Hér er smá minnislisti fyrir Klaustur sem settur var á vef motocross.is 2011 og ég held að hann sé ennþá góðra gilda verður.
Fyrir skoðun:
Í og fyrir keppni:
Hérna er svo myndband frá ræsingu 2010 og svo myndband frá honum Bigga sem sýnir brautina eins og hún liggur núna. Er ekki frá því að maður sé orðin nett spenntur fyrir keppninni.
Nú býðst frábært tækifæri til að fínpússa tæknina fyrir Klaustur!
Laugardaginn 19. maí mun íslenska landsliðið í ISDE „Six Days“ 2012 halda þriggja tíma námskeið í Enduro tækni með það að markmiði að undirbúa keppendur fyrir Klausturskeppnina sem fer fram um aðra helgi.
Námskeiðið verður haldið á Bolaöldusvæðinu laugardaginn 19. maí á milli kl. 10:00 og 13:00, mæting er við húsið og haldið verður þaðan inn í Bruggaradal þar sem æfingin mun fara fram.
Farið verður um valin svæði sem henta til æfinga fyrir Klausturskeppnina með það í huga að undirbúa þáttakendur fyrir skemmtilegustu keppni ársins.
Meðal þess sem kennt verður:
Verð fyrir námskeiðið er 10 þúsund og munu þáttakendur fá ISDE 2012 Team Iceland bolinn við komu á Klaustur. Allur ágóði rennur í fararsjóð liðsins, meira um keppnina og undirbúning liðsins síðar.
Áhugasamir vinsamlega sendið tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hafið samband í s 895 2123.
Landsliðið í ISDE 2012 skipa þeir:
ISDE 2012 fer fram 24-29. september í Þýskalandi, nánari upplýsingar um keppnina er að finna á:http://www.sixdays-germany.de/start_en.php
Að lokum er kynningarmyndband um keppnina hér: http://youtu.be/hzr-69cgnjs
Í gær fór fram fyrsta og önnur umferð í Enduro-cross-country og fór hún fram í Hrunamannahreppi, rétt hjá Flúðum. Brautin var nokkuð skemmtileg en mun erfiðari en keppendur áttu von á og má þar helst kenna um úrkomunni sem var á svæðinu og gerði aðstæður mjög sleipar. Áttu ökumenn og fákar erfitt með að fóta sig og urðu oft skrautlegar aðfarir við það eitt að reyna að halda hjólinu og sér uppi. Fyrir vikið var hún skemmtileg áhorfs fyrir okkur hina sem vorum ekki að hjóla og sér í lagi fyrir þá sem voru með myndavélar á lofti. Í raun kom brautin keppendum nokkuð á óvart miðað við þær myndir sem birst höfðu á netinu og voru margir þeirra hreinlega búnir á því eftir fyrri umferðina og pökkuðu saman og fóru heim og tóku þar með ekki þátt í annari umferð. Svæðið í sjálfu sér til keppnishalds var og er frábært en eins og áður hefur komið fram að þá gerði úkoman það að verkum að erfiðleikastigið jókst margfalt. Sumir keppendur í fyrstu umferðinni fóru mjög frjálslega með hliðin og á tímabili var eins og sumir ættu bara leið hjá og velti maður því fyrir sér hvort þeir væru að taka Gullfoss, Þingvellir, Geysir þríhyrninginn á meðan flestir reyndu að ströggla í gegnum hliðin. Skortur á "race police" gerði það að verkum að margir hverjir komust upp með þetta og fengu ekki á sig víti. En engu að síður skemmtileg keppni að horfa á.
Í ECC1 hélt Kári Jónsson uppteknum hætti og sigraði en Daði "Skaði" Erlingsson var samt aldrei langt undan og hélt betur í hann í annari umferð en í fyrstu umferð. Gunnlaugur R. Björnsson eða sá sem við þekkjum sem Gulli í Sonax varð þriðji. Bjarki Sigurðsson sem var í baráttu við Gulla Sonax um þriðja sætið varð fyrir einhverju óhappi sem ég veit ekki hvað var og varð að hætta keppni í annari umferð og er fyrir vikið stigalaus eftir þá umferð.
