Sunday, 19 February 2012 18:09

Flottir feðgar í íscrossinu

Written by 

Ég ætlaði nú að vera búinn að skrifa þennan stutta pistil en þar sem ég fór nánast beint erlendis eftir keppnina í íscrossinu að þá hafði ég ekki tíma fyrr en núna.  En feðgarnir Victor Ingvi Jacobsen og Jón Kristján Jacobsen vöktu mikla athygli nyrðra í fyrstu umferð til Íslandsmeistara í íscrossi og óhætt er að segja að sjaldan virðist eplið falla langt frá eikinni.  Jón K. Jacobsen, sem er gamalreyndur keppnismaður í nánast öllu sem viðkemur hjólamennsku, gerði sér lítið fyrir og sigraði í opna flokknum eftir nokkuð harða baráttu við Jón Ásgeir Þorláksson og Gunnlaug Karlsson.  Sonur hans, Victor Ingvi Jacobsen, lét sitt ekki eftir liggja og hefur hreinlega fengið hæfileika pabba síns á ísnum í vöggugjöf því hann sigraði í unglingaflokki.  Annað sem vakti athygli hjá þeim feðgum var að þeir aka báðir Yamaha tvígengishjólum og keyrir Jón K. á Yamaha YZ250 og sonurinn Victor I. á Yamaha YZ125.  En flestir keppinautar þeirra eru að keyra á fjórgengishjólum sem hefur mun meira tog og fyrirgefa meira í akstri.  Verður gaman að sjá hvað þeir gera í næstu keppni en það er alveg ljóst að þeir munu að öllum líkindum mæta með það eitt í huga og það er að sigra í ljósi góðs árangurs í fyrstu keppninni.  Alltaf gaman að heyra í tvígengistuggum út í braut og er lyktin sem kemur að tvígengishjóli einstök í alla staði.  Óska ég þeim feðgum til hamingju með glæstan árangur í fyrstu keppni og vona að þeim vegni jafn vel í næstu keppnum.  Hér að ofan er Óliver Ö. Sverrisson með þeim feðgum á mynd en hann keyrir líka um á Yamaha tvígengishjóli, eða Yamaha YZ85.  Hér fyrir neðan er svo myndir af þeim í keppni.

Read 294 times Last modified on Sunday, 19 February 2012 18:32