Síðasta laugardag fór fram fyrsta umferðin til Íslandsmeistara í motocrossi.  Mikil spenna var fyrir mótið og það af tvennum ástæðum. Í fyrsta lagi var búið að fjölga umferðum úr fimm í sex og var tímabilið að byrja allt af því mánuði fyrr en venjulega og lék mönnum forvitni á að sjá hvernig menn kæmu undan vetri því undirbúningur var styttri.  Í öðru lagi var Aron Ómarsson að snúa aftur á ráslínu eftir árs fjarveru og hlökkuðu margir til að sjá hann og Eyþór Reynisson Íslandsmeistara í MX2 og MX Open eigast við í ár.  Keppnin fór fram í Bolaöldu og voru aðstæður hreint út sagt ágætar þó hálf kalt hafi verið í veðri framan af þar sem norðanáttin gældi við kinnar með sínum kalda kossi.  Það voru þó óvenju mikið af afföllum af ökumönnum í keppninni og meiddust um sex ökumenn og sumir nokkuð alvarlega.  Er þetta með hæsta móti frá því að ég fór að fylgjast með þessu og meðal þeirra sem þurftu á aðhlynningu að halda voru Friðgeir Guðnason sem fór í aðgerð í morgun vegna óvenjulegs viðbeinsbrots, Tedda sem rifbeinsbrotnaði á tveimur og meira til og svo Eyþór Reynisson sem laskaðist verulega á öxl en er ekki brotinn að sögn lækna.  Já, við Íslendingar virðumst ætla að taka upp ósiði ökumanna í AMA Supercrossinu í ár og hefja sumarið með stæl, alla vega hvað meiðslalistann varðar.  Hvað sem olli því, að þá vona ég að þessu sé hér með lokið í ár og fleiri ökumenn falli ekki frá keppni vegna meiðsla.

En víkjum að keppninni sjálfri.

MX kvenna:  Bryndís Einarsdóttir kom, sá og sigraði hjá skvísunum.  Signý Stefánsdóttir átti þrusustart í báðum moto-um en tók því miður of oft jarðvegssýni úr Bolaöldu, vissi ekki að hún væri komin með nýja söfnunaráráttu, og fyrir vikið missti hún Bryndísi frá sér og gat ekki veitt henni þá keppni sem þurfti.  Alla vega í fyrra moto-inu.  Það verður ekki af Bryndís tekið að hún keyrði KTM 125-una fanta vel en það hefði verið skemmtilega ef Signý hefði ekki þurft að falla við og veitt henni þá keppni sem hefði kætt okkur áhorfendur.  Kannski næst, hver veit.  Karen Arnardóttir, núverandi Íslandsmeistari, var ekki með sökum meiðsla á hendi sem hún varð fyrir á æfingu rétt fyrir mót einmitt í Bolaöldu en í staðinn sveiflaði hún pylsum og gosi í takti við GusGus sem hljómaði ótt og títt í hátalarkerfinu þennan dag.  Einnig keyrði Aníta Hauksdóttir vel og skilaði það sér í því að hún varð í öðru sæti eftir daginn.  Úrslit dagsins voru þá þannig að Bryndís Einarsdóttir sigraði, Aníta Hauksdóttir varð önnur og Signý Stefánsdóttir varð þriðja.  Vinkonurnar og hefðarfrúrnar Björk og Tedda í áttu ekki góðan dag. En eins og að framan var greint, að þá lenti Tedda því miður í því að detta illa eftir að ökumaður fellur fyrir framan hana með.  Bína fer í aðgerð á hendi á morgun og verður frá í einhvern tíma.  

