Supercross

Supercross (159)

Þetta myndband er í HD og þarna má finna öll krössin í vetur og það að þetta skuli vera 22 mínútur segir allt sem segja þarf um supercross tímabilið fyrir árið 2012 enda hafa sjaldan verið jafn mikið um meiðsl í supercrossinu á hinum síðari árum.

Nú um helgina fór fram síðasta umferðin í AMA Supercrossinu og fór hún að venju í Las Vegas.  Þetta keppnistímabil hefur verið fyrir margar sakir sögulegt og þá fyrst og fremst fyrir meiðsli margra topp ökumanna í sportinu og endaði tímabilið meira segja á því að nýkrýndur meistari Ryan Villopoto meiddist og verður ekki meira með í ár...  Já, listi yfir ökumenn sem meiðst hafa er langur og hafa margar spekúlasjónir komið fram afhverju, sumir kenna brautum um, aðrir hjólum (450 hjólum) og en aðrir harðandi samkeppni en þegar allt er á botninn hvolft að þá virðist þetta bara vera eitt af þessum tímabilum sem hefur verið skrýtið í marga staði.  Chad Reed var spurður út í þetta og hann vildi ekki meina það að um harðnandi samkeppni væri um að ræða, menn hefði alveg eins viljað vinna keppnina í fyrra eins og í ár.  Hjólin væri betri en nokkru sinni fyrr og brautirnar væru betri en tæknilegri.  Hans mat var, þetta var bara skrýtið tímabil, "nothing more, nothing less"...  Margir ökumenn reyndu þó að hjóla hálflaskaðir í keppninni um helgina og má þar meðal annars nefna Kevin Windham sem varð að hætta við þar sem hann er ekki orðin góður.  Dean Wilson ákvað að vera með þrátt fyrir að hann þarf að fara í aðgerð á öxl en þulirnir vildu meina að það væri vegna þess að samningur Dean Wilson rennur út í ár og þarf hann sárlega á nýjum samning að halda áður en sumarið er á enda.

Eitt hefur þó vakið athygli í ár og það er að mun færri einstaklingar sem voru á eigin vegum, það sem er kallaður "privater" mættu til keppni í ár en undanfarin ár og í lok tímabils var þetta orðið þannig að allir sem skráðu sig komust að í undanriðla og er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í mörg herrans ár.  Þetta þýðir að nýliðun er orðin mun minni í sportinu og að þeir sem hafa þurft að borga brúsann úr eigin vasa sá ekki tilgang í þessu lengur og hætt því við þátttöku.  Í framhaldi af því hafa vaknað upp umræður hvort að keppnirnar væru einfaldlega of margar og álagið of mikið ásamt kostnaði við þátttöku.  Einhverjir vilja fækka umferðum úr 17 í 14 í supercrossinu og einnig fækka umferðum í AMA Outdoors.  En þegar allt er á botning hvolft að þá eru það ekki ökumenn og fólkt þeim tengt sem tekur þessa ákvörðun heldur hagsmunaðilar sem t.d. halda keppnirnar því þeir munu missa spón úr sínum rassi.

En víkjum aftur að keppninni um helgina.  Ég mun ekkert fjalla um úrslit né stöður, nenni því hreinlega ekki lengur þar sem mér hefur fundist þetta tímabil ekkert sérstaklega spennandi.  En hér getur þú séð keppnina af YouTube í fínum gæðum, þannig að þú þarft ekki að ná þér í hana sem torrent skrá.  Er þetta öll keppnin, með undanriðlum og öllu.  

Að lokum vill ég þó segja þetta, "bring on the outdoors" og megi það vera meira spennandi en supercrossið.

Monday, 30 April 2012 16:34

AMA Supercross Salt Lake City

Written by

Um síðustu helgi fór fram næstsíðasta umferðin í AMA Supercrossinu.  Nenni hreinlega ekkert að skrifa um þessa keppni að svo stöddu og hlakka til að sjá ökumenn stilla sér upp fyrir fyrstu umferðina í AMA Outdoors sem fer fram í Hangtown.  Ef þú átt eftir að horfa á keppnina, að þá geturðu séð hana hér fyrir neðan í ágætis gæðum af YouTube og því óþarfi að niðurhjala því niður af netinu sem torrent skrá.  Er þetta keppnin með öllum undanriðlum ásamt aðalkeppninni í bæði 250 og 450.

