Monday, 27 February 2012 16:23

Zach Osborne #338 - alltaf flottur

Þetta verður líklegast síðasta árið sem við Evrópubúar eigum eftir að sjá þennan keppa á gamla meginlandinu og miklar líkur eru á því að hann hverfi aftur heim til Bandaríkjana eftir komandi sumar sökum góðrar frammistöðu í AMA Supercrossinu þar sem meir en minni líkur eru á því að hann fari á samning þar.  En Zach Osborne hefur keppt á meginlandinu í FIM mótaröðinni í að verða þrjú ár við ágætan orðstír.  Hann slasaðist vísu síðasta sumar og varð að hætta frekari keppni nánast áður en keppnistímabilið byrjaði en hann sýndi það í AMA Supercrossinu að hann er tilbúinn í slaginn á ný þar sem hann stóð sig með miklum ágætum.  Hann er einn af bestu fimm keppendum að mínu mati í MX2 flokknum í ár og gæti hæglega með smá heppni staðið uppi sem MX2 meistari í FIM mótaröðinni.  Zach Osborne gerir sér grein fyrir að líklegast er þetta síðasti séns fyrir hann að klára dæmið í MX2 því hann þarf að fara upp um flokk á næsta ári sökum aldursreglna FIM og það ýtir ennþá frekar undir þær sögusagnir að hann sé á leið heim aftur þar sem hann mun keppa.  En ekki eru sömu aldursreglur í AMA hvað Lites flokkinn varðar en Lites flokkurinn er MX2 flokkur þeirra í AMA og miðast við 250cc hjól.  Zach Osborne er í liði með Arnaud Tonus og saman keppa þeir fyrir Monster Energy Yamaha í MX2.

Published in Motocross
Wednesday, 14 December 2011 09:50

Liðin í FIM motocrossinu fyrir næsta tímabil

Hér má sjá liðaskipan fyrir FIM Motocross tímabilið á næsta ári, að vísu ekki allt fullskipað en engu að síður nánast fullmótað hjá flestum.  Menn eru nokkuð spenntir að sjá t.d. baráttu á milli Christophe Pourcel, Clément Desalle, Steven Frossard og Antonio Cairoli að ógleymdum Gautir Paulin sem hefur alveg sýnt að hann getur sigrað á 450 hjóli + David Philippaerts og Bobryshev.  Í MX2 verður baráttan líklegast á milli Tommy Searl, Jeffrey Herlings, Zach Osborne, Arnaud Tonus og Max Anstie.  Ansi mörg lið á KTM á þessu ári sýnist mér og verður tímabilið mjög "orange" litað.

Team Red Bull-Teka-KTM-DeCarli
Antonio Cairoli (MX1)
Maxi Nagl (MX1)
 
Red Bull-Teka-KTM Racing Team
Jeffrey Herlings (MX2)
Jeremy Vanhorebeek (MX2)
Jordi Tixier (MX2)
 
Team KTM UK-RedBull-HM Plant
Kevin Strijbos (MX1)
Elliot Banks-Browne (MX2)
 
Nestaan-JM Racing KTM
Jake Nicholls (MX2)
Glenn Coldenhoff (MX2)
Pascal Rauchenecker (MX2)
 
KTM Scott Racing Team
Lars Oldekamp (MX1)
Valentin Guillod (MX2)
Even Heibye (MX2)
 
Diga Racing Team
Jose Antonio Butron (MX2)
Priit Ratsep ? (MX2)
 
Team Silveraction-KTM
Davide Guarneri (MX1)
Marcus Schiffer ? (MX1)
 
KTM Lieber Racing Team
Cedric Lieber (MX2)
Julien Lieber (MX2)
 
Team STR-BoostEnergy-KTM
Matiss Karro (MX1)
Nathan Parker (MX1)
 
Team KTM Marchetti
Matteo Bonini (MX1)
Giacomo del Segato (MX2)
 