Það atvik átti sér stað að einn ökumaður tók framúr þegar verið var að sinna Teddu út í braut og það þrátt fyrir að veifað væri gulu flaggi.  Fyrir vikið að þá var þátttaka hennar dæmd ógild í umræddu moto-i og fékk hún enginn stig.  En til áréttingar fyrir þá sem ekki vita að þá er stranglega bannað að taka framúr á gulu flaggi og sérstaklega þegar verið er að sinna slösuðum ökumanni út í braut.  Einnig ítreka ég það fyrir ökumönnum að passa að skipta ekki um línu á palli, eða með öðrum orðum halda þeirr akstursstefnu sem þú hefur þegar þú kemur á pallinn.  Allt annað skapar mikla hættu og getur valdið því að hraðari ökumaður getur lent í því að stökkva beint á þann sem er fyrir framan þar sem sá skipti um línu upp á palli við lendingu eða skipti um línu í lofti.  Tvær vinkonur lentu saman á stóra pallinum í síðari moto-inu sem endaði á þann veg að önnur þeirra fer fram af pallinum sunnan meginn (þar sem er brattara og fjarri áhorfendum).  Var það mikil mildi að ekki fór verr hjá henni og þótti það undrum sæta þegar hún komst hjálparlaust upp og hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist.  Já, lukkudísirnar voru svo sannarlega með henni í för í þetta skiptið.

MX 85cc:  Tveir ökumenn voru í algjörum sérflokki þennan dag og það voru þeir Hlynur Hrafnkelsson og Þorsteinn Sigurðsson sem stungu aðra keppendur af og hengju límdir við hvorn annan frá fyrstu beygju og allt til loka.  Voru þeir að keyra á hörkutíma, eða á 2:09 hringinn sem var sami hraði og margir í MX unglinga voru að keyra á.  Hlynur hafði betur og leiddi alla hringi frá ræsingu allt til enda með Þorsteinn andandi í hálsmálið á sér allan tímann.  Oft munaði mjóu og sérstaklega í fyrra moto-inu þegar Þorsteinn var ansi nálægt því að ná framúr en Hlynur var með stáltaugur og hafði betur.  Hrikalega flottur akstur á þessum piltum.  Sá ökumaður sem hafði vonast eftir að geta blandað sér í topp baráttuna með þeim tveim, Óliver Örn Sverrisson er búinn að eiga í lítilsháttar vélarbilun síðustu daga sem gerir það að verkum að hjólið vinnur ekki upp á snúning og því varð hann að horfa á eftir þeim tveimur strax eftir fyrstu beygju.  Óliver varð þó nokkuð öruggur í þriðja sæti eftir daginn þrátt fyrir að sárlaga vantaði upp á vinnslu í hjólinu.  Sem sagt Hlynur Hrafnkelsson sigurvegari dagsins, Þorsteinn Sigurðsson í öðru sæti og Óliver Örn Sverrisson í þriðja sæti.  Það er ljóst að þessi flokkur á eftir að verða spennandi í sumar ef þetta heldur áfram sem horfir.

Veitt voru verðlaun fyrir 85cc yngir ins og venjulega og var Kári Tómason hlutskarpastur af þeim ökumönnum.  Davíð N. Ragnarson, sonur Ragga heimsmeistara, varð í öðru sæti og Sebastian G. Arnfjörð Vignisson varð þriðji.  Sárlega vantar meiri nýliðun í sportið og er þessi flokkur með minnsta móti sem hlýtur að vera áhyggjuefni hjá MSÍ.