Það var heldur betur gaman að fylgjast með fimmtándu umferðinni í AMA Supercrossinu sem fór fram í Seattle um helgina og get ég ekki annað en sagt, "loksins, loksins" þar sem síðustu umferðir hafa verið frekar daprar að mínu mati og hef ég varlan nennt að fjalla um þær af þeim sökum.  En þökk sé West Lites ökumönnunum, að þá var þessi keppni afar skemmtileg áhorfs.  Ef þú ert ekki búinn að horfa á hana, að þá geturðu sé hana hér fyrir neðan og er þetta öll keppnin, bæði undanriðlar og aðalkeppnin í fínum gæðum.  Þar fyrir neðan má sjá atvikin sem héldu manni vakandi í Lites flokknum.

Stigabaráttan í West Lites er engan veginn lokið og eftir úrslit dagsins, að þá er ljóst að Eli Tomac og Dean Wilson eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar til að hreppa titilinn.  Eli Tomac var ekki hrifinn af aksturslaginu og sagðist ekki vilja keyra né keppa svona en ef þetta væri það sem þurfti að gera til að vinna, að þá myndi hann gera það og sérstaklega ef þeir sem eru hans helstu keppinautar koma með það að markmiði að taka hann út.  Þar með er ljóst að síðasta keppnin verður hreint stríð á milli hans og Dean Wilson og ef þú hefur horft á atvikið hér fyrir ofan, að þá skilurðu afhverju.  Það var þó vinur minn Ryan Sipes sem vann í fyrsta sinn í ár og var það kær kominn sigur í ljósi þess að hann var að keppa í fyrsta sinn eftir mjög erfið meiðsl og hafði aðeins hjólað í tæpar þrjár vikur.  Já, loksins small þetta hjá honum og ekki skemmdi það fyrir honum að Eli Tomac og Dean Wilson enduðu að hugsa meira um hvorn annan en að sigra Ryan Sipes.  Marvin Musquin varð annar eftir að hann hafði náð fram úr Eli Tomac sem var fastur með hjólið í þriðja gír eftir samstuð sitt við Dean Wilson en hann náði því svo niður í annan en engu að síður ekkert grín að geta ekki gírað upp eða niður og verða úrslitin hjá honum því að teljast ásættanleg en hann endaði þriðji.  Dean Wilson endaði sjötti og er meiddur á öxl eftir viðskipti sín við Eli Tomac og nú er bara spurning hvernig kappinn verður fyrir næstu umferð sem fer fram í Salt Lake City og eins og ég sagði að þá verður það hrein úrslita viðureign sem við því miður munum ekki geta séð beint þar sem það verður engin útsending frá þeirri keppni.  

Í 450 flokknum sigraði Andrew Short loksins sínu fyrstu keppni í stóra flokknum og í raun var þetta hans fyrsti sigur í supercrossinu síðan 2006...  Já, ég hef sjaldan séð jafn mikla gleði hjá einum ökumanni eins og hjá honum sem var einnig að koma til baka eftir meiðsli og var búinn að missa af átta keppnum í röð.  Glæsilegt hjá kappanum og frábært að hann skyldi loksins ná að klára dæmið.  Góðvinur hans Ken Roczen varð annar og skiptust þeir á tímabili á forystu en Andrew Short hafði betur og keyrði betur þegar leið á seinni hlutann á keppninni.  Jake Weimer varð þriðji og var mjög sáttur að lenda á palli þar sem hann var að ströggla á æfingum.  Því miður að þá meiddist Ryan Villopoto á hné og varð að hætta keppni.  Er þetta í fyrsta skipti í ár sem hann nær ekki að ljúka keppni og því miður þurfti það að enda á þann hátt að hann slasaðist.  Er þetta sama hné og hann hefur verið að díla við síðustu ár og nú er spurning hvaða áhrif það hefur á hann fyrir síðustu umferð og þá einnig utanhús undirbúninginn.  Vonandi er þetta ekki alvarlegt.

