Nú um helgina fór fram síðasta umferðin í AMA Supercrossinu og fór hún að venju í Las Vegas. Þetta keppnistímabil hefur verið fyrir margar sakir sögulegt og þá fyrst og fremst fyrir meiðsli margra topp ökumanna í sportinu og endaði tímabilið meira segja á því að nýkrýndur meistari Ryan Villopoto meiddist og verður ekki meira með í ár... Já, listi yfir ökumenn sem meiðst hafa er langur og hafa margar spekúlasjónir komið fram afhverju, sumir kenna brautum um, aðrir hjólum (450 hjólum) og en aðrir harðandi samkeppni en þegar allt er á botninn hvolft að þá virðist þetta bara vera eitt af þessum tímabilum sem hefur verið skrýtið í marga staði. Chad Reed var spurður út í þetta og hann vildi ekki meina það að um harðnandi samkeppni væri um að ræða, menn hefði alveg eins viljað vinna keppnina í fyrra eins og í ár. Hjólin væri betri en nokkru sinni fyrr og brautirnar væru betri en tæknilegri. Hans mat var, þetta var bara skrýtið tímabil, "nothing more, nothing less"... Margir ökumenn reyndu þó að hjóla hálflaskaðir í keppninni um helgina og má þar meðal annars nefna Kevin Windham sem varð að hætta við þar sem hann er ekki orðin góður. Dean Wilson ákvað að vera með þrátt fyrir að hann þarf að fara í aðgerð á öxl en þulirnir vildu meina að það væri vegna þess að samningur Dean Wilson rennur út í ár og þarf hann sárlega á nýjum samning að halda áður en sumarið er á enda.
Eitt hefur þó vakið athygli í ár og það er að mun færri einstaklingar sem voru á eigin vegum, það sem er kallaður "privater" mættu til keppni í ár en undanfarin ár og í lok tímabils var þetta orðið þannig að allir sem skráðu sig komust að í undanriðla og er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í mörg herrans ár. Þetta þýðir að nýliðun er orðin mun minni í sportinu og að þeir sem hafa þurft að borga brúsann úr eigin vasa sá ekki tilgang í þessu lengur og hætt því við þátttöku. Í framhaldi af því hafa vaknað upp umræður hvort að keppnirnar væru einfaldlega of margar og álagið of mikið ásamt kostnaði við þátttöku. Einhverjir vilja fækka umferðum úr 17 í 14 í supercrossinu og einnig fækka umferðum í AMA Outdoors. En þegar allt er á botning hvolft að þá eru það ekki ökumenn og fólkt þeim tengt sem tekur þessa ákvörðun heldur hagsmunaðilar sem t.d. halda keppnirnar því þeir munu missa spón úr sínum rassi.
En víkjum aftur að keppninni um helgina. Ég mun ekkert fjalla um úrslit né stöður, nenni því hreinlega ekki lengur þar sem mér hefur fundist þetta tímabil ekkert sérstaklega spennandi. En hér getur þú séð keppnina af YouTube í fínum gæðum, þannig að þú þarft ekki að ná þér í hana sem torrent skrá. Er þetta öll keppnin, með undanriðlum og öllu.
Að lokum vill ég þó segja þetta, "bring on the outdoors" og megi það vera meira spennandi en supercrossið.
Um síðustu helgi fór fram næstsíðasta umferðin í AMA Supercrossinu. Nenni hreinlega ekkert að skrifa um þessa keppni að svo stöddu og hlakka til að sjá ökumenn stilla sér upp fyrir fyrstu umferðina í AMA Outdoors sem fer fram í Hangtown. Ef þú átt eftir að horfa á keppnina, að þá geturðu séð hana hér fyrir neðan í ágætis gæðum af YouTube og því óþarfi að niðurhjala því niður af netinu sem torrent skrá. Er þetta keppnin með öllum undanriðlum ásamt aðalkeppninni í bæði 250 og 450.
Það var heldur betur gaman að fylgjast með fimmtándu umferðinni í AMA Supercrossinu sem fór fram í Seattle um helgina og get ég ekki annað en sagt, "loksins, loksins" þar sem síðustu umferðir hafa verið frekar daprar að mínu mati og hef ég varlan nennt að fjalla um þær af þeim sökum. En þökk sé West Lites ökumönnunum, að þá var þessi keppni afar skemmtileg áhorfs. Ef þú ert ekki búinn að horfa á hana, að þá geturðu sé hana hér fyrir neðan og er þetta öll keppnin, bæði undanriðlar og aðalkeppnin í fínum gæðum. Þar fyrir neðan má sjá atvikin sem héldu manni vakandi í Lites flokknum.
Stigabaráttan í West Lites er engan veginn lokið og eftir úrslit dagsins, að þá er ljóst að Eli Tomac og Dean Wilson eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar til að hreppa titilinn. Eli Tomac var ekki hrifinn af aksturslaginu og sagðist ekki vilja keyra né keppa svona en ef þetta væri það sem þurfti að gera til að vinna, að þá myndi hann gera það og sérstaklega ef þeir sem eru hans helstu keppinautar koma með það að markmiði að taka hann út. Þar með er ljóst að síðasta keppnin verður hreint stríð á milli hans og Dean Wilson og ef þú hefur horft á atvikið hér fyrir ofan, að þá skilurðu afhverju. Það var þó vinur minn Ryan Sipes sem vann í fyrsta sinn í ár og var það kær kominn sigur í ljósi þess að hann var að keppa í fyrsta sinn eftir mjög erfið meiðsl og hafði aðeins hjólað í tæpar þrjár vikur. Já, loksins small þetta hjá honum og ekki skemmdi það fyrir honum að Eli Tomac og Dean Wilson enduðu að hugsa meira um hvorn annan en að sigra Ryan Sipes. Marvin Musquin varð annar eftir að hann hafði náð fram úr Eli Tomac sem var fastur með hjólið í þriðja gír eftir samstuð sitt við Dean Wilson en hann náði því svo niður í annan en engu að síður ekkert grín að geta ekki gírað upp eða niður og verða úrslitin hjá honum því að teljast ásættanleg en hann endaði þriðji. Dean Wilson endaði sjötti og er meiddur á öxl eftir viðskipti sín við Eli Tomac og nú er bara spurning hvernig kappinn verður fyrir næstu umferð sem fer fram í Salt Lake City og eins og ég sagði að þá verður það hrein úrslita viðureign sem við því miður munum ekki geta séð beint þar sem það verður engin útsending frá þeirri keppni.
Í 450 flokknum sigraði Andrew Short loksins sínu fyrstu keppni í stóra flokknum og í raun var þetta hans fyrsti sigur í supercrossinu síðan 2006... Já, ég hef sjaldan séð jafn mikla gleði hjá einum ökumanni eins og hjá honum sem var einnig að koma til baka eftir meiðsli og var búinn að missa af átta keppnum í röð. Glæsilegt hjá kappanum og frábært að hann skyldi loksins ná að klára dæmið. Góðvinur hans Ken Roczen varð annar og skiptust þeir á tímabili á forystu en Andrew Short hafði betur og keyrði betur þegar leið á seinni hlutann á keppninni. Jake Weimer varð þriðji og var mjög sáttur að lenda á palli þar sem hann var að ströggla á æfingum. Því miður að þá meiddist Ryan Villopoto á hné og varð að hætta keppni. Er þetta í fyrsta skipti í ár sem hann nær ekki að ljúka keppni og því miður þurfti það að enda á þann hátt að hann slasaðist. Er þetta sama hné og hann hefur verið að díla við síðustu ár og nú er spurning hvaða áhrif það hefur á hann fyrir síðustu umferð og þá einnig utanhús undirbúninginn. Vonandi er þetta ekki alvarlegt.