Monster Energy Yamaha Team
David Philippaerts (MX1)
Steven Frossard (MX1)
Christophe Charlier (MX2)
 
Yamaha-3C Racing
Simone Zecchina (MX2)
Samuel Zeni (MX2)
 
Monster Energy Yamaha Team
Zach Osborne (MX2)
Arnaud Tonus (MX2)
Shaun Simpson (MX1)
 
Team 2B-Yamaha Motors France
Gregory Aranda (MX1)
 
Kemea-Reytec-Yamaha Team
Kenny Vandueren (MX2)
Kevin Fors (MX2)
 
Yamaha-JK Racing Team
Herjan Brakke (MX1)
Alfie Smith (MX1)
 
Kawasaki Racing Team
Xavier Boog (MX1)
Gautier Paulin (MX1)
 
Team CP377-Kawasaki-MonsterEnergy-Pro Circuit
Christophe Pourcel (MX1)
Sebastien Pourcel (MX1)
 
Team Floride-Kawasaki-MonsterEnergy-Pro Circuit
Tommy Searle (MX2)
Joel Roelants (MX2)
 
BUD Racing-Kawasaki-Rockstar
Valentin Teillet (MX2)
Dylan Ferrandis (MX2)
 
Sturm Racing Team
? (MX1)
? (MX1)
 
ICE1 Racing Team
Dean Ferris (MX1)
Santtu Tiainen (MX1)
 
Riga Motocross Team
? (MX1)
? (MX1)
? (MX2)
 
Team Rockstar-Suzuki-Geboers World MX1
Clement Desalle (MX1)
Tanel Leok (MX1)
 
Team Suzuki International Europe
Harri Kullas (MX2)
Petar Petrov (MX2)
 
Team Standing Construct Suzuki World MX2
Jens Getteman (MX2)
Nikolaj Larsen (MX2)
 
Team Suzuki Valenti ?
Ivo Monticelli (MX2)
 
Honda World Motocross Team
Evgeny Bobrishev (MX1)
Rui Goncalves (MX1)
 
LS Motorsports
Ken de Dycker (MX1)
Jonathan Barragan (MX1)
 
Team Salucci-HM Honda
Manuel Monni ? (MX1)
Pierfilippo Bertuzzo ? (MX1)
 
Team Latvia Elskni Honda
August Justs (MX1)
Mihail Cociu (MX1)
Robberts Justs (MX2)
 
Garboldi Honda Racing
Max Anstie (MX2)
Aleksandr Tonkov (MX2)
 
Team HDI-Honda France
Milko Potisek (MX1)
Cedric Soubeyras ? (MX1)
 
TM Racing Team
Anthony Boissiere (MX1)
 
TM-Van Beers Racing
? (MX2)
? (MX2)
 
Team Husqvarna-Ricci Racing
Nick Triest (MX2)
Alessandro Lupino (MX2)
Dietrich – part time (MX1)
Published in Motocross