MX unglinga:  Þessi flokkur var spennandi eins og alltaf og var Guðbjartur Magnússon sem var með góðar ræsingar.  En fljótlega sýndi Ingvi B. Birgisson hvað í honum bjó og keyrði hreint út sagt frábærlega til sigurs.  Þessi gaur er súper "smooth" og hrein unun að horfa á kvikindið keyra.  Það virkar allt svo átakalaust.  Þeir Guðbjartur og núverandi Íslandsmeistari unglinga, Hinrik Óskarsson, virðist alltaf finna leið til að finna hvorn annan og berjast.  En þessi háttur hefur verið á síðan þeir kepptu í 85cc flokknum.  Er þetta svona svipað og þegar James Stewart og Chad Reed virðist fyrir einhverja hluta sakir alltaf finna hvorn annan út í braut til að berjst sín á milli.  Já, það er eitthvað sem dregur þessa tvo saman.  Að þessu sinni hafði Hinrik betur en hafði ekki svar við hraða Ingva og varð að sætta sig við annað sætið í fyrsta móti ársins.  Í sjálfu sér ekki slæm úrslit en greinlegt að pilturinn vildi meira.  Guðbjartur Magnússon endaði þriðji eftir daginn og ljóst að þessir þrír eru sér á parti í ár.  Sá ökumaður sem hefur tekið hvað mest framförum síðustu ár er Aron Berg Pálsson sem hefur bætt sig mikið á milli ára.  Ég man þegar hann byrjaði að keppa og er dagur og nótt á milli þess hvernig hann ók þegar hann tók þátt í fyrstu keppni sinni og til dagsins í dag.  "Keep up the hard work, Aron".

Veitt voru verðlaun fyrir yngri flokk ökumanna í MX unglinga og að þessu sinni var bara einn ökumaður sem uppfyllti þau skilyrði en það var hann Ísak F. Hilmarsson.

MX-B:  Þessi flokkur er orðin hrikalega stór og þetta er andskotans ekki orðin neinn B-flokkur lengur...  Þið fyrirgefið orðbragðið.  Þetta er sannkallaður hetjuflokkur sem skartar mörgum af betri ökumönnum landsins.  Þessi flokkur er keyrður með 40+ flokknum og þegar hópurinn er komin saman í einn flokk á ráslínu að þá er þetta sannarlega hetjuflokkur enda þarna eru ökumenn sem keppt hafa óslitið nánast í tugi ára eins og t.d. Raggi heimsmeistara, Reynir Jónsson, Haukur Þorsteinsson svo einhverjir séu nefndir.  Fyrir vikið að þá er orðið hriklega gaman að horfa á þennan flokk en ég man þá tíð þegar ég vildi þennan flokk burt út Íslandsmótaröðinni og taldi að hann ætti betur heima í bikarmótum.  Well...  Ef hann væri ekki til staðar í dag, að þá væri keppnin af fátækleg og hátt í þrjátíu ökumönnum fátækari.  Ég er alla vega hæstánægður í dag að þessi hópur ökumanna er með í Íslandsmeistaramótinu enda litríkir karektarar þarna á ferð sem flestir hafa gott af að kynnast.  Í B-flokknum undir 40 ár að þá sigraði Atli M. Guðnason, Jóhann S. Gunnarsson varð annar og Michael B. David varð þriðji en hann tók góða dýfu í fyrstu beygju ásamt Robert Knasiak.  Í flokki heldri manna, að þá sigraði Ragnar I. Stefánsson örugglega, Reynir Jónsson varð annar og Haukur Þorsteinsson varð þriðji.  Já, að horfa á verðlaunapallinn í þetta skipti var eins og "flash back" til ársins 1990 eða eitthvað álíka :)

MX2:  Eftir nokkra hringi í þessum flokki var ljóst að núverandi Íslandsmeistari Eyþór Reynisson myndi ekki skora hátt í þessu móti þar sem hann endaði í sjúkrabíl með laskaða öxl og varð því með DNF (Did Not Finish) í mótinu.  En Ingvi B. Birgisson og Hinrik Óskarsson tóku einnig þátt í MX2 flokknum og að mínu mati er það ákveðið þrekvirki sem ég mæli ekki með að menn geri nema þeir hafi styrkleika og getu til.  En viti menn, Ingvi B. Birgisson gerði sér lítið fyrir og sigraði í þessum flokki og vann því tvöfalt þennan dag.  Annar varð Hjálmar Jónsson en ég var alltaf að spá í að mér fannst eitthvað öðruvísi við Hjámar í mótinu og síðan komst ég að því í lok dags að það var að hann var að keyra á 250F hjóli og tók þátt í MX2.  Þá varð það bara einfaldlega það, var orðin vanur að sjá piltinn á 450 hjóli.  Í þriðja sæti varð Kjartan Gunnarsson sem fór einu sinni hressilega fram fyrir sig og var þar með í hóp þeirra sem tók góða dýfu í þessari keppni.  En Kjartan varð ekki meint af, sem betur fer.