Í nótt fór fram sjötta umferðin í AMA Supercrossin og fór keppnin fram í San Diego. San Diego er þekkt fyrir þrennt, það kemur alltaf eitthvað óvænt upp á og hafa margir ökumenn lent illa í því í San Diego. Má þar nefna að fyrsta og eina banaslysið í AMA Supercrossinu átti sér stað í San Diego á sínum tíma. Í öðru lagi einstaka sigurgöngu Chad Reed í San Diego síðan árið 2003, eða frá því að hann hóf keppni í stóra flokknum, en síðan þá er hann með um 75% vinningshlutfall og hefur unnið sex af síðustu átta keppnum sem er einstakt. Í þriðja lagi að þá er það andrúmsloftið á keppninni sem hreinlega er þannig hlaðið að það er eins og áhorfendur og keppendur vita að eitthvað á eftir að gerast sem mun setja sitt mark á keppnistímabilið. Brautin var mjög erfið að því leiti til að vúppsarnir voru mjög stórar og erfiðar og áttu eftir að hafa mikil áhrif á keppendur. Sérstaklega voru minni hjólin að ströggla í þessum hluta en ökumenn í stóra flokknum áttu líka erfiðan dag. Ef þú ert ekki búinn að sjá keppnina og vilt ekki vita úrslit, að þá getur þó horft á keppnina hér fyrir neðan og síðan lesið um framhaldið fyrir neðan.
Lites flokkurinn: Fyrir mótið leiddi Eli Tomac stigakeppnina og í raun var þetta orðið þannig að það var nóg fyrir Eli Tomac að skila sér í efstu fimm sætin í þeim keppnum sem eftir voru, sem voru þrjár fyrir þessa, að þá hefði hann staðið uppi sem West Lites sigurvegari. Helsti keppinautur hans að mati spekúlanta, Dean Wilson, hafði ekki náð að standa uppi í hárinu á Eli Tomac og hafði aðeins unnið einu sinni á meðan Eli Tomac var búinn að landa þremur sigrum. En sigur er ekki alltaf ávísun á titil og getur Tim Ferry vitnað um það en hann vann Lites meistaratitil án þess að nokkrum sinnum að sigra keppni það ár. Já, stöðugleiki og það að vera meðal þeirra efstu í hverri einustu keppni gerði það að verkum að Tim Ferry stóð uppi sem sigurvegari. Í fyrri undanriðlinum að þá var það Dean Wilson náði bestri ræsingu og skildi hina eftir í tómu tjóni. Marvin Musquin varð í öðru sæti en átti í miklum erfiðleikum í vúppsunum og þriðji varð Matt Moss á KTM sem var að keyra feykivel. Í síðari riðlinum að þá var það Cole Seely sem kláraði með stæl en Eli Tomac lenti í því að fara niður eftir fyrstu beygju ásamt fleiri ökumönnum. Sá maður þá að það voru framúraksturlínur í brautinni þegar hann vann sig frá síðasta sæti í það áttunda. Í öðru sæti varð Travis Baker liðsfélagi Cole Seely og í þriðja sæti varð Vince Friese. Í aðalkeppninni var það Vince Friese sem náði bestri ræsingu en Dean Wilson var ekki lengi að ná fram úr honum. Eli Tomac var í kringum fimmta til sjötta sæti eftir fyrstu beygju og það var ljóst að hann ætlaði sér ekkert annað en sigur og hóf að sækja fram af miklum krafti. Yfirkeyrði hann brautina á kafla, yfirstökk og meira til. Var ljóst að hann ætlaði sér að ná Dean Wilson "no matter what". En ökumenn í aðalkeppninni fóru að hrynja niður og voru vúppsarnir mjög erfiðir þeim. Og það voru einmitt þessir blessuðu vúppsar sem áttu eftir að vera úrslitavaldur kvöldsins og hugsanlega helsti áhrifavaldur á tímabilið þegar Eli Tomac fór ill fram fyrri sig í vúppsunum og fékk hjólið á sig. Meiddist hann nokkuð á olnboga og varð að hætta keppni. Dean Wilson var því á auðum sjó og leit allt í einu út fyrir að ef hann hreinlega kláraði að þá myndi hann allt í einu leiða stigakeppnina sem og hann gerði. Já, það er skammt stórra högga á milli og enn og aftur var það brautin í San Diego sem átti eftir að vera áhrifavaldur. Cole Seely varð annar og Matt Moss á JDR KTM náði sínum bestu úrslitum síðan hann hóf keppni í AMA Supercrossin og endaði þriðji. En Matt Moss er frá Ástralíu eins og Chad nokkur Reed. Dean Wilson leiðir nú stigakeppnina með tveimur stigum á Eli Tomac og nú er það spurning hversu alvarleg meiðslin eru hjá Eli Tomac. Eli Tomac getur þakkað fyrir að West Lites flokkurinn er að fara í frí og mun ekki hefja keppni aftur fyrr en í Seatle sem er fimmtánda umferðin. Cole Seely sem er í þriðja sæti á líka möguleika á titli þó svo að draumur hans sé fjarlægari en Dean Wilson eða Eli Tomac.