Sú kjaftasaga verður síffellt háværari á netinu að komnir séu alvarlegir brestir í samstarf JGR Toyota Yamaha og James Stewart eftir aðeins nokkra mánaða samvinnu.  Sagan segir að James Stewart muni hugsanlega fara yfir til Suzuki og verði þá ökumaður númer eitt og Brett Metcalfe verði þá ökumaður númer tvö.  En sem komið er að þá er þetta bara kjaftasögur á netinu og oft eru þær óskhyggja sumra og eigi við afar lítið að styðjast en í sumum tilfellum hafa þær gefið sterkar vísbendingar um að eitthvað sé að.  JGR er lið sem vill fá til baka fyrir þann pening sem þeir leggja út fyrir og það er ekkert launungarmál að frammistaða hans hefur verið undir væntingum flestra ef ekki allra og ekki síst hans sjálfs.  Margir vilja rekja það til hjólsins, þ.e. Yamaha YZ450F og að hönnunin á því henti ekki stíl James Stewart.  Eitthvað gæti verið til í því og ómögulegt um það að segja.  En þeir sem virkilega þekkja til vilja meina að það sé ekki hjólið því það hafi sannað það margoft að það geti unnið og sé ekki hamlandi fyrir ökumann.  Hefur t.d. það skilað tveimur utanhús meistaratitlum í motocrossi í Ástralíu + einum supercrosstitli.  Steven Frossard hefur orðið ítalskur meistari á því tvö ár í röð og hefur lagt ekki minni mann en sjálfan heimsmeistarann Antonio Cairoli á hans heimavelli og við skulum ekki gleyma því þegar við skoðum þær keppnir að fyrsta árið var hann nýliði í 450 flokknum og í ár var hann að koma úr mjög erfiðum lunganmeiðslum og var lítið búinn að æfa fyrir ítalska meistaramótið.  Gautier Paulin sigraði á hjólinu í moto 2 í MXON í Frakklandi á síðasta ári, þannig að hjólið hefur sýnt að það á ekki að vera sá þáttur sem er hamlandi.  Motocross Action Magazine hefur margsagt það að vandamálið með James Stewart er ekki hjólið heldur uppsetning hans á fjöðruninni og þá sérstaklega að framan.  Hún sé svo stíf að það sé engu lagi líkt og það geri það að verkum að framendinn fari undan honum svo oft.  Ef þið horfið á keppnina í AMA supercrossinu 2006 að þá er hann að glíma við það nákvæmlega sama það ár og fór oftar á hausinn en ekki og þá var hann á Kawasaki.  En svo getur hreinlega verið að James Stewart þurfi einfaldlega að fara á annað hjól til að upplifa eins og hann sé að eignast nýtt upphaf í sportinu.  Fyrir suma virkar slíkt en aðra ekki.  T.d. er Jay Marmont í Ástralíu að ströggla eftir að hafa farið af Yamaha yfir á Kawasaki.  Hvað sem verður og hvernig sem þessi saga endar, að þá er eitt víst.  James Stewart vekur alltaf eftirtekt sama á hvaða tegund hann verður á og mín ósk er einfaldlega sú að hann klári einfaldlega svo sem eins og eitt stykki tímabil eins og t.d. AMA Outdoors í sumar, sama á hvaða tegund á hjóli hann verður.  Hundleiðinlegt ef Ryan Villopoto dóminerar AMA Outdoors eins og hann hefur gert í AMA Supercrossinu í ár og þá nenni ég ekki að horfa á þetta í sumar þarna í Ameríku.

Þar sem áhugi minn hefur dalað hressilega á supercrossinu síðustu vikur við brotthvarf ökumanna vegna meiðsla, að þá ætla ég mér ekki að fjalla neitt sérstaklega um þá keppni sem fór fram um helgina í New Orleans heldur leyfa mönnum einfaldlega að horfa á þetta með eigin augum hér fyrir neðan.  Gæðin á þessu eru fín og hreinlega ekkert að því að horfa á þetta á YouTube en keppnirnar hér fyrir neðan eru með undanriðlunum líka en ekki bara af aðalkeppninni.  Eina keppnin sem á eftir að verða spennandi ár, þ.e. af þeim sem eftir eru, er keppnin í Lites flokknum sem verður í Las Vegas en þá keppa þeir innbyrðis East og West lites flokkurinn.  Verður gaman að sjá Eli Tomac og Dean Wilson takast á við Justin Barcia og Ken Roczen.