MX Open:  Þegar Eyþór Reynisson féll og varð að hætta keppni varð ljóst að ekki yrði sú keppni þennan dag á milli hans og Aron Ómarssonar sem var að hefja keppni aftur.  En sem betur fer fyrir áhorfendur að þá var þetta ekki alveg spennulaust og var Viktor Guðbergsson ekkert á því að láta Aron taka öll stiginn heim.  Aron sigraði fyrsta moto-ið en Viktor gerði sér lítið fyrir og hafði betur í síðari moto-inu og stóð uppi sem sigurvegari dagsins í MX Open.  Var virkilega gaman að sjá keppnina í þessum flokki og fannst mér hann skemmtilegri að horfa á en oft áður og mikil barátta á milli ökumanna.  Kári Jónsson endaði þriðji eftir daginn eftir jafnan og góðan akstur en mér skilst að hann hafi hreinlega verið búinn á því í lokin.  Sem sagt Viktor Guðbergsson endaði fyrstur eftir daginn, Aron Ómarsson annar en á jafn mörgum stigum og Viktor og Kári Jónsson þriðji.

Það er ljóst eftir þetta fyrsta mót að það verður spenna í nánast öllum flokkum.  Enginn virðist ætla að geta gert tilkall til þess að labba með þetta heim og verð ég að segja að byrjunin lofar góðu þó svo að ég hefði gjarnan viljað vera án þeirra meiðsla sem ökumenn urðu fyrir í fyrsta móti ársins.  Vill ég þakka VÍK fyrir að taka keppnina að sér með svona litlum fyrirvara sem og öllum keppendum sem tóku þátt því án þeirra væri ekkert Íslandsmeistaramót.  Get varla beðið eftir næsta móti og er ekki frá því að ég er bara nokkuð spenntur fyrir sumrinu.  Hvað myndir varðar að á tók ég slatta af myndum en þær voru aldrei þessu vant slitróttari en nokkrum sinni áður og verð ég að segja mér til afsökunnar að þennan dag varð ég að sinna óvenju miklu mekkastarfi, hlut sem ég hef ekki þurft að hafa mikið fyrir síðustu ár og hef ég því haft þann lúxus að geta vafrað um svæðið og tekið myndir í gegnum tíðina. Hægt er að skoða myndirnar frá mér með að smella hér en það vantar inn í myndirnar allan MX Unglinga og einnig B-flokk af framangreindri ástæðu.  Biðst ég forláts á því.  Ég tók upp eitthvað myndaband af síðari moto-inu í MX Open sem ég mun birta fljótlega á síðunni.  Maður mótsins var að mínu mati Ingvi B. Birgisson sem sigraði bæði MX unglinga og MX2.

