Um næstu helgi, nánar á laugardaginn 19 maí og verður hægt að horfa á fyrsta moto-ið á netinu á www.allisports.com.  Því miður verður núverandi meistari Ryan Villopoto ekki með vegna meiðsla og það á einnig við Chad Reed.  Tyle Rattray mun fylla í skarð Ryan Villopoto en þetta eru ansi stórir skór sem hann þarf að fylla í.  James Stewart kemur inn í þessa seríu sem hálfgert "wild card".  Allir vita að hann er hraður, allir vita að hann geta unnið en allir vita að hann hefur ekki keppt utanhús síðan árið 2008 og þetta er mikla meira "brutal" en supercrossið og tekur meira á líkamlega.  Við tegundarskiptin, þ.e. að fara af Yamaha yfir á Suzuki, að þá vonast James Stewart að fá aftur það sjálfstraust sem hann hafði.  Hans vegna vona ég að hann hafi rétt fyrir sér og þetta eigi eftir að blása lífi í feril James Stewart.  Ef ekki að þá eru margir á því að dagar hans sem súperstjörnu í sportinu sé í raun taldir og hann falli í þann flokk sem heitir "has been".  Ég er á því að KTM eigi eftir að vera feykisterkir í ár í AMA Outdoors mótaröðinni þar sem þar er einvalalið ökumanna og aðstoðarmanna sem er stýrt af engum öðrum en Roger DeCoster sem hefur verið valinn liðstjóri MXON liðs þeirra Bandaríkjamanna ár eftir ár.  Ryan Dungey er úrræðagóður ökumaður sem skilar alltaf sínu og ungliðarnir Ken Roczen og Marvin Musquin eiga báðir heimsmeistaratitla að baki í FIM mótaröðinni og mun tilfinning er að þeir eigi eftir að blómstra í ár.  Ég er einnig viss um að Davi Millsaps eigi eftir að verða "spoiler-inn" í þessari keppni því nú fær hann allt í einu 100% fókus eftir að James Stewart yfirgaf herbúðir JGR.  Davi Millsaps er komin með liðsfélaga sem heitir Kyle Regal og er ekki óvanur Yamaha en engu að síður að þá er ljóst að Davi Millsaps er ökumaður númer eitt hjá JGR.  En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, hér er myndband frá AMA Motocross um komandi tímabil og þarna má heyra álit manna eins og Jeff Emig og Jason Weigand á ökumönnum fyrir komandi tímabil.

Hér er svo "season review" fyrir árið 2011 þar sem byrjað er að tala um 250 flokkinn.

Published in Motocross

Þá er það loksins orðið opinbert sem flestir hafa vitað að James Stewart hefur verið leystur undan samningi sínum við JGR Yamaha og þar með eru Nascar draumar hans líka líklegast úr sögunni.  Verður hann nýji liðsfélagi Brett Metcalfe sem allt í einu verður að sætta sig við að verða ökumaður númer tvö hjá liðinu því James litli þarf sitt og verður númer eitt.  Það er ekkert launungarmál að dramadrottning 2012 tímabilsins það sem af er, er enginn annar en James "Bubba" Stewart sem hefur ekki fundið sig í ár og margir vildu meina að hefði valið JGR liðið út af Nascar möguleika og peningum.  Nú er það á enda og hvað sem pilturinn tekur sér fyrir hendur, að þá vona ég að hann finni sig á ný á Suzuki því þetta er með flottari ökumönnum í bransanum og yrði mikil eftirsjá af honum ef hann skyldi taka upp á því að fara að fjara út núna.  Ekki það að nóg er til af hæfileikaríku fólki en það er eitthvað extra við James Stewart á hjóli hvort sem þú ert aðdáandi hans eða sá sem leggur hvað mest fæð á hann.  Hann hefur þetta það sem Simon Cowel myndi segja, "X-factor".  Hér er myndband sem tekið var heima hjá honum og er hann mjög flottur á súkkunni.  Já, James litli keypti sér allar tegundir sjálfur til að prófa og virðist hafa fílað sig vel á Suzuki hjólinu.  Dæmi hver fyrir sig en mér finnst hann súper "smooth" í þessu myndabandi og nú óskar maður honum bara alls hins besta í framtíðinni.

http://www.redbullusa.com/cs/Satellite/en_US/Video/james-stewart-new-suzuki-021243204950407

Published in Motocross
Tuesday, 24 April 2012 23:38

Ryan Villopoto "OUT"!