Í ECC2 sigraði Guðbjartur Magnússon eftir hreint út sagt fanta akstur og ljóst að þessi piltur er að verða með þeim betri hér á landi sem alhliða ökumaður því hann er einnig framúrskarandi motocross ökumaður. Í öðru sæti varð Valdimar Þórðarson sem lenti í óhappi í fyrstu umferðinni á fyrsta hring og beygði gírpedalann þannig að hann gat ekki skipt um gír og svo gerði hann mistök og sat fastur í smá tíma sem kostuðu hann sitt. Jónas Stefánsson varð þriðji og var að keyra jafnt og þétt alla keppnina.
Í tvímenning var mikil barátta og voru þeir kristófer Finnson og Baldvin Gunnarsson í mikilli baráttu við Gunnar Sölvason og Atla M. Guðnason sem endaði með því að þeir fyrrnefndu höfðu betur. Var mjög gaman að fylgjast með þessum tveimur liðum því þau voru nánast "bar-to-bar" hluta af keppninni og bæði lið ætluðu sér sigur. Í þriðja sæti urðu reynsluboltarnir Stefán Gunnarsson og Kristján Steingrímsson.
Í 40+ flokknum sigraði Hjörtur P. Jónsson og keyrði hann jafnt og þétt alla keppnina. Ekkert óðagot á honum og gerði fyrir vikið minna af mistökum en aðrir sem skilaði fyrsta sæti í þessum flokki. Í öðru sæti varð Sigurður H. Magnússon og í þriðja sæti varð Birgir Guðbjörnsson sem er ótrúlega seigur.
Í B flokk sigraði Þórarinn Þórarinsson og var að vonum mjög sáttur með daginn. Skagamaðurinn Ernir F. Sigurðsson varð annar og Haraldur Björnsson varð þriðji með jöfnum akstri.
Í kvennaflokki sigraði Bryndís Einarsdóttir, Signý Stefánsdóttir varð önnur og Guðfinna Gróa Pétursdóttir varð þriðja. Það voru fimm stelpur skráðar en því miður datt Tedda út vegna meiðsla og voru það bara fjórar dömur sem tóku þátt. Mig minnir að það þurfi að vera minnst fimm keppendur skráðir til að hann gildi til Íslandsmeistara og vegna meiðsla Teddu sem tók því ekki þátt að þá nær flokkurinn ekki þeim fjölda sem þarf. Vona að ég hafi rangt fyrir mér því við þurfum á öllum keppendum að halda í þessu sporti og við það að flokkurinn telji ekki til Íslandsmeistara vegna þess að einn keppenda vantaði er sorglegt.
Í 85cc flokki voru það því miður bara tveir keppendur sem skráðu sig og tóku þátt. Stóðu piltarnir sig hreint út sagt frábærlega og enginn uppgjöf á þeim við þessar erfiðu aðstæður. En sama gildir hér eins og í öllum flokkum, lágmark fimm keppendur þarf í fyrstu umferð til að flokkurinn telji til Íslandsmeistara. Eitthvað þarf að gera til að laða að ungu piltana því það eru fleiri þarna úti á 150cc fjórgengishjólum og 85 tvígengishjólum sem við þurfum sárlega að laða að í þetta sport. Hvað það er nákvæmlega veit ég satt að segja ekki, en legg til að allir sem áhuga hafa á þessu sporti leggi höfuðið í bleyti í því skyni að finna nýja leiðir til að laða að fleiri keppendur því ef enginn verður endurnýjunin, að þá fjarar þetta hægt og rólega út eftir því sem gömlu hundarnir detta út. En víkjum aftur af þessum tveimur sem stóðu sig frábærlega. Viggó S. Pétursson hafði betur í baráttunni í dag og varð Sebastian G. A. Vignisson að sætta sig við annað sætið í dag.
Heildarúrslit eftir helgina má nálgast með að smella hér. Ég tók slatta af myndum og má nálgast þær með að smella hér. Nú er bara spurning um að koma sér í gírinn með að renna norður til sjá þriðju og fjórðu umferð sem fer fram á glæsilgegu svæði KKA manna sem fer fram 16 júní og er hluti af dagskrá Bíladaga.