Nú er nýlokið undanriðlum í Motocross of Nations sem er ólympíuleikar okkar hjólamanna og skemmst er frá því að segja að liða Bandaríkjamanna virðist vera mjög dómenarandi í þessari keppni.  Í MX1 undanriðlinum var það Ryan Dungey sem sigraði en hann fékk keppni frá Ítalanum Antonio Cairoli og munaði rúmri sekúndu á milli þeirra.  Íslendingurinn Viktor Guðbergsson var í 24 sæti um tíma en endaði í 28 sæti.  Þegar MX2 riðilinn byrjaði, að þá átti maður von á því að Ken Roczen, Dean Wilson og Marvin Musquin myndi veita Blake Battett frá USA einhverja keppni en hann hreinlega rótburstaði þetta og hvarf hreinlega.  Ken Roczen hlekktist á og þurfti að vinna sig upp og endaði þetta þannig að Blake Baggett hreinlega tók keppinauta sína í nefið og vann með rúmlega mínútu forskoti.  Næsti maður var Marvin Musquin frá Frakklandi og Dean Wilson sem varð þriðji.  Eyþór Reynisson, eða "Íthor" eins og þulurinn kallaði hann var um tíma í 20 sæti en dettur og þurfti að vinna sig upp.  Endaði hann í 29 sæti.  Í síðasta riðli dagsins var það MX Open og þar var það sama sagan hjá liði USA.  Ryan Villopoto hreinlega hvarf sjónum og átti enginn möguleika í hann.  Verður að segjast að lið USA hefur sjaldan hin síðari ár litið sterkara út og verður erfitt að velta þeim úr sessi sem áskrifandur að sigri í þessari keppni.  Ítalinn David Guarneri varð annar og Frakkinn Gautier Paulin varð þriðji.  Þar með var það ljóst að USA var með fyrsta val á ráslhliði, Ítalir með annað val og Frakkar þriðja val.  Íslendingurinn Kári Jónsson tók þátt í MX Open og var hann um tíma í 24 sæti en endaði eftir daginn í 30 sæti.  Það dugði til þess að íslenska liðið komst inn í B-keppnina og mun sú keppni fara fram klukktíma á undann A-keppninni.  A keppnin hefst kl.11 að íslenskum tíma.  

Óska Íslendingum til hamingju með árangurinn og er hann mjög svipaður og verið hefur í öðrum keppnum hingað til.

Published in Motocross

Töluverður áhugi hefur myndast hér heima að skella sér til Frakklands til að sjá strákana okkar keppa á MXON þann 17-18 september.  Hún Klara í JHM er sú manneskja sem þú átt að tala við ef þú vilta skoða þau tilboð sem eru í gangi fyrir þá sem hafa áhuga, en það er eitthvað sértilboð fyrir okkur sem vilja fylgja þeim til Frakkalands á þessa keppni.  Hægt er að hringja í Klöru í síma 567-6116 eða 848-9980.  Pakkinn hljóðar upp á 64.100 kr. báðar leiðir og er þetta mun hagstæðara en að bóka sjálfur, er búinn að skoða það.  Sumir ætla að taka algjöran túrista á þetta og vera í kúlutjaldi eða einhverju sambærilegu á meðan sumir hafa hugsað sér að leigja sér húsbíl.  Miðað við það sem ég skoðaði á netinu í gær, að þá er hagstæðast að skipta við AVIS bílaleiguna hvað húsbílana varðar og er linkur á það hér.  Munar um 300-600 EUR á verðinu miðað aðrar sambærilegar leigur og munar um minna.

Víst við erum að tala um MXON keppnina að þá er ekki úr vegi að tala um listann yfir keppendur sem eru skráðir til leiks fyrir sitt land.  Að vísu mun listinn væntanlega taka einhverjum breytingum því Clément Desalle mun ekki keppa fyrir Belgíu vegna árekstur og áverka sem hann hlaut í síðustu umferðinni í Belgísku mótaröðinni.  Einnig finnst mér afar ólíklegt að David Philippaerts muni taka þátt fyrir ítalska liðið.  Hægt er að opna listann í heild sinni í viðhengi hér fyrir neðan sem pdf.

Published in Motocross

Og hér eru fleiri myndbönd frá Junior World MX of Nations sem fór fram á Ítalíu.  Skemmst frá því að segja að USA sigraði þetta mót og virðist sem þessir ungu ökumenn frá Bandaríkjunum ætli að halda áfram hefð þeirra eldri og vera efstir á palli í MXON ár eftir ár.  Kannski eftir 10 ár munu Íslendingar eiga fulltrúa þarna

Published in Motocross

Þá virðist vera fátt sem getur komið í veg fyrir að Antonio Cairoli tryggi sér fimmta heimstameistaratitilinn í FIM MX motocrossi og það í annað árið í röð í MX1.  Hans aðalkeppinautur, Clément Desalle, meiddist illa í belgísku mótaröðinni um helgina og verður út það sem eftir lifir tímabils og það sem meira er, hann verður ekki með á MXON í Frakkalandi í september.  Nýsjálendingurinn, Cody Cooper, mun taka sæti hans í Rockstar Suzuki í FIM MX1 mótaröðinni.