Því miður að þá eru meiðslin sem Ryan Villopoto varð fyrir í Seattle supercrossinu það alvarleg að hann verður ekki meir með í ár...  Það þýðir að hann mun ekki taka þátt í AMA Outdoors í ár og mun því ekki að verja titilinn sinn í ár plús það að hann mun ekki keppa fyrir hönd USA í MXON í Lommel í ár.  Þetta tímabil er að verða eitt af þeim sem hefur tekið hvað flesta ökumenn út og nú eru Chad Reed, Ben Townly, Micahel Byrne, James Stewart og fleiri frá vegna meiðsla og margir verða frá í marga mánuði í viðbót.  Þetta er hreint út sagt ömurlegt og ég vona svo sannarlega að hann snúi aftur tvíefldur eins og hann hefur gert áður.  Hann féll á það hné sem hann hefur verið að glíma við meiðsli síðustu ár og var augljóst strax að eitthvað hefði gerst þó svo að fallið sem slíkt var ekki ýkja merkilegt en hann hálflak niður í einni beygjunni.  Hér fyrir neðan má sjá atvikið.

Published in Motocross

Two Two Motorsports var rétt í þessu að tilkynna að Ben Townley sé genginn til liðs við liðið og muni koma til með að keppa fyrir þeirra hönd í AMA Outdoors í sumar.  Í ljósi þeirra alvarlegu meiðsla sem Chad Reed varð fyrir í supercrossinu, sem greinilega eru mun alvarlegri en menn gerðu sér grein fyrir í fyrstu, að þá leit ekki út fyrir að Chad Reed kæmist aftur á hjól fyrr en í lok júlí á þessu ári og þá er ansi langt liðið á AMA Outdoors tímabilið og því hefur Chad Reed og lið hans gengið til samninga við fyrrum AMA Supercross Lites meistarann Ben Townley sem var nú um daginn krýndur meistari í MX1 í Nýja-Sjálandi.  Ben Townley hefur verið að ströggla síðustu ár að koma aftur til baka og átt við erfið meiðsli og hefur hann í þrígang horfið aftur á heimahaga í því skyndi að ná sér að nýju.  Stóra spurningin er, er hann búinn að ná sér að fullu?  Chad Reed stóð frammi fyrir þeirri stóru spurninga að taka erfiðar ákvarðnir með liðið í ljósi meiðsla sinna og spurninginn var hvort hann ætti að leggja það á hilluna og segja upp öllu sínu starfsfólki.  Í stað þess leitaði hann til styrktaraðila sinna og vildu þeir alls ekki að liðið yrði lagt niður og það er ekki síst vegna stuðning þeirra að ákveðið var að ganga til saminga við Ben Townley um samning út árið 2012.  Chad Reed telur að þetta sé rétt ákvörðun í þróun á liðinu fyrir komandi ár og það hefði verið erfið ákvörðun að taka úr sambandi liðið með öllum þessu hæfileikaríka fólki innanborðs og með svo marga góða styrktaraðila á bakvið sig.  Chad Reed mun aðstoða Ben Townley eftir bestu getu og munu þeir í sameiningu vinna náið með Honda í Ameríku sem er einn af styrktaraðilum liðsins.  Það verður mjög áhugavert að sjá Ben Townley í sumar og enginn efast um hæfileika hans á hjóli.  Fyrir þá sem muna ekki eftir honum að þá ráðlegg ég fólki að ná sér í AMA Outdoors Lites flokkinn á netinu síðan 2007 og horfa á hann frá byrjun því það er einhver sú mest spennandi keppni í lites flokknum lengi þar sem baráttan er á milli Ben Townley og Ryan Villopoto sem endaði með því að Ryan Villopoto rétt marði meistaratitlinn en hann þurfti að hafa mjög mikið fyrir honum.  