Published in Motocross
Sunday, 12 February 2012 19:07

Góðri íscrosskeppni lokið á Akureyri

Fyrstu umferð og mjög skemmtilegri íscrosskeppni lauk á laugardaginn við frábærar aðstæður á Akureyri en fór keppnin fram á Leirutjörn.  Það verður ekki að hægt að kvarta yfir neinu þarna fyrir norðan og vel að öllu staðið.  Íscrosskeppnin er hluti af hátíðinni "Éljagangi" og verður væntanlega áfram.  Ágætis skráning var fyrir keppnina og voru um fjörtíu keppendur skráðir til leiks en því miður var aðeins einn keppandi skráður í 85 flokkinn og var það Óliver Ö. Sverrisson.  Í kvennaflokki stóð baráttan á milli Andreu D. Kjartansdóttir og Signý Stefánsdóttir og voru þær í nokkrum sérflokki.  Andrea Dögg stóð uppi sem sigurvegari og má því helst þakka að hún gerði lítið af mistökum á meðan Signý þurfti að sætta sig við að falla tvisvar í tilraunum sínum til að ná og fara fram úr Andreu.  Bryndís Einarsdóttir er líklegast sáttari við hlut sinn í þessari keppni en í fyrstu íscrosskeppninni í fyrra sem fór fram á Mývatni, en hún meiddist í þeirri keppni og hafði það veruleg áhrif á undirbúning hennar fyrir síðasta tímabil í FIM mótaröðinni erlendis.  Bryndís varð í þriðja sæti í þetta skiptið.  Í unglingaflokki að þá var það enginn annar en sonur "Lópó" eins og hann er kallaður sem kom sá og sigraði.  En Victor I. Jacobsen hefur bætt sig mikið á síðustu tveimur árum og er farin að líkjast föður sínum æ meira í aksturslagi.  Í öðru sæti varð Bjarni Hauksson og í þriðja sæti varð Einar Sigurðsson sem lét til leiðast og var með þar sem keppnin var fyrir norðan á Akureyri.

Í vetrardekkjaflokki var það Kári Jónsson sem stóð uppi sem sigurvegari og er þessi reynslubolti í íscrossinu vel að sigrinum komin.  En það var svo sem ekki átakalaust og fékk hann óvænta keppni frá nýliðanum í vetrardekkjaflokki, Guðbjarti Magnússyni, sem gerði sér lítið fyrir og varð í öðru sæti og var eiginlega óheppinn að landa ekki sigri í öðru moto-i en þá leiddi hann lengi vel en missti svo Kára Jónsson fram úr sér þegar um þrír hringir voru eftir og síðan læddi Bjarki Sigurðsson sér fram fyrir hann á lokametrunum.  Þó svo að Kári hafi klárað þetta, að þá var mikil keppni um næstu sæti á eftir og er ég ekki frá því að þar hafi verið einna harðasti keppnin dagsins þar sem fjórir til fimm ökumenn voru límdir við hvorn annan leitandi leiða til að taka fram úr hvorum öðrum eða bíðandi eftir mistökum hinna.  Þetta voru þeir Bjarki Sigurðsson, Daði Erlingsson, Eyþór Reynisson, Haraldur Örn Harldsson og svo Guðbjartur Magnússon.  En Guðbjartur Magnússon varð annar eftir daginn og keyrði feykilega vel.  Bjarki Sigurðsson kom sjálfum sér á óvart og endaði þriðji eftir daginn en Eyþór Reynisson átti skemmtilega innkomu í sportið og verður ekki annað hægt að segja að árangur hans hafi vakið athygli þó svo að honum hafi hlekkst aðeins á í síðasta moto-inu.  Daði Erlingsson varð að sætta sig við að horfa á eftir verðlaunasæti og einnir Haraldur Ö. Haraldsson sem keyrði mjög vel.  Helsti munurinn á Kára og öðrum keppendum lá fyrst og fremst í bremsutækni að mínu mati.  Kári náði að bremsa 2-3 metrum síðar en flestir þeir sem hann keppti við og það gaf honum það forskot sem skóp honum sigurinn þó svo að ég ætli ekki að gera lítið úr hæfileika hans til að taka beygjur á hvínandi ferð.

Í opna flokknum varð það enginn annar en gamla brýnið Jón K. Jacobsen eða "Lópó" eins og hann er kallaður.  Var gaman að sjá hann stríða ungu strákunum og landa svo sigri eftir allt saman.  Jón Á. Þorláksson varð annar og Gunnlaugur Karlsson eða bara Gulli varð í þriðja sæti.  Var Gulli að snerta ísinn í fyrsta sinn í vetur og ég held meira að segja að hann hafi verið að hjóla í fyrsta sinn í fimm mánuði.  