En það er ekki bara Clément Desalle sem er meiddur, hin geðþekki Andrew Short á KTM í Ameríku er einnig meiddur og verður ekki meira með í sumar.  Nú er spurning með framhaldið hjá honum og hvort samningur hans við KTM verður endurnýjaður en Roger DeCosta rær öllum árum að því að ná til sín Ryan Dungey og það þýðir að annað hvort fær Mike Alessi að fjúka eða Andrew Short, þ.e. svo framarlega sem hann nær að landa Ryan Dungey í hús.

Published in Motocross
Saturday, 13 August 2011 23:54

Junior World MX - MXON ungu strákana

Þegar ég hugsa til þess að þá var ég einhvern tímann búinn að heyra frá þessari keppni en þetta er í fyrsta sinn sem ég í raun sé eitthvað frá henni en þetta er frá MXON þeirra ungu, eða Junior World MX.  Þarna eru strákar að keppa á 65cc hjólum, 85cc og 125cc hjólum.  Það er kannski þarna sem MSÍ ætti að vera að fókusa upp á framtíðina að gera í sportinu.  Hér er myndband frá því að þeir koma á staðinn og labba í brautinni, sem fór fram á Ítalíu og síðan frá æfingum o.fl.  Kemur meira frá þessari keppni seinna þegar fleiri myndbönd koma á netið.

Published in Motocross

Þá er búið að velja liðið sem fer fyrir hönd Bandaríkjana á MXON í Frakklandi en það eru engir hálfkvissar sem taka þátt í þessu fyrir þeirra hönd.  En liðið mun samanstanda af Ryan Villopoto sem mun líklegast keppa í MX1, Ryan Dungey sem mun keppa í MX3 og Blake Baggett sem mun keppa í MX2.  Ekki er búið að staðfesta sum lið en búist er við að Ken Roczen og Max Nagl muni verða í liði Þýskalands en ákvörðunin um þriðja ökumanninn liggur ekki fyrir.  Í liði Ástrala verður þetta að öllum líkindum Chad Reed, Brett Metcalfe og Jay Marmont.

Published in Motocross

Í dag lauk ISDE í Finnlandi en Íslendingar áttu í fyrsta sinn lið í sögu þessarar einna erfiðustu liðakeppni hvers ár.  Keppnin var í fyrra fallinu í ár og stafar það af því að það vetrar snemma á þeim slóðum sem keppnin var haldinn og fyrir vikið, að þá þurfti að færa dagsetninguna til svo það yrði hægt að hafa keppnina á þessu svæði. Keppendur að þessu sinni voru þeir Haukur Þorsteinsson, Jónas Stefánsson, Árni Gunnarsson, Daði Erlingsson, Stefán Gunnarsson og Kári Jónsson.  Með þeim í för voru nokkrir góðir velunnarar sportsins á Íslandi sem voru þarna á eigin vegum til að styðja og hjálpa til eftir þörfum.  Skemmst er frá því að segja að þrír Íslendingar náðu að ljúka keppni en keppnin stendur yfir í sex erfiða keppnisdaga.  Það voru þeir Árni Gunnarsson og feðgarnir Jónas Stefánsson og Stefán Gunnarsson.  Hinir þrír, Haukur Þorsteinsson, Daði Erlingsson og Kári Jónsson urðu að hætta keppni vegna bilana sem gátu verið frá því að felgurnar eyðilögðust og allt að því að mótorarnir brotnaðu.  En ökumenn máttu ekki skipta um hjól og var takmarkað hvað mátti gera við hvert hjól í keppninni, en mig minnir að þeir hafa eingöngu haft um 15 mínútur til að gera við hjól í pitt þegar þeir komu inn á sérleiðunum og urðu ökumenn að gera við sjálfir, þ.e. máttu ekki þiggja utanaðkomandi aðstoð.  Vona að ég sé að fara með þetta rétt.  Ég óska Íslendingum til hamingju með árungurinn í þessari erfiðu keppni og eftir því sem ég best veit, að þá lenti Jónast Stefánsson í 30 sæti í  E1, Stefán Gunnarsson lenti í 23 sæti í E3 og Árni Gunnarsson lenti í 55 sæti í E2.  Er það glæsilegt eitt og sér að hafa lokið þessu móti.  Frábært strákar og hlakka til að heyra sögur.  Þetta fer í reynslubankann.

