að þá var það Davi Millsaps sem var með bestu ræsingu, Ryan Villopoto fór nánast strax fram úr og sagði bless. James Stewart var með hrikalega lélega ræsingu og lenti svo í því að lenta strax í samstuði og féll við það. Þar með var þetta hefðubundið kvöld að hætti James Stewart fyrir utan að nú keyrði kappinn sig upp og endaði í fjórða sæti en þetta tímabil er gjörsamlega búið hvað James Stewart varðar og mun ekkert breytast nema ef Ryan Villopoto fer í einhverja frumskógarferð með tilheyrandi tjóni. Ryan Dungey hangir í sínu og keyrir svo sem ágætlega en er ekki eins góður og Ryan Villopoto og endaði hann í öðru sæti. Justin Brayton skilaði sér í fyrsta sinn á pall í ár og verður það að teljast gott hjá kappanum sem er verulega laskaður eftir fall fljótlega í upphafi tímabils þar sem hann lenti mjög illa.
Þá er þessari upptalningu lokið og fátt um fína drætti að mínu mati. Svona eftir á að hyggja að þá er ég líklegast of dómharður en mér fannst þessi keppni einfaldlega aldrei spennandi og eftir að Justin Barcia eða Ryan Villopoto voru orðnir fremstir að þá var þetta nánast bara ein halarófa fyrir utan James Stewart og Blake Wharton sem voru að gera eitthvað af viti. Ég er þannig að ég vill fá baráttu á milli efstu manna og það vantar pínu blóðbragð í þetta dæmi við fráhvarf Chad Reed.
Umdeilt atvik átti sér stað í síðustu umferð í AMA Supercrossinu sem fór fram í Atlanta um síðustu helgi. Já, ég ætla mér ekki að glósa um sjálfa keppnina enda vita flestir sem það vilja hvernig keppnin fór og ég hef verið latur við síðuna upp á síðkastið. Atvikið sem ég ætla að tala um er þegar Ryan Villopoto stekkur þrefalt, þrefalt þrátt fyrir að rauð ljós loga og flaggari veifar eins og hann eigi lífið að leysa þegar vel er liðið á keppnina á meðan andstæðingar hans, bæði Ryan Dungey og James Stewart hægja á sér við þessar aðstæður og taka einfalt á þessum kafla eins og reglur gera ráð fyrir skv. AMA. Á þessum kafla dró Ryan Villopoto hvað mest á Ryan Dungey, þ.e. við þetta atvik og aftur dró í sundur með James Stewart og Ryan Villopto, en James Stewart hafði verulega sótt á bæði Ryan Dungey og Ryan Villopoto og var farinn að nálgast hann Ryan Villopoto ískyggilega. Atvikið sem um ræðir er þegar ökumaður fellur og þarf á aðstoð að halda út í braut. Við slíkar aðstæður eins og í þeim rythma kafla eins og við erum að tala um í Atlanta, að þá eru rauð viðvörunarljós sem kvikna og einnig er flaggari fyrir framan svæðið sem veifar svo sannarlega til að vekja athygli á hættunni. Reglan er að ökumaður sem kemur að slíkum kafla eftir að ljósin hafa verið kveikt og flaggari stígur fram til að veifa framan í ökumann, að þá á hann skilyrðislaust að hægja á sér og honum ber að stökkva eingöngu einfalt stökk og er þar með öllu óheimilt að stökkva tvöfalt eða þrefalt á þessum stað til þess að stofna ekki starfsmönnum sem og þeim sem þarfnast aðhlynnigar í óþarfa hættu.
Atvikið var kært og kom til kasta AMA og að einhverjum óskiljanlegum ástæðum sáu þeir ekki ástæðu til þess að refsa Ryan Villopoto þó svo að það er mjög augljóst að hann virðir ekki reglur í þessu tilviki. Erfitt er um það að segja hvað hefði gerst ef umrædd atvik hefði ekki átt sér stað og hugsanlega hefðum við séð James Stewart berjast við Ryan Villopto en það er alltaf auðvelt að segja hugsanlega og líklegast er niðurstaðan sú að þetta hefði ekki breytt neinu um endanleg úrslit. En engu að síður að þá hefur AMA undantekingarlaust refsað ökumönnum við þessar aðstæður og hafa minni menn verið settir í pitt í 5 sekúndur og fengið peningasektir. Ekkert slíkt var gert í þessu tilviki og verð ég að segja að eftir að hafa horft á þetta myndband hér fyrir neðan sem sýnir vel hvernig þetta lítur yfir fyrir ökumann að nálgast þetta, að þá þykir mér það undrum sæta að hann skuli ekki hafa í það minnsta hlotið peningasekt. Myndbandið er úr GoPro vél James Stewart, sem er á mjög svipuðum hraða og Ryan Villopto, þannig að ekki verður hægt að segja að Ryan Villpoto hafi farið svo hratt að hann hefði ekki tekið eftir þessu. Ökumönnum er kennt frá blautu barnsbeini að horfa fram fyrir sig, þangað sem þeir eru að fara, og ef aðrir tóku eftir þessu að þá hefði Ryan Villopoto átt að taka eftir þessu. En dæmi hver fyrir sig og erfitt er að fullyrða að hann hefði viljandi tekið sénsinn og ef svo er, að þá hagnaðist hann á því í þessu tilviki. Hægt er að sjá þetta þegar um 4:18 er liðnar af myndbandinu.
Já, maður hefur heyrt því fleygt fram að það geti verið kalt á toppnum og oft þegar viðkomandi er búinn að ná framúrskarandi árangir, að þá einangrist viðkomandi frá fjöldanum. Það virðist vera orðið tilfellið með James Stewart og allir þeir sem efast um að hann sé ekki að leggja á sig til að ná árangri ættu kannski að horfa á þetta myndband þar sem hann er að æfa einn að næturlagi nú fyrir stuttu. Við skulum ekki gleyma því á meðan við horfum á þetta myndband og gagnrýnum hann fyrir lélegan árangur í ár að þá skulum við ekki gleyma því að James Stewart var að keppa um síðustu helgi rifbeinsbrotinn á tveimur og það eitt og sér er mjög sársaukafullt. Brautin sem er heima hjá James Stewart virkar nánast "perfect" og þegar ég sá myndbandið að þá fór ég að velta því fyrir mér að þarna liggi kannski hluti af vandamáli James Stewart þar sem hann er orðin of góðu vanur og er ekki að hjóla nógu mikið í gatslitnum brautum eins og hugsanlega aðrir.