Opni flokkurinn: Það voru ekkert síður ökumenn í þessum flokki sem áttu í erfiðleikum í vúppsunum og virtist t.d. Ryan Dungey ekki ná að taka þá mjög sannfærandi. Einnig virtist vera nokkur munur á uppsetningum á hjólinu hjá liðsfélögunum Davi Millsaps og James Stewart. Davi Millsaps fór mjög vel í gegnum vúppsana á meðan James Stewart var meira villtur. Í fyrri undanriðlinum var það Ryan Villopoto sem sigraði en Davi Millsaps varð annar og átti mjög gott "run" í undanriðlinum. Brett Metcalfe varð þriðji. Í síðari riðlinum var það Chad Reed sem sigraði eftir að riðilinn hafði verið rauðflaggaður og það þurfti að byrja aftur. James Stewart átti góða ræsinu áður en það var Mike Alessi sem tóka fram úr honum og lokaði á hann. Var ótrúlegt að sjá James Stewart ströggla við að taka fram úr Mike Alessi í tvo hringi áður en það var rauð flaggað og endurræst. James Stewart varð annar í síðari riðlinum á eftir Chad Reed og Ryan Dungey varð þriðji. Í aðalkeppninni varð það Brett Metcalfe sem var með bestu ræsingu en Jake Weimer varð annar og á hælum hans kom Ryan Villopoto. Fljótlega varð það þó Ryan Villopoto sem náði forstynni á meðan bæði Chad Reed og James Stewart þurfi að koma að aftan og vinna sig upp. Var ég búinn að segja að vúppsarnir voru erfiðir, ef ekki að þá ætla ég að endurtaka það. Fljótlega var Chad Reed komin í annað sætið og James Stewart var lengur að vinna sig upp í þriðja sætið og var farið að hitna í höllinni. Jake Weimer fór tvisvar á granirnar og þurfti að hætta keppni eftir að hafa verið annar. "Guess what", James Stewart datt... Ó, já, það virðist ekki af þessum ökumanni að ganga og hann einfaldlega virðist ekki kunna að keyra ekki á ystu nöf. Flestir dást að því en það hefur líka skapað þann hóp fólks sem gagnrýnir hann hvað mest og í sumum tilfellum á hann það fyllilega skilið. En það verður samt ekki af honum tekið að hann virðist vera með þetta í blóðinu að "I will dy trying". En það var ekki bara James Stewart sem fór á rassgatið í vúppsunum því Kevin Windham fór á nákvæmlega sama stað. Já, þeir voru mjög trikkí þessir vúppsar. Þá var baráttan á milli Chad Reed og Ryan Villopoto og miðað við vinningshlutafall Chad Reed að þá var ljóst að Ryan Villopoto þurfti að hafa fyrir hlutunum og það koma á daginn. Chad Reed náði Ryan Villopoto og náði að fara fram úr honum á næst síðasta hring. Ryan Villopoto var hraðari í beygjum en Chad Reed var með mjög góðan hraða í gegnum vúppsana. Ryan Villpoto náði svo að skella sér innan á Chad Reed og ná fram úr honum nokkrum beygjum síðar og náði að halda því til loka. Var þetta æsispennandi keppni og sagði Chad Reed á eftir að Ryan Villpoto hefði einfaldlega haft meiri sigurvilja og verið tilbúinn að leggja meira undir í því skyni. Chad Reed varð því annar og lækkaði það vinningshlutfall hans aðeins og Ryan Dungey getur þakkað fyrir að bæði James Stewart og Kevin Windham féllu og náði að landa þriðja sætinu. Er þetta í alla vega annað ef ekki þriðja sinn sem Ryan Dungey hagnast af falli James Stewart og endar á palli fyrir vikið.
Hvað er málið með James Stewart? Margir hafa velt ýmsu fyrir sér og margir hafa álitið að þetta sé hjólinu að kenna og að hann hafi ekki verið eins og hann á sér að vera eftir að hann fór frá Kawasaki. Það er mikið til í því að drengurinn er ekki eins og hann var þegar hann var á Kawasaki en hann átti ekki mikið úr að velja á þeim tíma því Kawasaki hætti hreinlega að tala við hann og því fór hann annað. Nákvæmlega það sama og gerðist með brotthvarf Ricky Charmichael á sínum tíma frá Kawasaki og verður líklegast sama samskipta mynstrið þegar Kawasaki lætur Ryan Villopoto fara og veðjar á ökumanna eins og t.d. Adam Cianciarulo sem arftaka hans. En er það hjólið sem er að valda þessu. Nokkrir hafa lagst yfir þetta og David Vuillemin er einn af þeim. Hann telur að það sé fyrst og fremst uppsetninginn á hjólinu sem veldur því að James Stewart sé að gera þessi mistök og það hafi ekkert með hjólið að gera, fyrir utan að James Stewart er að eldast. Í samanburði sínum tekur hann liðsfélaga James Stewart hann Davi Millsaps og segir að hann hafi ekki átt í neinum vandræðum í vúppsunum og í raun virkaði hjólið hans "rock solid" í gegnum vúppsana. David Vuillemin er á því að James Stewart keyri með of stífa fjöðrun, sem með of "snappi" afl í hjólinu sem erfitt er að stýra í vúppsunum og ef þú gerir mistök að þá refsi það "big time. Hvernig stendur á því að Yamaha YZ450F hefur landað titli í ástralska supercrossinu og motocrossi en virkar ekki í henni Ameríku? Þetta fer ekki saman og ef við lítum til Evrópu að þá hefur Steven Frossard afsannað það ásamt Gautier Paulin og David Philippaerts að það sé hægt að vinna á þessu hjóli oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þannig að það er skoðun David Vuillemin að þetta sé uppsetning en ekki hjólið. Til samanburðar tekur hann ökumenn Ben Lamay sem hafi nánast verið á "stock" hjóli og samt lítið mun betur út en James Stewart í vúppsunum. Gautier Paulin gerði sér lítið fyrir og sigraði á þessu hjóli í MXON 2011 og var þá að keppa við "the best of the best". Hægt er að lesa pistilinn hans David Vuillemin með að smella hér. Sigurvegarinn í Le Tougeut þolaksturskeppninni sem fór fram um daginn var t.d. á YZ450F. Annað sem einhverjir hafa bent á að eftir því sem menn verða eldri, þarf að mýkja hlutina og það er hlutur sem James Stewart virðist hafa láðst að gera. Sjáið t.d. Kevin Windham. Hjólið hans er orðin meira "smooth" en áður þó svo að hann vilji hafa ákveðið afl að þá vill hann ekki að það refsi manni eða rífi af ökumanninum handleggina. Chad Reed er einnig þekktur fyrir að vilja ákveðið en mjúka aflkúrfu.
AMA Supercross hefur farið vel af stað það sem af er og lítur ekki út fyrir að þar verði neitt slegið af á næstunni. Eftir fjórar umferðir höfum við séð fjóra mismunandi sigurvegara og ómögulegt á þessu stigi að sjá hver það verður sem er líklegastur til að taka titilinn. Ricky Charmichael segir að línur fara ekki að skýrast fyrr en eftir níundu umferð sem verður í Daytona eins og venjulega. Þá fyrst förum við að sjá hverjir koma til greina. En ef hugsað er til baka og þá stöðu sem t.d. Ryan Dungey lenti í fyrra, að þá hefði Ryan Dungey staðið uppi sem sigurvegari eftir tímabilið ef hann hefði ekki misst keðjuna í einni umferðinni. Já, ótrúlegt en satt, að aðilinn sem einungis vann eitt mót í fyrra hefði að öllum líkindum staðið uppi sem sigurvegari. Það sama var upp á teningnum í AMA Outdoors, ef hjólið hans Ryan Dungey hefði ekki bilað á síðustu metrunum í annari umferð að þá hefði hann að öllum líkindum staðið upp sem sigurvegari. Þannig að það má með sanni segja að árið 2011 var ekki árið hans Ryan Dungey til að verja meistaratitilinn sinn og það hreinlega átti ekki að verða. En víkjum aftur að supercrossinu. Ef þú ert ekki búinn að horfa á það, að þá geturðu niðurhjalað opna flokknum hér og Lites flokknum hér. Einnig geturðu svo séð aðalkeppnina ásamt undanriðlum í heilu lagi í sitt hvorum flokknum hér fyrir neðan.