Þorri hefur verið að setja flotta pistla inn á motocross.is og ættu allir áhugamenn um enduro að lesa þá en hér fyrir neðan eru myndbönd sem ég fann af keppninni.  Ekki er komið fram myndband af síðasta keppnisdeginum, þ.e. í dag og mun ég henda því hér inn um leið og ég sé það á YouTube.

Published in Enduro

Yfirlýsing KKA vegna vals í liði fyrir MX des Nations

Á vef MSÍ kemur fram val á mönnum í landslið Íslands fyrir Motocross of Nations 2011, sbr. frétt.
 
Stjórn MSÍ skipaði Gunnlaug Karlsson liðstjóra landsliðsins ennfremur samþykkti stjórn MSÍ að skipa Karl Gunnlaugsson og Stefán Gunnarsson til að velja landslið í samráði við Gunnlaug til að keppa á Motocross of Nations þann 17. og 18. sept. n.k. í Frakklandi.  Í liðið voru valdir Viktor Guðbergsson, Eyþór Reynisson og Kári Jónsson.  Stjórn KKA telur að í þessum hópi hefði Bjarki Sigurðsson átt að vera. Vitanlega er erfitt að velja landslið og þar getur komið margt inní sem menn geta verið ósammála um og getur verið að æra óstöðugan að ræða og gagnrýna það mat sem fram getur þurft að fara. Í þessu tilfelli verður þó ekki komist hjá að gagnrýna valið vegna þess að augljóslega er ekki farið að reglum.  Reglur sem fylgja á við valið eru hér.
 
Í því tilfelli sem hér um ræðir koma aðallega til skoðunar 6. og 7. tl.  Við val á 1. keppanda liðsins skal valinn efsti keppandi í Íslandsmótaröðinni í MX-Opnum flokki eftir 4. umferð.  Eyþór Reynisson er efstur í þessum flokki og fer því ótvírætt í landsliðið.  En hvernig á að velja 2. og 3. keppanda í liðið?  Um það segir í 7. tl.: 2. og 3. keppandi liðsins skal valinn eftir árangri á yfirstandandi keppnistímabili í Íslandsmótaröðinni eða eftir árangri í keppnum erlendis.  Meginreglan hlýtur að vera sú, að valdir eru þeir sem koma í næstu sætum.  Vitanlega getur verið undantekning frá þeirri reglu t.d. ef einhver hefur ekki getað tekið þátt í t.d. einni umferð og er því með færri stig en t.d. sá í 2. sætinu en hefur unnið sínar keppnir og sýnt augljóslega betri árangur í þeim keppnum sem hann tók þátt í en hinn.  Meginreglan er hins vegar einfaldlega sú að stigin ráða, þ.e. sá sem hefur fleiri stig hefur staðið sig betur og sýnt betri árangur og á því að vera í landsliðinu. Í því tilfelli sem hér um ræðir eru engar sérstakar aðstæður sem réttlæta það að fara ekki einfaldlega eftir stigum efstu manna við val í landsliðið.  
 