Ég er nokkuð ánægður með vin minn Chad Reed þar sem hann hefði hreinlega getað hætt og labbað frá þessu öllu saman og sest í helgan stein.  En aldeilis ekki og það er ljóst að með þessu að þá er Chad Reed að stiga ákveðin skref í átt til þess að vera með liði til framtíðar með 1-2 ökumann sem keppa fyrir það þó svo að hann verði á hliðarlínunni.

Published in Motocross
Wednesday, 14 December 2011 09:25

Trey Canard krassar eina ferðina enn

Þessir drengur man tímana tvenna en hann er búinn að vera frá vegna meiðsla meira og minna allt þetta ár þar sem hann hefur tvílærbrotnað og nú síðast braut hann viðbein.  Hér er hann aðeins byrjaður að hjóla aftur og viti menn, hann fer hressilega á granirnar en sleppur sem betur fer við frekari meiðsli en ætli hann sé ekki orðin pínu skeptískur þessa dagana á að hjóla.  Ég veit ekki hvort þetta er tekið áður en hann braut viðbeinið nú síðast og því miður verður hann ekki tilbúinn til að taka þátt í byrjun á supercross tímabilinu sem hefst 6 janúar og ef hann heldur þessu áfram að þá á það eftir að dragast enn frekar á langinn.  Hér fyrir neðan er síðasta krassið hjá piltinum sem er nýlega skeð og síðan má sjá þar fyrir neðan krassið hjá piltinum í Washougal í AMA Motocrossinu sem tók hann aftur úr leik með brotið læri og þar fyrir neðan sem er upphafið af fall tímabilinu hjá honum þegar hann krassar feitt í AMA Supercrossinu í þriðju umferð í Los Angeles.  

 

Published in Supercross

Hér má sjá fyrsta myndbandið af honum James Stewart hjá hinu nýja liði, JGR Toyota Yamaha, og verður ekki annað sagt en hann virðist afar slakur með þetta allt saman.  Alla á vega á viðtalinu má dæma að hann er pollrólegur yfir þessu öllu saman.  Að vísu finnst mér það besta koma í endan á myndbandinu þegar það heyrist í alvöru í hjólinu og hann er að keyra á þeim hraða sem hann keyrir, þá fyrst sér maður aftur hversu góður hann er.  Já, það fer eiginlega enginn eins hratt yfir vúpsa og James Stewart.  Annars lítur út fyrir að JGR liðið verði feykisterkt fyrir næsta tímabil því Davi Millsaps verður áfram hjá liðinu en hann er tvímælalaust einn af þeim betri.  Verður fróðlegt að fylgjast með þeim í supercrossinu og motocrossinu næsta sumar.

 

Published in Supercross

Þá er það orðið opinbert - James Stewart er gengin til liðs við Joe Gibbs Racing og er þetta margra ára samningur á milli þeirra.  James Stewart mun keppa fyrir hönd JGR bæði í supercrossi og motocrossi næstu þrjú árin en síðan mun James Stewart fara yfir í NASCAR kappaksturinn, eins og Ricky Charmichael gerði á sínum tíma.  Þetta er í það minnsta fimm ára samningur á milli James Stewart og JGR og mun liðið keppa á Yamaha út árið 2012.  Er þetta afar áhugverður samningur fyrir marga sakir og greinilegt að margir motocross ökumenn hugsa sér gott til glóðarinnar þegar kemur að halda áfram í mótorsporti því nokkrir af þeim hafa nú þegar keppt í bílakappasktri og má þar nefna Ricky Charmichael, Travis Pastrana sem er margfaldur Norður-Ameríku meistari í rallý og er nú komin í Nascar.  Meira að segja freestyle villingarnir eru komnir með puttana í keppnishald í bílaflokki og má þar nefna Gary Hart og Brian Deegan.