Lites flokkurinn: Ég ætla ekki að ræða um undanriðlana heldur fara beint í úrslitinn en Eli Tomac gerði sér lítið fyrir og sigraði í þriðja sinn í ár og virðist vera að klára dæmið. Miðað við akstur á kappanum að þá virðist Dean Wilson ekki eiga nein svör við honum í dag sem var áltinn hans helsti keppninautur í ár. Marvin Musquin endaði í þriðja sæti og kemur það mér ekki á óvart þó svo að einhverjir þarna vestanhafs hafa tekið það fram sem hið óvænta í supercrossinu í ár. Marvin Musquin er feykigóður ökumaður og hefur verið dáðst að ökulagi hans hjá bæði Jeff Emig og Ricky Charmichael. Það sem hefur komið mér á óvart með Marvin Musquin er að hann hefur verið óhræddur við að "block-passa" menn þegar á hefur reynt en margir evrópskir ökumenn hafa átt við það vandamál að stríða þegar þeir koma vestur yfir hafið, er að þeir eru ekki nógu agressívir og hafa amerískir ökumenn talað um að það sé nóg að fara utan í þá einu sinni til tvisvar sinnum og þá fari þeir skælandi heim. Það á ekki við í tilfelli Marvin Musquin. Cole Seely endaði svo annar og leiddi hann lengi vel en datt í keppninni og missti þá Eli Tomac framúr sér. Sá ökumaður sem ég hef orðið fyrir hvað mestum vonbrigðum með í West Lites flokknum er Ryan Sipes. Þessi piltur hefur hvað eftir annað verið með hröðustu hringi á æfingum og í tímatökunni að þá var það hann ásamt liðsfélaga sínum Nico Izzi sem voru töluvert hraðari en næsti maður. Var Eli Tomac að ströggla í tímatökunni og virtist ekki hafa sama flæði og Ryan Sipes og Nico Izzi. Í undanriðlinum að þá var Ryan Sipes alveg við það að sigra sinn riðil þar sem hann var mun hraðari en Dean Wilson en allt kom fyrir ekki í aðalkeppninni og enn og aftur er maður að horfa upp á þennan hæfileikaríka ökumann enda mun aftar en maður getur talið eðlilegt. Martin Davalos er líka algjörlega sér kapituli útaf fyrir sig og hefur hreinlega engu skilað síðustu þrjú árin fyrir utan góðum úrslitum í undanriðlum en er algjörlega mislagðar hendur þegar kemur að aðalkeppninni og telst það eitt og sér til afreka hjá honum ef hann nær að klára keppni. Fyrir utan þetta, að þá er ég farinn að verða hrifnari af reglunum í FIM þar sem ökumaður verður að fara upp í MX1 eftir að hann er oðin visst gamall. Það er ekki eðlilegt hvað margir af þessum ökumönnum hafa hreinlega skotið rótum á 250cc hjóli og hreinlega standa því fyrir þrifum að ungir ökumenn fái tækifæri.
450 flokkurinn: Það verður ekki annað sagt en að James Stewart er sá aðili sem fólk fylgist með og nær hann alltaf athygli manns hvort sem maður er hrifin af honum eða ekki. Línurnar sem pilturinn var með voru hreint út sagt ótrúlegar í undanriðlinum en það sem gerir James Stewart svona spennandi ökumann er jafnframt hans helsti löstur. Hann gerir hluti sem enginn annar gerir og gerði hann slíkt í undanriðlinum að þessu sinni. Það mistókst, eins og svo oft áður, og fór hann mjög illa á hausinn og varð að hætta keppni og stóla á að fara í LCQ. James Stewart laskaðist nokkuð á öxl við fallið og rifbeinsbrotnaði. Því verður ekki annað sagt en að það eitt að ljúka keppni þann dag sé afrek út af fyrir sig, hef rifbeinsbrotnað á hjóli og það er ekki auðvelt að hjóla þannig, hvað þá að enda þar sem hann endaði eftir daginn en hann endaði í öðru sæti. Ryan Villopoto er fyrsti ökumaðurinn í 450 flokknum til að landa öðrum sigrinum í supercrossinu í ár. Sagan segir að sá aðili sem er fyrstur að landa öðrum sigrinum í supercrossinu, hefur staðið uppi sem sigurvegari eftir tímabilið í hátt í 70% tilfella. Þannig að tölfræðin er með Ryan Villopoto í þessum efnum. Chad Reed endaði þriðji og var hann að berjast við magaveiki í keppninni. Kappinn er ótrúlega seigur og skyldi enginn afskrifa hann. Ryan Dungey hefur ekki náð að fylga eftir sigri sínum og hefur verið á eftir þeim þremur sem ég nefni hér að framan, en munurinn á honum og t.d. Ryan Villpoto eða James Stewart er að hann gerir afar fá mistök og klárar alltaf. Ja, ef frá skyldi telja árið 2011 þegar keðjan fór og þegar hjólið bilaði á síðasta hring í Hangtown í AMA Outdoors. Þessi stöðugleiki Ryan Dungey gæti skilað honum sigri þegar upp er staðið og skyldi enginn vanmeta eða afskrifa hann að svo stöddu fyrir utan að hann gæti allt í einu tekið upp á því að sigra eina til tvær keppnir í viðbót í það minnsta. Ryan Villopoto leiðir núg stigakeppnina en er einungis 3 stigum á undan Chad Reed og 5 stigum á undan Ryan Dungey. James Stewart er langt frá því að vera úr leik þrátt fyrir að hafa ekki sigrað og á góðan möguleika að sækja á hina með t.d. tveimur sigrum í viðbót á næstunni.
Það var þó eitt atriði sem skyggði á þessa keppni, en það var að faðir James Stewart varð fyrir aðkasti áhorfenda og hræktu nokkrir þeirra á hann. Ekki hefur mikið verið fjallað um það í helstu vefmiðlum en þeim mun skrifað um það á t.d. Twitter og sitt sýnist hverjum. Svo virðist vera að þeir sem hata hann, hati hann einfaldlega af því að hann er svartur og eru þeir svo blindaðir af hatri að þeir telja að það eigi hreinlega að koma illa fram við þá feðga. Steve Cox, sem skrifar fyrir RacerXonline tók þetta upp á sína arma og skoðun hans er að þetta sé til háborinnar skammar, sem ég er honum hjartanlega sammála, og eigi hreinlega að setja þessa einstaklinga í bann. Enginn annar ökumaður verður fyrir því aðkasti sem James Stewart verður fyrir og virðist enginn önnur skýring liggja að því baki nema sú að hann er svartur í hvítra manna sporti. Enginn annar ökumaður á sér slíkan haturshóp að þeir hreinlega fagna því og óska þess að hann slasist illa út í braut. Ekki var það gert við Ricky Charmichael sem þó komst í nöp við aðdáendur sportsins á sínum tíma en náði að vinna þá aftur á sitt band. Ekki hefur verið púað á Chad Reed í gegnum tíðina þó svo að hann hefur fyrst núna verið að ná verulegum vinsældum. Þessar hvatir áhorfenda eru sportinu til skammar og þeim sem síkt gjöra til mikillar minnkunar. James Stewart er einhver mest spennandi ökumaður sem komið hefur fram í sportinu lengi og ég leyfi mér að fullyrða að hann hefur gert aðra ökumenn betri eins og t.d. Ricky Charmichael, Ryan Villopoto og Chad Reed því þeir hafa þurft að "step up their game" vegna hæfileika James Stewart. Það er sama hvað skoðun þú kannt að hafa á ökumanni en enginn á skilið slíka framkomu.