Eins og ég hef sagt áður að þá var heildarkeppnin í 450 flokknum aldrei spennandi í ár og alltaf þegar maður taldi að eitthvað væri að fara að gerast, að þá kom bakslag í dæmið.  Hver keppandinn á fætur öðrum hefur fallið úr leik vegna meiðsla og það sem er hvað ótrúlegasta við þetta, að þeir hafa fallið út sem taldir voru hvað stöðugastir.  Já, við erum að tala um Chad Reed sem hefur eitt besta hlutfall um að komast á pall miðað við fjölda keppna sem hann hefur tekið þátt í.  Ryan Dungey sem hefur verið án meiðsla í fjölda ára og svo gamla brýnið Kevin Windham sem er búinn að fara hressilega á hausinn í vetur í tvígang í það minnsta og það síðasta var það alvarlegt að hann verður ekki meira með í ár og í raun er óvíst með framhaldið hjá kappanum.  Það eru orð á lofti um það í vefmiðlum um að þetta gæti markað endalok Kevin Windham í sportinu og hann sé að íhuga að setja skónna á þessa frægu hillu sem endalaust tekur við.  Er það algjör synd því hann var hraðastur í Houston um síðustu helgi, já hraðari en bæði James Stewart og Ryan Villopoto.  Hér er myndbandið af krassinu hjá honum um síðustu helgi en þessi gaur er algjör nagli.

Enn ein umferðin fór fram í AMA Supercrossin um helgina og fór keppnin fram í Houston, Texas.  Ef þú ert ekki búin að horfa á herlegheitinn, að þá geturðu horft á keppnina hér en þar fyrir neðan mun ég fjalla lítillega um úrslit helgarinnar.

Víkjum þá að East Lites flokknum en loksins náði Ken Roczen að landa sigri en það var ekki eins og hann hefði viljað og lýsti hann því yfir í viðtalinu að keppni lokinni.  En Justin Barcia rekst á annan ökumann sem hann var á hringa í loftinu og dettur, samt sem áður nær hann að vinna sig upp og enda á palli.  Ekki dónalegt það.  Tvímælalaust besti Lites ökumaðurinn í dag í supercrossi.

Víkjum svo að 450 flokknum en Ryan Villopoto tók þetta með glans og sigraði.  Þar með varði hann AMA Supercross titil sinn og er hann fyrsti ökumaðurinn til að gera slíkt síðan 2006 þegar Ricky Carmichael náði þeim árangri.  Það verður ekki af Ryan Villopoto tekið að hann hefur verið öryggið uppmálað og er vel að sigrinum komin.  Engu að síður að þá verð ég að segja að þetta var einhver sú jafn leiðinlegasta keppni í 450 flokknum sem ég hef horft á frá því að ég hóf að fylgjast með þessu.  Til marks um hvernig málin hafa þróast í mótaröðinni að þá er Ryan Dungey ennþá í öðru sæti til meistara þrátt fyrir að hafa setið heima í fimm umferðir.  Hversu "leim" er það eiginlega og segir allt sem segja þarf um þá spennu sem verið hefur í vetur, sem hefur eiginlega verið enginn frá því að Chad Reed datt út og síðan Ryan Dungey.  Það má segja að steininn hafi tekið úr þessu þegar að Kevin Windham, sem er þekktur fyrir stöðugleika, slasaðist í undanriðlinum og er líklegast úr leik það sem eftir lifir af supercross tímabilinu.  Satt að segja get ég ekki beðið eftir að þessu hreinlega ljúki og að AMA Outdoors taki við og vonandi verða hlutirnar aðeins meira spennandi þar.  Sem betur fer er FIM mótaröðin að hefjast um næstu helgi og mun líklegast bjarga geðheilsunni.

Það verður smá breyting um umfjöllunn minni um það sem gerðist um síðustu helgina í heimi motocross, supercross og enduro og í stað þess að fjalla um hverja keppni fyrir sig mun ég vera með stutta samantekt hér ásamt myndböndum.  En víða fór fram keppnir um síðustu helgi og mikið um að vera í mótorhjólaheiminu, alla vega hvað drullumallara varðar.  Byrjum á enduro ballið í FIM enduro mótaröðinni fór fram í Chile um helgina.  Skemmst er frá því að segja að sigurvegarar keppninnar voru að öðrum ólöstuðum ökumenn KTM sem sigruðu í flestum flokkum eftir báða dagana.  Það er samt að koma upp ökumenn frá öðrum liðum sem eru farnir að veita topp ökumönnum KTM harða keppni.  En úrslit í flokkunum urðu eftirfarandi og tek ég bara efstu þrjá í hverjum flokk:

E1 enduro heildarúrslit Chile

  1. Antoine Meo - KTM
  2. Rodrig Thain - Honda
  3. Marc Bourgeois Yamaha

E2 enduro heildarúrslit Chile

  1. Ivan Cervantes - GasGas
  2. Juha Salminen - HVA
  3. Pierre Alexandre Renet - Husaberg

E3 enduro heildarúrslit Chile

  1. Christophe Nambotin - KTM
  2. Aigar Leok - KTM
  3. David Knight - KTM

EJ Juniors heildarúrslit Chile

  1. Mathias Bellino - Husaberg
  2. Daniel McCanney - GasGas
  3. Victor Guerrero - KTM

EY Yout Cup 125cc heildarúrslit Chile

  1. Giacomo Redondi - KTM
  2. Benjamin Herrera - TM
  3. Stefano Caimi - Yamaha

Hér er svo myndband sem sýnir það helstu úr þessari keppni

Víkjum svo að supercrossinu.  Í stað þess að eyðileggja fyrir mönnum ánægju að segja úrslitin hér að þá vill ég leyfa mönnum að horfa fyrst á keppnina og svo eru úrslitin fyrir neðan.  Það er samt öll spenna horfin úr 450 flokknum þar sem fleiri og fleiri ökumenn eru fallnir frá vegna meiðsla og var t.d. James Stewart ekki með þessa helgi.  Í staðinn hafa ökumenn í Lites flokknum tekið upp þráðinn og er sá flokkur orðin jafn skemmilegur eins og hinn er óspennandi.  En best að tala 450 flokkinn ekki meira niður og leyfa mönnum bara að horfa á herlegheitinn.

Úrslit í 450 flokknum í AMA Supercrossi

  1. Ryan Villopoto - Kawasaki
  2. Justin Brayton - Honda
  3. Kevin Windham - Honda

Úrslit í East Lites flokknum í AMA Supercrossi

  1. Justin Barcia - Honda
  2. Ken Roczen - KTM
  3. Blake Wharton - Suzuki

Á Ítalíu var mikið um að vera og fór þar fram síðasta umferðin hjá þeim og til upplýsinga fyrir þá sem ekki vita að þá keppa þeir eingöngu í fjórum umferðum og þykir mér það lítið.  En keppnin var spennandi í ár og var mikil keppni á milli Steven Frossard og Antonio Cairoli og einnig blandaði David Philippaerts sér í þess baráttu en oftast voru það þeir títtnefndu, Steven Frossard og Antonio Cairoli sem voru í sérflokki.  Það er skemmst frá því að segja að Alexander Lupino varð meistari í MX2 á Husquarna og er þetta fyrsti MX titill Husquarna á nýja 250TC light hjólinu.  Ég veit ekki nöfnin á þeim sem komu þar á eftir og læt ég því þetta duga. Antonio Cairoli varð MX1 meistari á Ítalíu eftir harða baráttu við Steven Frossard en Steven Frossard lenti í einhverju gleraugnaveseni og datt við það niður í fimmta sæti og vann sig svo upp í það þriðja.  Við það voru þeir jafnir að stigum en þar sem Antonio Cairoli sigraði í síðustu umferðinni að þá taldi það og hann MX1 meistari.  Steven Frossard varð svo meistari í "Elite" flokknum þar sem þeir blanda saman 10 bestu úr MX2 og MX1.  Hér má sjá myndband frá þeim umferðum sem fór fram á Ítalíu.

Í Hollandi dómineraði Jeffrey Herlings MX2 og varð hollenskur meistari í MX2.  Ég hef ekki hugmynd hver varð annar en mig grunar að það hafi verið liðsfélagi hans einnig á KTM.  En er ekki bara best að horfa á hérlegheitinn og sjá hverjir unnu hvað en hér eru myndböndin frá Hollandi.

Monday, 19 March 2012 22:33

AMA Supercross - ellefta umferð

Written by

Ellefta umferðin fór fram í Indianapolis um síðustu helgi.  Margir vonuðust nú til að James Stewart fengi aukið sjálfstraust eftir sögulegan sigur í Daytona um síðustu helgi og myndi nú fara að velgja Ryan Villopoto undir uggum með framhaldið.  Ja, ég ætla nú ekki að röfla um þessa blessuðu keppni og leyfa þeim sem vilja að horfa á hana að gera það einfaldlega hér fyrir neðan.  Ætla þó að leyfa mér að segja að keppnin í Lites flokknum var söguleg og afar áhugaverð áhorfs.  Er hún hér í heild sinni eins og hún var sýnd á Speed TV án auglýsinga.  Gæðin eru mjög góð og ekkert af því að horfa á þetta á YouTube í dag.

Page 1 of 12