Bjarki keppir bæði í MX-2 og MX open. Viktor og Kári keppa bara í MX Open. Eftir 4. umferð er Bjarki í 2. sæti í MX2 með 177 stig. Í MX Open er Kári í 2. sæti með 160 stig, Bjarki í 3. sæti með 153 stig og Viktor í 4. sæti með 138 stig.  Skv. 7. tl. reglnanna var maðurinn í 2. sæti valinn næst, þ.e. Kári.  Næsta val hefði átt að vera jafn einfalt þ.e. velja manninn í 3. sæti þ.e. Bjarka.  Því miður var gengið framhjá Bjarka og maðurinn í 4. sæti valinn í liðið, þ.e. Viktor.  Fyrir þessu þurfa að vera veigamikil rök en þau eru ekki fyrir hendi.  Bjarki er 7 stigum á eftir Kára en Viktor er meira en helmingi fleiri stigum eða 15 stigum á eftir Bjarka.  Bjarki varð í þessum sætum í fyrstu fjórum umferðunum, 2.-5.-5.-2. eða 3,5 sæti að meðaltali. Viktor varð í 9.-3.-4.-4. sæti eða í 5. sæti að meðaltali.  
 
Ef tekin eru moto-in þá er frammisstaðan þessi:
  • Bjarki: moto: 3-3-3-6-6-3-1-4 Meðaltal: 3,62
  • Viktor: moto: 10-8-5-2-2-5-4-3 Meðaltal: 4,87
Bjarki er einfaldlega með mun betri árangur á yfirstandandi keppnistímabili og því hefði átt að velja hann í landsliðið skv. reglunum.
 
Í rökstuðningi með landsliðsvalinu segir orðrétt:  „Bjarki hefur náð heldur betri árangri þegar litið er yfir heildina í fyrstu fjórum keppnum ársins.“ sbr. frétt.  Skv. reglum um valið hefði þessi skoðun ein og sér átt að nægja valnefndinni til að sjá að velja bæri Bjarka en ekki Viktor.  Það sem virðist ráða úrslitum hjá nefndinni er að Viktor hafi náð oftar betri tímum í tímatöku en Bjarki.  Það ættu allir að sjá að ekki er átt við þetta þegar segir í reglunum að velja skuli þann sem hefur náð betri árangri á yfirstandandi keppnistímabili.  Valnefndin virðist velja eftir því hver fór einstakan hring hraðast og verður því valið aftur óskiljanlegt þegar segir síðar í röksemdunum að Bjarki hafi að vísu oftar náð betri tíma í keppninni sjálfri.  Ekkert er farið út í það hvernig Eyþór hafi getað nýtt sér að hafa náð besta hring í tímatökum.  Nefndin segir ennfremur í rökum sínum að Viktor hafi mikla reynslu af keppnum erlendis og keppti með landsliðinu 2009.  Þessi reynsla er talin dýrmæt fyrir liðið.  Ekki er það skýrt nánar hvernig þessi reynsla er talin vera dýrmæt fyrir liðið.  Almennt séð er það vitanlega liðstjórinn sem miðlar sinni reynslu og sér um skipulag fyrir keppendur.  
 
Ef valnefndin telur að vegna reynslu sinnar erlendis muni Viktor ná betri árangri en Bjarki er það alveg úr lausu lofti gripið.  Bjarki er hraðari en Viktor, hann hefur náð betri árangri í ár (þrátt fyrir reynslu Viktors erlendis) og það breytist ekki við að fara til Frakklands.  Bjarki heldur áfram að vera betri þar.  Stjórn KKA telur reyndar að valnefndin hafi snúið þessu með reynsluna á haus.  Nefndin var í vafa með valið og því hefði hún átt að velja þann sem ALDREI hefur tekið þátt í MX of Nations frekar en þann sem MSÍ hefur sent út áður.  Að fara út er vegsauki og viðurkenning fyrir þann sem út fer, hins vegar er kannski ekki líklegt að við munum vinna til verðlauna enn sem komið er.  Auk þess fá menn ekki reynslu nema með því að fá að keppa erlendis. Þess vegna er það hringavitleysa, að setja það fram sem rök, að Viktor sé valinn núna vegna þess að hann hafi verið valin áður.  Með þeim rökum munum við alltaf senda sömu menn út.  Með tilliti til þess að Viktor hefur áður verið sendur út þá hefði átt að leyfa Bjarka að komast að núna, sérlega vegna þess að hann hefur náð betri árangri hér heima.
 