Fjórða umferðin í AMA Supercross fór fram í Oakland um helgina og var fyrir margar sakir sérstök. Fyrir það fyrst að þá var hún sérstök þar sem James Stewart hafði ekki ennþá náð að landa sigri í mótaröðinni og hefur það þótt óhugsandi fyrir tímabilið að hann myndi vera að ströggla við að lenda á palli. Að öðru leyti kom sú frétt illa við marga að mekkinn hans James Stewart skyldi hafa látist þegar bifreið keyrði á hann þegar hann var að hjálpa konu sem var stopp út í vegarkannti vegna bensínleysi en sú sem keyrði á hann var í farsímanum að senda sms og missti stjórn á bílnum. Já, akstur er dauðans alvara og að senda SMS á meðan verið er að keyra á engan vegin við. Þar með lauk viðburðaríkri en stuttri ævi Mark "Tex" Adams og nokkuð ljóst að lið James Stewart og Davi Millsaps nokkuð laskað sökum skyndilegs fráfalls Mark. Vonandi verður þessi viðburður til að vekja fólk upp með að þú þarft á fullri athygli að halda þegar þú keyrir og þú ert EKKI að senda SMS á meðan þú ert undir stýri...
Ef þú ert ekki búinn að sjá keppnina og vilt sjá hana sjálfur, að þá getur þó sótt torrent af stóra flokknum hér og lites flokknum hér. Hér fyrir neðan geturðu svo horft á keppnina áður en þú lest eitthvað meir en Lites flokkurinn var að koma á netið.
Lites flokkurinn: Það gekki ekki allt sem skyldi upp hjá Pro Circuit Kawasaki liði Mitch Payton og í fyrsta sinn í langan tíma sá ég liði ströggla. Brautin þótti nokkuð tæknileg og tjáði Eli Tomac sig um að þetta hefði verið ein tæknilegasta braut sem hann hefði hjólað í það sem af væri núverandi tímabili. Í fyrri undanriðlinum að þá datt Tyle Rattray nokkuð illa og varð að hætta keppni. Brákaði hann hryggjalið í hálsi og óvist með framhaldið á næstunni. En Tyle Rattray, sem er liðsfélagið Dean Wilson, var með efstu mönnum í stigakeppninni. Það var þó liðsfélagi hans Dean Wilson sem sigraði í fyrri undanriðlinum, Zach Osborne varð annar og Martin Davalos varð þriðji. Í síðari riðlinum varð það Cole Seely sem sigraði eftir harða baráttu við Eli Tomac sem varð annar og Billy Laninovich sem varð þriðiji. Í aðalkeppninni að þá var það Martin Davalos sem enn og aftur var með bestu ræsinguna en Eli Tomac, Cole Seely og Dean Wilson voru ekki langt undan. Marvin Musquin sem var búinn að vera með hröðustu tíma á æfingum var með lélega ræsingu og var rétt um miðjan hóp. Dean Wilson gerði mistök á sama stað og Tyle Rattray datt og fór út úr brautinni með látum. Sem betur fer slasaðist hann ekki og gat haldið áfram en hann var orðin síðastur. Fljótlega eftir þetta að þá lenti Cole Seely í að afturdekkið hans fór undan honum eftir að hann hefði verið of graður á gjöfinni og datt hann líka. Eli Tomac átti líka sín "moment" og var í raun heppinn að falla ekki. Martin Davalos hélt áfram hefðbundnum hætti og gerði sín klassísku mistök í aðalkeppninni og missti við það Eli Tomac framúr sér sem byrjaði að byggja upp forskot á keppinauta sína. Zach Osborne var komin upp í annað sætið þegar hér var komið við sögu en var í harðri baráttu við Jasaon Anderson og Marvin Msuquin sem var að sækja grimmt upp með fanta akstri. Marvin Musquin skellti sér innan á Jason Anderson sem við það fipaðist og féll við og var allt í einu komin hörku baráttu um annað sætið. Marvin Musquin var ekki hættur og eftir mikið harðfylgi náði hann framúr Zach Osborne sem varð að sætta sig við þriðja sætið. Er þetta í annað sinn sem Zach Osborne gefur eftir á loka metrunum og gefur eftir annað sætið. Sem sagt Eli Tomac sigraði, Marvin Musqui varð annar og Zach Osborne varð þriðji. Það voru ansi blendnar tilfinningar hjá Zach Osborne í viðtalinu eftir keppnina því hann þarf að yfirgefa sviðið og halda á leið til Englands þar sem hann mun halda áfram undirbúningi sínum í FIM mótaröðinni, en hann fékk eingöngu leyfi til að taka þátt í fjórum supercross keppnum. Eli Tomac leiðir nú stigakeppnina en Dean Wilson er annar. Zach Osborne er í þriðja sæti en mun ekki far hærr að þessu sinni þar sem hann er á leið til Englands.
Í stóra flokknum að þá voru margir að spá í hvað fráfrall mekka James Stewart myndi hafa á liðið. Í fyrri riðlinum að þá sigraði Ryan Dungey nokkuð sannfærandi en Kevin Windham var ekki langt frá. Chad Reed var eitthvað að ströggla og varð að sætta sig við þriðja sætið. Í síðari riðlinum varð æsispennandi barátta á milli James Stewart og Ryan Villopoto, en James Stewart hafði það fyrir rest og varð Ryan Villopoto að sætta sig við annað sætið. Andrew Short hefur óðum verið að finna sig betur eftir að hann fór úr herbúðum KTM yfir á Honda og ljóst að hann á frekar heima á því hjóli en KTM en hann varð þriðji í þessum riðli. Í aðalkeppninni að þá var það Chad Reed sem var með bestu ræsinguna en James Stewart og Ryan Willpoto ásamt Jake Weimer voru ekki langt undan. Stungu þeir fyrst þrír nefndu hina af og byrjaði nú mikil barátta þeirra á milli þar sem allt virtist snúast um að bíða eftir að maðurinn fyrir framan gerði mistök. Það var þegar komið var fram yfir miðja keppni að James Stewart náði að taka þrengri beygju en Chad Reed og náði þar með forystunni. Við það byrjaði Ryan Villopoto að sækja á Chad Reed en gerði mistök og missti Chad Reed frá sér í smá tíma. Byrjaði að sækja aftur en náði ekki að draga á Chad Reed og helst þessi pattstaða allt til loka. Þar með sigraði James Stewart sitt fyrsta mót í ár og var það vel í ljósi fráfalls mekka hans í JGR liðinu. Var þetta jafnframt fyrsti sigur hans fyrir nýja liðið JGR. Chad Reed varð annar og var ekki sáttur við sjálfan sig að hafa misst James Stewart fram úr sér og talaði um að hann hefði keyrt eins og kerling. Ryan Villopoto var hraðastur í tímatöku og var með hraðasta tíma í brautinni í sjálfri aðalkeppninni en það er eitt að vera hraðastur og annað að komast framúr. Hann náði því ekki og virtist hann springa á limnum í blárestina og er þetta í fyrsta sinn sem ég sé hann í ár ekki sækja allan tímann.
Chad Reed leiðir nú stigakepppnina ásamt Ryan Dungey. Eru þeir báðir með 85 stig eftir fjórar umferðir. Ryan Villopoto er ekki langt undan og er með 83 stig og James Stewart er í fjórða sæti með 73 stig. Hér má sjá viðtöl við þá þrjá, þ.e. James Stewart, Chad Reed og Ryan Villopoto eftir keppnina.
Þá er Lites flokkurinn loksins komin á YouTube og hægt að horfa á herlegheitin hér. Einnig er hérna stutt viðtal við Ken Roczen um stöðu hans í dag eftir meiðslin.