Ég tók nokkrar myndir úr keppninni og er hægt að sjá þær með að smella hér.  Hér er svo smá myndband sem sýnir frá keppnishaldinu í FIM mótraröðinni í íscrossi eins og þeir halda það þarna í útlandinu og er gaman að sjá samanburðin.

Published in Íscross

Mér til mikillar ánægju rak ég augun í nafn Eyþórs Reynissonar í nýjasta tölublaði Racer X Illustrated en blaðið er að skoða meistara í nokkrum löndum á heimsvísu.  Já, kappinn er merkilegur fyrir þær sakir að hann er bæði meistari í MX1 og MX2.  Gaman að sjá að þeir hafa haft fyrir því að kíkja á litla Ísland til að skoða hverjir hafa unnið hvað.  Ég er áskrifandi af Racer X Illustrated á netinu og fæ því blaðið áður en það kemur í verslanir.  Ánægður með þetta og Eyþór, "drífa sig út í búð að kaupa blaðið þegar það kemur í verslanir".  Sorrý, því miður enginn mynd af kappanum en nafnið fer ekkert á milli mála hjá íslenska fánanum.  Ekki allir sem geta sagt að þeir hafi verið nefndir í Racer X Illustrated.  Fyrir þá sem ekki vita að þá er Racer X Illustrated eitt stærsta tímarit í heiminum um motocross og stærsta sinnar tegundar í Ameríku.  Blaðið státar jafnframt af flestum áskrifendum af tímaritum í þessum flokki.    

Published in Motocross

Um helgina fór fram það sem við myndum kalla MXON unglinga og í 85cc ökumanna og fór keppnin fram í Belgíu.  Tveir Íslendingar tóku þátt í keppninni og voru það þeir Eyþór Reynisson og Guðbjartur Magnússon.  Eyþór Reynisson var með fjórtánda besta tímann eftir æfingar á laugardaginn en ég veit ekki hvað hefur komið fyrir á sunnudaginn en það er ljóst að eitthvað hefur komið upp á því hann er ekki með nema um 8 hringi í einu moto-inu á móti 12 eða13 hjá þeim sem sigruði í þeim moto-um.  Guðjartur Magnússon stóð sig ágætlega í þessari keppni og virðist hafa gengið betur í aðalkeppninni en Eyþóri og skilaði sér mun hærra á stigatöflunni.  Það voru svo Frakkar sem stóðu uppi sem sigurvegarar í þessari keppni sem einhver þýddi svo snyrtilega á síðum motocross.is sem "framtíðarbikarinn".  Greinilegt að Frakkar eru gífurlega sterkir í motocrossi þessa dagana og eiga topp ökumenn í öllum flokkum.

Published in Motocross

Eyþór Reynisson og Guðbjartur Magnússon munu taka þátt í MXON unglinga fyrir Íslands hönd en þessi keppni fer fram í Belgíu helgina 8 - 9 október.  Fleiri Íslendingum var boðið og ég held að Viktor Guðbergsson hafi verið einn af þeim en fer ekki að þessu sinni.  Ég hef ekki nánari deili á hvar nákvæmlega þessi keppni fer fram en ég hef þó þær upplýsingar frá Reyni, faðir Eyþórs, að þetta sé um það bil 1 og hálfs klukkutíma fjarlægð frá Lommel.  Því miður enginn útsending frá þessari keppni og afar lítið um hana að finna á erlendum netmiðlum, því miður.  Ég veit ekki einu sinni hvort hægt verið að fylgjast með tímunum á þeim á meðan þeir keppa en það á eftir að koma í ljós.  Mestu máli skiptir að þarna eru góðir ökumann að fá mikla reynslu því þátttaka í svona móti er enginn smá pakki.   Ég óska þeim báðum góðs gengis og vona að ég eigi eftir að finna eitthvað bitastæðara um þessa keppni til að upplýsa ykkur um ferð þeirra og sjálfa keppnina.  Ég veit þó að fyrirkomulagið er það sama og er í MXON sem við þekkjum og fylgjumst svo mikið með af mikilli áfergju.