Það er frábært að James Stewart skuli snúa aftur "full time" og keppa bæði í motocrossi og supercrossi og verður nokkur eftirsjá af honum þegar hann hverfur á braut í NASCAR.  Verður forvitnilegt að sjá hvernig honum gengur þegar hann fer í gegnum breytingar tímabilið, þ.e. að fara af mótorhjóli yfir á tæplega 1000 hestafla tryllitæki sem bara er hægt að beygja til vinstri..:0)  Það sem hafði áhrif á þessa ákvörðun James Stewart að ganga til liðs við JGR var aðstaðan sem er víst einstök hvað þetta sport varðar ásamt þeirri staðreynd að hann fer aftur að vinna með vélvirkja sínum til margra ára, Jeremy Albrecht, en hann er nú liðsstjóri hjá JGR og stýrir öllu er kemur að keppnishaldi í motocrossi og suprcrossinu.  Jeremy Albrecht var vélvirkinn þegar James Stewart vann sinn fysta AMA Motocross titill í 450 flokknum og einnig í AMA Suprcrossinu.  Þannig að þeir þekkja hvorn annan mjög vel og verður áhugavert að sjá hvort að það hagnist þeim báðum vel að vera farnir að vinna aftur saman.  Önnur ástæða fyrir því að James Stewart gengur til liðs við JGR er að nú þegar stýrir JGR mjög sigursælu liði í NASCAR kappakstrinum.  Þannig að það er ljóst á öllu þessu að JGR hefur lagt mikið á sig til þess að fá James Stewart til liðs við sig því þeir eru að veðja á óþekktan hest hvað NASCAR ævintýrið varðar, þegar liðið getur valið úr ökumönnum.

Published in Supercross

Loksins, loksins sér maður myndband af honum James Stewart og er hann hér að prófa Yamaha YZ450F hjá JGR liðinu.  Miðað við að hann pósti þessu myndbandi, að þá einhvern veginn finnst manni það liggja í loftinu að samingsmálin sé eingöngu fromsatriði sem muni klárast á næstunni.  En maður skal ekki vera of fljótur að álykta því gamla liðið hans, L&M, hefur gengið til liðs við Jeff Ward sem er frægur í kappaksturheiminum og hefur L&M ákveðið að taka að fullu þátt í bæði AMA Supercrossi og AMA Motocrossi.  Þannig að það gæti ennþá gerst að við ættum eftir að sjá James Stewart keyra fyrir L&M sem hann átti að vera samningsbundinn út 2012 en er fyrir einhverjar sakir frír frá þeim samningi í dag.  Hvað sem því líður að þá lítur pilturinn fantavel út á hjólinu og lætur þetta líta allt of auðveldlega út.  Maður heyrir í myndbandinu, ca. eftir 1 mínútu og 20 sekúndur, að honum er greinilega skemmt á þessu hjóli og virðist vera að fíla sig.

 

Published in Supercross

Hér er töff myndband af æfingarfélögunum Jon Jon Ames og Adam Cianciarulo sem nýlega landaði stærsta samning sem fjórtán ára gutti hefur gert á þessum aldri við Pro Circuit lið Mitch Payton.  Hér spjalla strákarnir lítillega um hvaða þýðingu þetta sport hefur haft fyrir þá og í bakgrunninn má heyra móðir Jon Jon Ames sem lýsir breytingunni sem orðið hafi á honum við að byrja í þessu sporti.  Þetta myndband er hrikalega flott og horfið á hraðann á þessum töppum og þá sérstaklega Jon Jon Ames í beygjunum.  Já, maður getur bara látið sig dreyma..:0)  Adam Cianciarulo er að fara að taka þátt í Monster Energy Cup í Las Vegas um næstu helgi en þar verður keppt í 85cc flokki.

 

Published in Motocross

Loksins má sjá almennilegt myndband af Ryan Dungey á KTM hjólinu og það í góðum gæðum.  Held að þetta sé besti ökumaður sem KTM hefur náð í fyrir AMA tímabilið í langan tíma og er ég þá ekki að gera lítið úr Jeremy McGrath og Grant Langston sem kepptu eitt tímabil fyrir KTM á sínum tíma en með litlum árangri.  Stóra spurninginn verður hver mun keyra við hlið hans á komandi tímabili en það verður að vera ökumaður sem er ekki mjög ólíkur Ryan Dungey því sá ökumaður mun hjálpa til við reynsluakstur og stillingar fyrir Ryan Dungey sem verður án efa aðalnúmerið hjá KTM í henni Ameríku.  

 

Published in Supercross
Page 1 of 3