Þá er þriðja umferðin í AMA Supercrossinu lokið og er fátt um annað talað í þessu sporti í dag en keppnina sem fór fram á laugardaginn. Er það fyrsta og fremst vegna þess skelfilegs atburðar sem átti sér stað í upphafi í aðalkeppninni í fyrsta hring þar sem tveir ökumenn lenda það illa saman að þeir liggja báðir meðvitunarlausir eftir og stórslasaðir báðir tveir. Já, þetta var eiginlega sorgardagur frekar en að hægt væri að horfa á afrek þess aðila sem í raun stóð uppi sem sigurvegari dagsins. Ef þú vilt ekki vita úrslitin eða hverjir áttu í hlut, þó svo að það sé líklegast mjög erfitt vegna pósta á fésinu og umræðum, að þá skaltu ekki lesa lengra heldur horfa á aðalkeppnina hér fyrir neðan. Þú getur líka sótt torrent skránna með að smella hér. Lites flokkurinn er ekki komið á netið og verður ekki sýnt frá þeirri keppni fyrr en í kvöld í USA, þannig að það má búast við að Lites flokkurinn verði aðgengilegur annað kvöld á netinu.
En víkjum að Lites flokknum frá því um helgina. Í fyrri undanriðlinum að þá var það Ryan Sipes sem sýndi á sér klærnar loksins og sigraði. Annar varð Dean Wilson og þriðji varð Zach Osborne sem hefur verið að koma á óvart í supercrossinu þar sem spekúlantar bjuggust ekki við neinu af honum í ljósi þess að hann er staðsettur í Bretlandi og keppir í FIM mótaröðinni. Þannig að innkoma hans hefur komið skemmtilega á óvart. Í seinni undanriðlinum varð það Martin Davalos sem sigraði, Eli Tomac varð annar og Marvin Musquin hélt uppteknum hætti og skilaði sér á meðal þriggja efstu manna. Í aðalkeppninni að þá byrjaði Martin Davalos með látum og náði holuskotinu en hélt því ekki lengi og skaust Eli Tomac framúr strax á fyrsta hring. Það er skemmst frá því að segja að Eli Tomac sigraði keppnina nokkuð auðveldlega og sannfærandi. Dean Wilson var einungis með miðlungs ræsingu og þurfti að hafa fyrir hlutunum. Hann náði með miklu harðfylgi að koma sér upp í annað sætið eftir baráttu við Zach Osborne sem endaði þriðji. Því miður að þá hlekktist Marvin Musquin á og varð hann að hætta keppni. Veit ekki hvort hann hafi meiðs eða hvort að það hafi einfaldlega verið hjólið sem laskaðist eitthvað við fallið. Eli Tomac leiðir nú stigakeppnina til meistara en Dean Wilson er einungis stigi á eftir og stefnir í spennandi keppni í ár um hvor verði meistari. Tyle Rattray er ekki langt undan og munar tveimur stigum á honum og efsta manni.
Í 450 flokknum, að þá hélt James Stewart uppteknum hætti og sigraði nokkuð örugglega í sínum riðli. Ótrúlegt hvernig hann dóminerar undanriðlana en nær ekki að endurspegla þá velgengni yfir í aðalkeppnina sem bendir til þess að hjólið er ekki vandamálið heldur sé eitthvað sálrænt að plaga drenginn. Eða þá það að hann sé einfaldlega ekki í nógu góðu formi og þoli ekki meira en 8 hringi en sem komið er. Annar í fyrri riðlinum varð Mike Alessi og þriðji varð Andrew Short. Í síðari riðlinum varð það Ryan Villopoto sem sigraði sannfærandi en liðsfélagi hans Jake Weimer varð annar. Jake Weimer er allur að koma til og er farin að skila betri árangri en í fyrra. Þriðji varð svo Ryan Dungey, sigurvegarinn frá síðustu keppni.
En það varð einmitt í aðalkeppninni í þessum flokki sem hið skelfilega slys átti sér stað þegar að Trey Canard lenti í þeirri stöðu að fá umbúðir utan af bagga í afturdekkið nánast í byrjun og fyrir vikið gat hann ekki stokkið þrefaldan rythma. Það er við svona aðstæður þegar ökumaður nær ekki að hreinsa stökk eins og hinir sem slysin gerast og það gerðist svo sannarlega þegar Ryan Morais lenti ofan á Trey Canard og báðir ökumann lágu eftir í valnum meðvitunarlausir og stórslasaðir. Eitthvað fannst mér starfsmenn vera seinnir til að stökkva af stað til að aðstoða en kannski liggur það í því að margoft hafa ökumenn legið í valnum en staðið upp aftur og haldið áfram keppni. En þetta var svo skelfilegt að það hefði ekki átt að fara framhjá neinum sem fylgdist með að þarna var stórslys í uppsiglingu. Keppnin var rauð flögguð á meðan hugað var að þeim tveimur og síðan var endurræst hátt í hálftíma seinna. Jake Weimer náði fantræsingu en James Stewart, sem hafði verið með miðlungs ræsingu í fyrra skiptið náði nú fínni ræsingu og Chad Reed var þar næstur á eftir. Ryan Villopoto lenti fljótlega í veseni og datt og var orðin lang síðastur. En það virðist ekki skipta hann orðið máli hvort hann detti eða ekki því hann nær alltaf að vinna sig upp, eitthvað sem bara Ricky Charmichael, James Stewart og Chad Reed gerði í "den" en nú virðist Ryan Villopoto vera sá eini sem hefur fulla trú á því að hann geti unnið upp forskot annara ef hann fellur við. Fljótlega náði Chad Reed forystu eftir hreint út sagt frábæran akstur og James Stewart varð orðin annar eftir að hafa sett "block pass" á Jake Weimer sem við það féll við og datt niður um mörg sæti. James Stewart átti svo eftir að falla við, eins og svo oft áður, og var það einstklega klaufalegt þar sem hann fer of hátt upp í bartann og hægir of mikið á sér og við það missir jafnvægið. Ein aulalegasta detta ársins í supercrossinu. Hann náði þó að halda þriðja sætin sem hann hélt allt til loka og loksins skilaði hann sér á pall í ár í AMA Supercrossinu. Eitthvað sem spekúlantar höfðu ekki séð fyrir, því flestir reiknuðu með að hann væri að berjast um fyrsta til annað sætið allan tímann en ekki við það komast á pall. Chad Reed sigraði eftir hreint út sagt frábæran akstur og verður ekki af karlinum tekið að hann var með mjög góðar línur þetta kvöld. Ryan Dungey náði ekki að fylgja eftir sigrinum frá því um síðustu helgi og varð að sætta sig við annað sætið. Ryan Villopoto varð hins vegar fjórði og verður ekki annað hægt en að dást að pilti fyrir éljusemi en hann hefur dottið í tvígang núna í síðustu tveimur keppnum, en það eru einungis þrjár búnar. Þannig að það eru fleiri ökumenn að detta en bara James Stewart.
Hér má svo sjá hið skelfilega atvik þegar Trey Canard fær Ryan Morais ofan á sig. Trey Canard er með brákaða liði í baki og fór í aðgerð í nótt. Ryan Morais fór mun verr út úr þessu og missti tennur, kjálkabrotnaði illa og brákaði þrjá liði í hálsi. Verður hann ekkert meira með af skiljanlegum ástæðum og nú er spurning hvernig Trey Canard vinnur úr þessu. Það á ekki af Trey Canard að ganga því hann er nýkomin til baka eftir erfið meiðsli og var ekki búinn að ná sér að fullu.