Að síðustu segir nefndin að hún hafi valið Viktor vegna þess að hann ekur á 450cc hjóli en Bjarki á 250cc hjóli. Engin stoð er fyrir þessu í reglum um val í liðið. Hvergi er tekið fram að það eigi að velja eftir flokkum, það á einfaldlega að velja þá þrjá menn í liðið sem hafa náð bestum árangri. Valnefndin segir að reynsla Viktors á 450cc hjóli sé betri fyrir heildarútkomu liðsins. Hvernig finnur valnefndin það út? Bjarki hefur náð betri árangri á 250 cc hjóli sínu en Viktor á 450cc hjólinu og heldur áfram að gera það þó keppt sé í Frakklandi.  Þegar öllu er á botnin hvolft þá hefur Bjarki náð betri árangri á Íslandsmeistaramótinu og því hefði átt að velja hann skv. reglum um valið. Okkar mat er að nefndin hafi ekki farið eftir reglum um val á liðinu.  Augljóslega er það yfirmáta bagalegt að slíkt skuli koma fyrir þar sem margir hafa lagt mikið á sig og sett sér markmið í samræmi við reglurnar um val í liðið.
 
Engin ákvæði eru um að láta önnur viðhorf hafa áhrif á valið, eins og t.d. hvers konar hjól menn aka í keppnum á Íslandi o.s.frv.  Stjórn KKA telur valið ekki vera skv. reglum og því rangt og mjög ósanngjarnt gagnvart Bjarka sem eins og aðrir hefur keppt að því að komast í þetta lið með því að ná sem bestum árangri í mótaröðinni.  Við teljum að valnefndin hafi ekki staðið sig vel í þessu máli.  Spurningin er hins vegar m.a. sú hvort valnefndin sé því sammála og hvort hún geti yfirleitt eitthvað gert í málinu til að leiðrétta þetta svo vel sé.
 
Stjórn MSÍ skipaði valnefndina og veitti henni vald til verksins.  Nú sýnist okkur ljóst að nefndin hafi ekki farið að lögu sambandsins og er spurning um gildi ákvörðunar valnefndar, sem fékk vald sitt frá stjórn MSÍ að sjálfsögðu með því skilyrði að farið yrði að lögum sambandsins.  KKA skorar á stjórn MSÍ að taka málið fyrir á fundi sínum.  Fara yfir lögmæti og gildi ákvörðunar valnefndar.  Ef stjórnin kemst að því að ekki hafi verið farið að lögum hlýtur ákvörðun valnefndar að vera ólögmæt og valið verður þá framkvæmt upp á nýtt á grundvelli laga sambandsins.  Liðið verður þá skipað upp á nýtt í samræmi við 3. tl. reglnanna þ.e.:  Liðsstjóri í samvinnu við stjórn MSÍ skipar í keppnisliðið.
 
Stjórn KKA taldi rétt að koma þessum viðhorfum á framfæri til að minnka líkur á því að sömu mistök verði gerð í framtíðinni.
 
Akureyri 9. ágúst 2011.
 
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar KKA
Þorsteinn Hjaltason formaður
 
Yfirlýsinguna eins og hún birtist frá KKA og var send MSÍ er hægt að nálgast hér fyrir neðan.
Published in Motocross
Page 1 of 5