Published in Motocross

Kári Jónsson tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í ECC1 þriðja árið í röð og undirstrikar það enn og aftur að hann er einn okkar allra besti ökumaður í enduro.  Kári lauk keppni með fullu húsi stiga sem er frábær árangur.  En það var ekki bara Kári sem náði sér í titil í gær því Eyþór Reynisson náði sér í sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í enduro eða í ECC2 flokk.  Þetta er fyrsta árið sem Eyþór keppir fulla seríu í enduro og er árangur hans því eftirtektarverður fyrir þær sakir.  Er þetta þriðji titil Eyþórs í ár.  Guðbjartur Magnússon varð sigurvegari í B-flokknum, Signý Stefánsdóttir í kvennaflokknum en hér fyrir neðan má sjá röðina eins og hún var eftir tímabilið.  

 

Íslandsmeistarar árið 2011 í Endúró eftir flokkum:

  • ECC-1 : Kári Jónsson
  • ECC-2 : Eyþór Reynisson
  • Tvímenningur: Gunnar Sölvason og Atli Már Guðnason
  • B flokkur: Guðbjartur Magnússon
  • B40+ : Magnús Guðbjartur Helgason
  • Kvennaflokkur: Signý Stefánsdóttir

Það eru engar myndir frá mér úr þessari umferð því ég var á gæsaskytterí þessa sömu helgi en ég fékk leyfi til að nota myndir frá Halldóri Björnsyni eða Dóra Bjöss eins og hann vill kalla sig og þakka ég honum fyrir lánið.

Published in Enduro
Thursday, 25 August 2011 23:43

Motomos - Í Túninu Heima

 

Í tilefni bæjarhátíðar Mosfellsbæjar,  Í Túninu Heima ætlar Motomos að vera með smá húllum hæ í brautinni.
Landsliðsmennirnir Eyþór Reynis og Viktor verða með fría kennslu í stóru brautinni og Friðgeir Óli og Kjartan verða með
fría kennslu í barnabrautinni.  En þessir kappar hafa allir fengið afreksmannastyrk hjá félaginu.
 
Kennslan byrjar kl 13.00 og klukkan 14.30 ætlum við í  Motomos að taka nokkur stört.
 
Eysteinn og Lúlli eru með brautina er í extrem makeover þessa dagana, og verður hún því ekki opnuð fyrr
en kl 13:00 á sunnudaginn, hún hefur aldrei verið betri.
Ekki missa af þessu því nú verður fjör!!!!
 
Aldrei að vita nema Þórir og Balli skelli nokkrum pylsum á grillið
 
Munið eftir miðum á N1 í Háholtinu.
 
Published in Motocross

Fréttatilkynning frá Klett, umboðsaðila Dunlop á Íslandi

 

Hjólbarðadeild Kletts sem er umboðsaðili fyrir Goodyear og hin vinsæluDunlop mótorhjóladekk á Íslandi.

Í tilefni þess að krossið er byrjað að rúlla þá var ákeðið að gefa þeim sem sigrðuð í fyrstu keppni, og óku á Dunlop, tösku fyrir búnaðinn sinn.  Þetta eru mjög vandaðar töskur frá Alpinestar.

Þeir sem unnu fyrstu keppni voru eins og flestir vita:

Eyþór Reynisson sigurvegari í MX1/2 og Guðmundur Kort í MX Unglinga.

Starfsmenn Hjólbarðadeildar Kletts afhentu þeim nýju töskurnar.

Fyrsta keppnin sýndi að það verður spennandi keppnisár framundan.

Hjólbarðadeild Klett óskum öllum keppendum góðs gengis í sumar.

