Tuesday, 21 February 2012 13:57

Chad Reed verður ekki meira með í supercrossinu í ár - meiddist illa í Dallas

Written by 

Því miður fyrir sportið og að sjálfsögðu Chad Reed og fjölskyldu að þá mun kappinn ekki vera meira með í ár hvað supercrossið varðar.  Chad Reed datt nokkuð illa í baráttu sinni við Ryan Villopoto í sjöundu umferðinni sem fór fram í Dallas um helgina.  Virtist Chad Reed vera með þetta í hendi sér og vera með mun betri línur og hraða en Ryan Villopoto en nær ekki að lenda með framdekkið á réttum stað og sökk það í jarðveginn sem olli þessum meiðslum hjá kappanum.  Braut hann rifbein, sköflung, hryggjalið og sleit krossbönd við þetta fall.  Það er því ljóst að helsti keppinautur Ryan Villopoto í ár það sem af er, er úr leik og er sportið fátækara fyrir vikið.  Chad Reed gerir ráð fyrir að skila sér í AMA Outdoors þegar það byrjar í maí og er óskandi að það standist.  Hver veit nema við eigum eftir að sjá kappann í Las Vegas í síðustu keppni ársins en hann hefur leikið þann leik áður.  Hér má sjá krassið hjá Chad Reed á aðfaranótt sunnudags.

 

Supercrossið hefur ekki reynst eins spennandi og ég hafði vonað það sem af er ári og hef ég sérstaklega orðið fyrir vonbrigðum með 450 flokkinn.  Við brotthvarf Chad Reed er ljóst að sú skoðun mun að öllum líkindum ekki breytast á næstunni því hvorki James Stewart né Ryan Dungey virðast eiga nein svör við Ryan Villopoto að svo stöddu.  East Lites flokkurinn fékk mig þó til að brosa að nýju eftir helgina og er eini flokkurinn sem hefur virkilega verið gaman að horfa á það sem af er og þá meina ég mjög gaman.

Hér er svo myndasyrpa af atvikinu.

 

 

Read 307 times Last modified on Tuesday, 21 February 2012 17:15