Í gær fór fram sjöunda umferðin í AMA Supercrossinu og strax fyrir helgi varð ljóst að veðrið átti eftir að hafa stór áhrif þessa helgi, en veðrið var einn stærsti þáttur í þessari keppni á sama stað í fyrra. Rignt hafði frá því á föstudag og í veðurkortunum var rigning og meiri rigning. Þrátt fyrir ágæta tilburði verktakana sem sjá um brautina og hafa tekið upp á því síðustu ár að plasta þær inn við svona aðstæður til að verja þær fyrir bleytunni, að þá var ekki hjá því komist þegar komið var fram í æfingarnar og undanriðlana að taka plastið sem hafði hulið brautina. Síðasta helgi var uppfull af óvæntum uppákomum og miðað við þær aðstæður sem boðið var upp á, að þá benti allt til þess að við ættum eftir að sjá framhald af því.
Lites flokkurinn - strax í tímatökunni var ljóst að KTM ökumaðurinn Ken Roczen kunni mjög vel við sig í bleytunni og var hann með hraðasta tímann af Lites ökumönnunum. Vann hann sinn undanriðil nokkuð glæsilega. En þegar í sjálfa keppnina var komið að þá varð hann fyrir því óláni að verða einn af þeim sem lentu í hrúgaldi sem myndaðist þega að nokkrir ökumenn fór niður í fyrstu beygju og það þrátt fyrir að aldrei þessu vant var ekki rúmlega 90° beygja. Það var Geico Powersports Honda ökumaðurinn Eli Tomac sem náði bestri ræsingu og hóf að auka forskot sitt á næstu ökumenn jafnt og þétt. Josh Hansen gerði strax tilraun til að sækja á hann og leit út fyrir að honum myndi takast áætlunarverk sitt strax í fyrsta hring, en það gekk ekki og hægt og rólega fór Josh Hansen að missa aðra ökumenn framúr sér, enda hefur komið í ljós að pilturinn þarf að fara í aðgerð á hendi eftir krassið um þar síðustu helgi og það þarf að setja í hendina stálplötu. Þannig að Josh Hansen gengur ekki alveg heill til skógar. Ken Roczen sem hafði verið með besta tímann og unnið sinn undanriðill átti ekki sjö dagana sæla og endaði með því að krassa þrisvar sinnum mjög hressilega. Það verður því að teljast mjög góður árangur að hann skyldi enda sjötti eftir daginn. Eli Tomac aftur á móti átti ekki við nein vandamál að stríða og leiddi hvern einasta hring í aðalkeppninni og endaði með að sigra sína fyrst AMA Supercross keppni. Eli Tomac kom eins og stormsveipur inn í AMA mótaröðina síðasta vor og sigraði í fyrstu keppni ársins utanhús, en hann lenti í geysilegu vökvatapi í Freestone brautinni í Texas og var hann lengi að ná sér á strik eftir það og sást hann ekki mikið eftir það í utanhúsmótaröðinni. Nú virðist kappinn óðum að verða búinn að ná sér og var hann vel að sigrinum kominn. Í öðru sæti varð Tyle Rattray og í þriðja sæti varð Broc Tickle sem saxaði verulega á forskot Josh Hansen sem varð að láta sér sjöunda sætið duga og hefur Josh Hansen nú eins stigs forskot á Broc Tickle í stigakeppninni um West Lites AMA Supercross meistaratitilinn.
Opni flokkurinn - ökumenn voru mislengi að finna sinn rythma í brautinni við þessar aðstæður sem voru í boði en það var James Stewart sem var með lang besta tímann í byrjun og var hann með rúmlega sekúndu betri tíma en næsti maður. En það var Chad Reed sem var með bestu ræsinguna og á eftir honum kom Trey Canard og James Stewart. Trey Canard náði framúr Chad Reed en fyrir einhvern aulagang að þá fellur hann við og Chad Reed nær aftur forystunni. James Stewart, sem var í öðru sæti var ekkert að saxa á forskot Chad Reed og í raun voru það Trey Canard og RYan Dungey sem voru að saxa á James Stewart þegar hann fyrir einhvern klaufaskap drepur á hjólinu. En það á ekki að vera auðvelt verk því James Stewart er komin með Rekluse kúplingi hvort sem hann játar því eða ekki. Það er svo auglóst í síðustu keppni að halda öðru fram væri hrein helber lygi. Við það komst Trey Canard og Ryan Dungey framúr James Stewart. Trey Canard fellur svo aftur við og kemst þá James Stewart upp í þriðja sæti og þar við situr. Chad Reed sigrar sitt fyrsta mót fyrir lið sitt TwoTwo Motosports sem hann á sjálfur að fullu og með þessum sigri varð Chad Reed jafnframt sigursælasti ökumaðurinn í San Diego keppnunum hingað til. En fyrir mótið um helgina deildu hann og Jereymy McCrath þessum titli. Bíddu en hvað með Ryan Villopoto. Jú, Ryan Villopoto lenti í krassi í fyrstu beygju og satt að segja leit hjólið hans ekki vel út eftir að hann hafði náð að reisa það við og hóf akstur að nýju. Brotið afturbretti, númeraspjaldið að framan horfið út í veður og vind, en samt náði hann að krafla sig upp í sjöunda sæti. Við þessi úrslit hefur stigakeppninn opnast upp á gátt og nú eru það fimm ökumenn sem eiga möguleika á að vinna titilinn. Ryan Villopoto leiðir stigakeppnina en einungis með 3 stigum á James Stewart, en þar á eftir koma Chad Reed og Trey Canard aðeins 13 stigum á eftir Ryan Villopoto. Ryan Dungey rekrs svo lestina af þessum fimm ökumönnum og er hann 23 stigum á eftir efsta manni.
Hægt er að nálgast keppnina með að smella hér en þetta er torrent skrá. Fyrir neðan er svo viðtöl við efstu menn og heildarúrslit.