Published in Motocross

Eyþór Reynisson varð því miður aðeins einu sæti frá því að komast í aðalkeppnina á morgun í Valkenswaard í Hollandi.  Yfir 100 keppendur reyndu fyrir sér í EMX2, sem er sá flokkur sem Eyþór er þáttakandi í, og má segja að þarna hafi verið rjóminn af topp ökumönnum í hverju landi fyrir sig.  Eyþór lenti í 41 sæti en hefði þurft að lenda í 40 sæti í tímatökunni til að komast í aðalkeppnina þar sem 40 keppendur raða sér á línu.  Þannig að Eyþór var aðeins einu sæti frá því að komast inn í aðalkeppnina.  Fyrir þá sem ekki vita að þá erum við að tala um Lommel brautina sem er ein erfiðasta sandbraut sem þú getur keppt í, þannig að þrátt fyrir að hafa ekki komist inn í aðalkeppnina, að þá var hann að keyra hraðar en rúmlega 60 aðrir ökumenn frá öðrum löndum sem eiga að vera með þeim bestu í sínu heimalandi.  Nú þarf bara að leggja ennþá harðar að sér og gera sig klárann í næstu keppni sem er handan við hornið.  Já, það þýðir ekkert að leggja árar í bát heldur spýta í lófana.  Líta verður á þessa útkomu sem reynslu og stígandi lukku er best að stýra.

Hægt er að horfa á þetta á www.mx-life.tv og er útsending þegar hafin frá Valkenswaard þar sem það er viðtal við Jeffrey Herlings og Max Anstie.  Bakvið má heyra drunru frá MX1 sem er úti í brautinni núna.

Published in Motocross

Á mánudag fer fram önnur umferðin í FIM MX GP-inu og fer keppnin fram í Valkenswaard í Hollandi.  Þetta er sandbraut af bestu gerð og er þetta ein sú keppni í mótaröðinni sem flestir bíða eftir.  KTM liðið hefur ekki byrjað með sama flugi og á síðasta ári og má því að mesta kenna um meiðsli lykilmanna eins og Antonio Cairoli, en það er tvísýnt að kappinn verði með þó svo að ég eigi frekar von á því.  Það er hvað merkilegast fyrir okkur hér á klakanum er að við munum eiga fulltrúa í þessari keppni og er það hin bráðefnilegi Eyþór nokkur Reynisson sem mun taka þátt í sínu fyrstu heimsmeistaramótskeppni.  En hann er skráður til leiks í EMX2.  Þessi keppni á eftir að fara í reynslubankann hjá pilti, sama hvernig honum á eftir að ganga en hann hefur verið við æfingar þarna síðustu daga ásamt Friðgeiri Guðnasyni sem slóst með í för til Hollands ásamt föður sínum og öðru fríðu föruneyti.  Það hefur svo sem gengið á ýmsu þarna eins og sésta á myndinni með þessari frétt, sem ég stal frá honum Friðgeiri á facebook, og er ég ansi hræddur um að það hefði endað öðruvísi fyrir mér en það gerði hjá Eyþóri sem náði á einhvern undranverða máta að bjarga sér frá þessu.  Hreint út sagt magnað.

Hægt er að fylgjast með undanrásum degi fyrir aðalkeppnina og verður það sýnt beint á MX-LIFE.TV.  En það er hægt að kaupa sér staka keppni til að horfa á fyrir um 3 evrur eða passa út allt tímabilið fyrir um 39 evrur og er þá MXON innifalið.  M.ö.o. ef þú kaupir þér aðgang að þessari vefsíðu að þá geturðu fylgst með undanriðlum sem og aðalkeppninni.  Já, tveggja daga fjör og þá geturðu séð hann Eyþór Reynisson keppa.  Ég veit ekki um ykkur, en ég ætla að fylgjast með þessu og tryggði mér aðgang að þessari síðu um leið og hún fór í loftið.  Við Eyþór vill ég hreinlega segja, andaðu með nefinu og "go get them tiger"..:0)

 

 

 

Published in Motocross
Page 1 of 3