Það er helling um að vera í þessu sporti í sumar og ljóst að þeir sem ætla sér að vera í þessu af lífi og sál eru með bókaðar helgar í nánast allt sumar. Nú um helgina fer fram fyrsta umferðin í Enduro-Cross Country eða það sem er skammstafað ECC og fer umferðin fram á Flúðum. Keyrt er á alveg nýju landsvæði og lofa myndir sem lekið hafa á netið og myndbönd mjög góðu og er ekki annað að sjá en að þessi keppni gæti verið ein sú besta í undirbúningi fyrir menn fyrir Klausturskeppnina sem fer fram í lok maí. Það er ánægjulegt að ágætis skráning er í fyrstu umferðina og eru um eitthundrað keppendur skráðir til leiks nú um helgina. Þar af eru 16 keppendur í tvímenning. Eins og svo oft áður er B flokkurinn langstærstur en í sjálfu sér er það ekkert óeðlilegt því það á að vera nýliðaflokkurinn. Hægt er að sjá lista yfir keppendur með að smella hér en ekki er búið að uppfæra keppnisdagskrá fyrir ECC vegna ársins 2012 og geri ég því ráð fyrir að dagskráin frá árinu 2011 sé ennþá í gildi. Ef svo er að þá er hún eftirfarandi í grófum dráttum.
Verðlaunaafhening er svo kl.16 og þá brenna menn í bæinn ánægðir með dagsverkið.
Tekið af motocross.is
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Íslandsmótið 2012 í Moto-Cross og Enduro-CC. Alls verða 6 keppnir í Moto-Cross og gilda 5 bestu keppnir keppanda til Íslandsmeistara. 4 keppnisdagar verða í Enduro-CC en tvær umferðir fara fram á keppnisdegi, 3 bestu keppnisdagar keppanda gilda til Íslandsmeistara, 6 umferðir af 8. Ekki er hægt að ógilda 2 slökustu umferðirnar af 8, ógilda verður slakasta árangur samanlagt frá einum keppnisdegi í E-CC.
Skráningu í Íslandsmeistarakeppnir MSÍ líkur alltaf kl: 21:00 á þriðjudagskvöldum vikuna fyrir mótsdag (4 dögum fyrir keppni). Engar undanþágur eru frá þessari reglu. Keppendum sem eru að keppa í fyrsta skipti er bent á að skrá sig vel tímanlega, allavegana 10 dögum fyrir keppni til þess að hægt sé að lagfæra hluti sem geta komið upp og hamlað geta skráningu. Ef keppendur eru í vandræðum með skráningu inn á www.msisport,is skulu þeir hafa samband við formann þess akstursíþróttafélags sem þeir eru skráðir í. Aðrar athugasemdir eða vandræði skal tilkynna með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .
Keppendur eru minntir á að kynna sér reglur MSÍ og hafa ávalt með sér dagskrá og keppnisreglur á keppnisstað.
Keppnisdagatal má sjá hér.
Skráning í liðakeppnir er einnig hafin.
Keppnislið í Enduro-CC athugið að skrá þarf keppnislið á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Taka þarf fram nafn liðs, keppnisflokk, 1-3 keppendur og keppnisnúmer þeirra ásamt nafn liðsstjóra. Skráningargjald fyrir keppnislið er 5.000,- fyrir árið 2012 og þarf að leggja það inn á reikning MSÍ.
Kt. 500100-3540 Banki 525-26–401270 og senda staðfestingu á greiðslu á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
merkt keppnisliði.
Nánari upplýsingar um skráningu liða er að finna undir “reglur” “keppnisreglur liðakeppni”
Athugið, ógreitt lið telur engin stig.
Að gefnu tilefni er minnt á að kynna sér vel keppnisreglur og reglur um liðakeppni MSÍ.
Til þess að liðakeppni fari fram og teljist lögleg þarf að lágmarki 3 keppnislið í hvern flokk.
Keppnisgjald er ekki endurgreitt þótt lágmarksfjölda sé ekki náð.
Keppnislið í Moto-Cross athugið að skrá þarf keppnislið á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Taka þarf fram nafn liðs, keppnisflokk, 1-3 keppendur og keppnisnúmer þeirra ásamt nafn liðsstjóra. Skráningargjald fyrir keppnislið er 5.000,- fyrir árið 2012 og þarf að leggja það inn á reikning MSÍ.
Kt. 500100-3540 Banki 525-26–401270 og senda staðfestingu á greiðslu á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
merkt keppnisliði.
Nánari upplýsingar um skráningu liða er að finna undir “reglur” “keppnisreglur liðakeppni”
Athugið, ógreitt lið telur engin stig.
Að gefnu tilefni er minnt á að kynna sér vel keppnisreglur og reglur um liðakeppni MSÍ.
Til þess að liðakeppni fari fram og teljist lögleg þarf að lágmarki 3 keppnislið í hvern flokk.
Keppnisgjald er ekki endurgreitt þótt lágmarksfjölda sé ekki náð.