1 Chad Reed (Two Two Honda)
2 Ryan Dungey (Rockstar Makita Suzuki)
3 James Stewart (San Manuel Yamaha)
4 Trey Canard (American Honda)
5 Davy Millsaps (JGR Yamaha)
6 Andrew Short (Red Bull KTM)
7 Ryan Villopoto (Monster Kawasaki)
8 Brett Metcalfe (Rockstar Makita Suzuki)
9 Mike Alessi (Red Bull KTM)
10 Justin Brayton (JGR Yamaha)
11 Nick Wey (Valli Yamaha)
12 Kyle Regal (San Manuel Yamaha)
13 Fabien Izoird (Monster Kawasaki)
14 Chris Blose (H&H Kawasaki)
15 Ivan Tedesco (H&H Kawasaki)
16 Michael Brne (BTO Suzuki)
17 Maxime Lesage (Kawasaki)
18 Austin Stroupe (Valli Yamaha)
19 Weston Pieck (Rock River Yamaha)
20 Kevin Windham (Geico Honda)
LITES WEST
1 Eli Tomac (Geico Honda)
2 Tyla Rattray (Monster Pro Circuit Kawasaki)
3 Broc Tickle (Monster Pro Circuit Kawasaki)
4 Cole Seely (Troy Lee Honda)
5 James Decotis (Geico Honda)
6 Josh Hansen (Monster Pro Circuit Kawasaki)
7 Ken Roczen (Red Bull Teka KTM)
8 Ben Evans (Truth Kawasaki)
9 Ryan Morais (Rockstar Suzuki)
10 Kyle Cunningham (DNA Shred Stix Yamaha)
11 Antonio Balbi (Duracell Kawasaki)
12 Martin Davalos (Rockstar Suzuki)
13 Ryan Smith (Suzuki)
14 Tommy Weeck (Honda)
15 Nick Paluzzi (DNA Shred Stix Yamaha)
16 Casey Hinson (Violation KTM)
17 Scott Champion (Revolution Kawasaki)
18 Travis Bright (Fox Honda)
19 Dakota Tedder (Monster Kawasaki)
20 Kyle Beaton (Leading Edge Kawasaki)
Í nótt fór fram fimmta umferðin í AMA Supercrossinu og fór keppnin að þessu sinni fram í Anaheim. Þema keppninnar var bleikt þar sem aðstandendur keppninnar vildu vekja athygli á baráttunni og rannsóknum við brjóstakrabbameini. Var gaman að sjá mörg hjólin og búninga ökumanna sem voru mjög bleik og gaman að sjá að þeir skuli taka þátt í þessu eins og raun ber vitni. Fyrir mótið var James Stewart með forystu í stigakeppninni og munaði tveim stigum á honum og Ryan Villopoto. Í lites flokknum munaði einu stigi á Josh Hansen og Broc Tickle en Eli Tomac hefur verið að koma sterkur inn í síðustu mót þó svo að hann sé ekki efstur að stigum.
Lites flokkurinn - Smá spenna myndaðist fyrir undanriðlana í Lites flokknum þar sem Josh Hansen fór nokkuð illa á hausinn í tímatökunni og fingurbrotnaði á litla putta og þó svo að það hljómi hálf fáranlega að þá hefur það áhrif á ökumenn og puttarnir skipta ótrúlega miklu máli. Í fyrri undanriðlinum sigraði Kyle Cunningham, Eli Tomac varð annar og Cole Seely þriðji. Í seinni undanriðlinum sigraði Josh Hansen þrátt fyrir að vera fingurbrotinn, Martin Davaloz varð annar og Broc Tickle varð þriðji.
Aðalkeppnin - Lites: Josh Hansen nær bestri ræsingu en á hæla hans koma Eli Tomac og Ken Roczen. Í hring þrjú tekur Ken Roczen framúr Eli Tomac og setur stefnuna á Josh Hansen. Skildu þessir þrír sig nokkuð frá hinum ökumönnunum fyrir utan Broc Tickle sem var farin að nálgast þá. Eli Tomac var ekki á því að gefa neitt eftir og var farin að sækja á Ken Roczen og óku þeir mjög grimmt. Eli Tomac nær að fara framúr Ken Roczen og er nú farin að sækja hratt að Josh Hansen og nær framúr honum en Josh Hansen var ekkert á því að gefa neitt eftir og nær framúr honum aftur eftir að hafa farið innan á Eli Tomach. Þannig endaði þetta, Josh Hanse fyrstur, Eli Tomac annar og Ken Roczen varð þriðji og komst þar með í fyrsta sinn á pall. Flottur árangur hjá honum en Eli Tomac virðist allur að vera að koma til og vonandi er þetta upphafið af því sem koma skal hjá þessum frábæra ökumanni sem hefur unnið allt sem hægt er að vinna á sínum áhugamannaferli.
Opni flokkurinn - Það virtist enginn eiga neitt í James Stewart í tímatökunni og kom hann ekki einu sinni út í seinni æfingunni sem ökumenn fá, sem gerði það að verkum að alls kyns sögusagnir fóru í gang en James
Stewart hafði ekki dottið neitt um daginn. Hvað um það, James Stewart sigraði nokkuð örugglega í fyrri undanriðlinum, Ryan Villopoto varð annar og Kyle Cisholm varð þriðji. Í síðari undanriðlinum varð það Ryan Dungey sem sigraði, Trey Canard varð annar og Justin Brayton varð þriðji.
Aðalkeppnin - opni flokkurinn: James Stewart var með langbestu ræsinguna og var himinn og haf á milli hans og næstu keppenda að fyrstu beygju. Ryan Villopoto, Chad Reed og Mike Alessi fylgdu á eftir en James Stewart sýndi að hann er sá allra besti á torfæruhjóli og tók stökkseríu sem enginn annar ökumaður átti svar við, eða fjórfaldann, fjórfaldann á meðan aðrir urðu að taka þrefaldann, þrefaldann. Þar með tók hann strax mikla forystu sem hann hélt allt til loka og ógnaði enginn James Stewart þetta kvöld. Ryan Villopoto átti hreinlega ekkert svar þetta kvöld og varð að sætta sig við annað sætið. Chad Reed varð svo þriðji og er byrjaður að skila sér aftur á pall reglulega, en Chad Reed var með fyrir þessa mótaröð um 90% árangur á palli á sínum ferli í supercrossi. Ekki dónalegt það. Þannig að Bubba "is back" og ef þetta er það sem koma skal, að þá mun James Stewart landa titlinum þetta árið. Ryan Dungey aftur á móti lauk ekki keppni því keðjan yfirgaf hann í hring 7 eftir frekar lélegt start og var það í fyrsta sinn í langan tíma sem Ryan Dungey lauk ekki keppni.
Hér fyrir neðan eru heildarúrslit og viðtöl við ökumenn. Keppnin er ekki komin á netið en ég mun henda inn link um leið og það gerist.
| 250 Lites West Results | ||
| 1. | Josh Hansen | KAW |
| 2. | Eli Tomac | HON |
| 3. | Ken Roczen | KTM |
| 4. | Broc Tickle | KAW |
| 5. | K Cunningham | YAM |
| 6. | M Davalos | SUZ |
| 7. | Ryan Morais | SUZ |
| 8. | B Rutherford | KAW |
| 9. | R Marmont | KTM |
| 10. | J Decotis | HON |
| 11. | Cole Seely | HON |
| 12. | A Balbi | KAW |
| 13. | J Canada | KAW |
| 14. | Ben Evans | KAW |
| 15. | S Champion | KAW |
| 16. | C Hinson | KTM |
| 17. | K Beaton | KAW |
| 18. | P Eckman | HON |
| 19. | Y Ikegaya | SUZ |
| 20. | N Paluzzi | YAM |
| Supercross Results | ||
| 1. | James Stewart | YAM |
| 2. | Ryan Villopoto | KAW |
| 3. | Chad Reed | HON |
| 4. | Justin Brayton | YAM |
| 5. | Trey Canard | HON |
| 6. | Andrew Short | KTM |
| 7. | Ivan Tedesco | KAW |
| 8. | Kevin Windham | HON |
| 9. | Mike Alessi | KTM |
| 10. | Davi Millsaps | YAM |
| 11. | Brett Metcalfe | SUZ |
| 12. | Kyle Regal | YAM |
| 13. | Matt Boni | KAW |
| 14. | Kyle Chisholm | YAM |
| 15. | Nick Wey | YAM |
| 16. | Tye Simmonds | KTM |
| 17. | Jason Thomas | SUZ |
| 18. | Chris Blose | KAW |
| 19. | F Izoird | KAW |
| 20. | Ryan Dungey | SUZ |