Tekið af vef motocross.is

Nokkuð töff myndband þar sem verið er að kynna lið Yamaha í enduro þarna "down under" og þarna er líka kyning fyrir ökumenn sem eru að testa hjólið. Þeir kunna alveg að leika sér þarna.
Það verður smá breyting um umfjöllunn minni um það sem gerðist um síðustu helgina í heimi motocross, supercross og enduro og í stað þess að fjalla um hverja keppni fyrir sig mun ég vera með stutta samantekt hér ásamt myndböndum. En víða fór fram keppnir um síðustu helgi og mikið um að vera í mótorhjólaheiminu, alla vega hvað drullumallara varðar. Byrjum á enduro ballið í FIM enduro mótaröðinni fór fram í Chile um helgina. Skemmst er frá því að segja að sigurvegarar keppninnar voru að öðrum ólöstuðum ökumenn KTM sem sigruðu í flestum flokkum eftir báða dagana. Það er samt að koma upp ökumenn frá öðrum liðum sem eru farnir að veita topp ökumönnum KTM harða keppni. En úrslit í flokkunum urðu eftirfarandi og tek ég bara efstu þrjá í hverjum flokk:
E1 enduro heildarúrslit Chile
E2 enduro heildarúrslit Chile
E3 enduro heildarúrslit Chile
EJ Juniors heildarúrslit Chile
EY Yout Cup 125cc heildarúrslit Chile
Hér er svo myndband sem sýnir það helstu úr þessari keppni
Víkjum svo að supercrossinu. Í stað þess að eyðileggja fyrir mönnum ánægju að segja úrslitin hér að þá vill ég leyfa mönnum að horfa fyrst á keppnina og svo eru úrslitin fyrir neðan. Það er samt öll spenna horfin úr 450 flokknum þar sem fleiri og fleiri ökumenn eru fallnir frá vegna meiðsla og var t.d. James Stewart ekki með þessa helgi. Í staðinn hafa ökumenn í Lites flokknum tekið upp þráðinn og er sá flokkur orðin jafn skemmilegur eins og hinn er óspennandi. En best að tala 450 flokkinn ekki meira niður og leyfa mönnum bara að horfa á herlegheitinn.
Úrslit í 450 flokknum í AMA Supercrossi
Úrslit í East Lites flokknum í AMA Supercrossi
Á Ítalíu var mikið um að vera og fór þar fram síðasta umferðin hjá þeim og til upplýsinga fyrir þá sem ekki vita að þá keppa þeir eingöngu í fjórum umferðum og þykir mér það lítið. En keppnin var spennandi í ár og var mikil keppni á milli Steven Frossard og Antonio Cairoli og einnig blandaði David Philippaerts sér í þess baráttu en oftast voru það þeir títtnefndu, Steven Frossard og Antonio Cairoli sem voru í sérflokki. Það er skemmst frá því að segja að Alexander Lupino varð meistari í MX2 á Husquarna og er þetta fyrsti MX titill Husquarna á nýja 250TC light hjólinu. Ég veit ekki nöfnin á þeim sem komu þar á eftir og læt ég því þetta duga. Antonio Cairoli varð MX1 meistari á Ítalíu eftir harða baráttu við Steven Frossard en Steven Frossard lenti í einhverju gleraugnaveseni og datt við það niður í fimmta sæti og vann sig svo upp í það þriðja. Við það voru þeir jafnir að stigum en þar sem Antonio Cairoli sigraði í síðustu umferðinni að þá taldi það og hann MX1 meistari. Steven Frossard varð svo meistari í "Elite" flokknum þar sem þeir blanda saman 10 bestu úr MX2 og MX1. Hér má sjá myndband frá þeim umferðum sem fór fram á Ítalíu.
Í Hollandi dómineraði Jeffrey Herlings MX2 og varð hollenskur meistari í MX2. Ég hef ekki hugmynd hver varð annar en mig grunar að það hafi verið liðsfélagi hans einnig á KTM. En er ekki bara best að horfa á hérlegheitinn og sjá hverjir unnu hvað en hér eru myndböndin frá Hollandi.
Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér forskráningarrétt sinn á Klausturskeppnina sem verður í lok maí. Fresturinn fyrir þá sem náðu að skrá sig í fyrra rennur út á sunnudag og eftir það verða sæti þeirra sem nýttu sér ekki þennan frest boðin öðrum til sölu sem hafa áhuga og eru á biðlista. Eins og venja er hjá okkur landanum að þá fór þetta rólega stað enda höfðum við um tvær vikur til að klára skráningu en síðustu daga hefur verulegur þungi færst í þetta og æ fleiri nýtt sér það að geta staðfest skráninguna með forskráningunni. Miðað við síðustu upplýsingar að þá eru afar litlar líkur til þess að það verði ekki fullt á ráslínu á Klaustri þetta árið enda einstakt akstursvæði sem við hjólamenn höfum aðgang að eingöngu einu sinni á ári með tilkomu þessarar keppni.
Það er von mín að þegar þessari keppni er lokið að menn snúi bökum saman með bros á vör með ánægjulega minningar að baki í því skyni að styrkja sportið til framtíðar en það hefur látið verulega á sjá með fækkun iðkenda. Sú ósamheldni sem komið hefur fram upp síðustu ár hefur ekki orðið sportinu til framdráttar né laðað að nýliða enda er það ein þekktasta leið til að fækka iðkendum er lélegur mórall. Þegar við fjölskyldan byrjuðum í þessu sporti í kringum 2006 að þá var það samheldni og lífsgleði einstaklinga sem þetta stunduðu sem laðaði okkur að þessu sporti. Nú hefur hinum vinnandi höndum farið fækkandi og sú vinna sem þarf að vinna lendur á færri herðum. Ekki nóg með það, heldur er innkoma félaga að dragast saman verulega þar sem iðkendum hefur fækkað. Því verðum við hjólamenn einfaldlega að snúa bökum saman til að halda þessu sporti á lífi og skulum við hafa hugfast hvernig farið hefur farið fyrir snjócrossinu sem var mjög vinsæl keppnisgrein fyrir nokkrum árum en er nú horfin af keppnisdagatalinu sökum ónógrar þátttöku og fækkun iðkenda. Látum örlög snjócrossins verða okkur mótorhjólamönnum víti til varnaðar og látum það ekki gerast að við drepum eitt skemmtilegustu íþrótt sem hægt er að stunda með ósamheldni einu saman. Við sjálf höfum það í hendi okkuar hvort að árið 2012 verði eitt af skemmtilegri árum í sportinu eða með þeim leiðinlegri. Það er von mín að með þessum örfáu orðum að við reynum að taka mótlæti með jafnargeði og gerum okkar besta til að gera árið 2012 að betra ári en 2011 var. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér.
Síðustu ár hefur ekki verið mikið gert til að bæta hið "trygga" eins og Ástralir kalla Yamaha WR450F hjólið og hefur það nánast verið óbreytt frá 2007 en nú hefur Yamaha heldur betur tekið sig saman í andlitinu og búið til nýtt hjól sem byggir að hluta til á Yamaha YZ250F, YZ450F og gamla WR450F og úr varð hjól sem er að fá mjög góða dóma alls staðar sem ég hef komist yfir það á netinu eða í öðrum miðlum. Grindinn úr YZ250F hjólinu hefur þótt með afbrigðum góð fyrir 2012 árgerðina og það bragð að nota hana í nýtt WR450F virðist hafa heppnast mjög vel að mati gagnrýnanda. Margir bjuggust við að mótorinn úr YZ450F yrði notaður í nýja WR450F hjólið en Yamaha ákvað að nota uppfærðan mótor úr WR450F og er þetta nánast sami mótor og var í YZ450F hjólinu árið 2009 fyrir utan að hann er kominn með beina innspýtunga og verið breytt fyrir enduro sérstaklega. Þetta útspil virðist ekki valda vonbrigðum enda hefur mótorinn sömu stillanlegu eiginleika sem einkennt hefur YZ450F hjólinu og er hægt að "tjúnna" hann til með lítilli fyrirhöfn með það sem þeir kalla GYTR Power Tuner sem er lítið eitt stærra en iPod. Hvað um það, en miðað við þær aðstæður sem ég horfði menn reynsluaka í þessu myndbandi hér fyrir neðan og sést vel á 2:07 mínútu, að þá kom fyrst upp í hugann á mér Klaustur og aðstæður sem eru þar. Já, það væri gaman að prófa eitt svona stykki við þær aðstæður og efast ég ekki um að þetta hjóli kitli mann og annan. Það eru mörg myndbönd til af nýja Yamaha WR450F en ég verð að segja að þeir þarna "down under" í Ástralíu gera þetta einstaklega smekklega og koma þeim skilaboðum sem þarf að koma vel frá sér.