Sunday, 19 February 2012 17:11

AMA Supercross - sjöunda umferð sem fór fram í Dallas

Written by 

Í nótt fór fram sjöunda umferðin í AMA Supercrossinu og fór hún fram í Dallas.  Dallas markar ákveðin þáttaskil í supercrossinu því þá fer West Lites flokkurinn í frí og East Lites hefur keppni.  Líklegast verða fáir jafn fegnir þessari hvíld í West Lites eins og Eli Tomac sem tók mjög góða dýfu í síðustu keppni og meiddist nokkuð illa á olnboga.  Nú hefur hann um sex umferðir til að jafna sig.  Margir hafa beðið spenntir eftir áttundu umferðinni og innkomu East Lites flokksins því ólíkt því sem verið hefur hér áður að þá hefur East Lites flokkurinn verið sá flokkur sem hefur verið meira spennandi síðustu ár.  Má þakka því mikið ökumönnum eins og Justin Barcia sem vekur alltaf athygli fyrir mjög svo agressíva ökulag og hversu blygðunarlaust hann notar aðra keppendur sem barta í því skyni að ná framúr.  Annað sem þykir spennandi er að sjá þýska undrabarnið Ken Roczen í baráttu við Justin Barcia og hvernig Justin Barcia myndi taka á honum þegar á hólminn væri komið.  Í 450 flokknum að þá var ljóst eftir síðustu keppni að baráttan virtist vera orðin á milli Ryan Villopoto og Chad Reed þar sem James Stewart hefur mistekist að áætlunarverk sitt að vera með þeim fremstu í öllum keppnum.  Ryan Dungey, sem er kallaður "herra stöðugleiki", hefur ekki verið með sama hraða og á Suzuki í fyrra og ekki blandað sér jafn fljótt í baráttu efstu manni í hverri keppni.  Í raun má segja að Ryan Dungey hefur verið pínu heppin yfir óförum annara og þá sérstaklega James Stewart, en hann hefur iðulega hagnast af því.  En það verður ekki af honum tekið að hann er afar skynsamur ökumaður og líklegast er hann einfaldlega að keyra sig upp á meðan hann er ennþá að læra á hjólið, þ.e. hreyfingarnar því það er munur á hjólum frá Austurríki og Japan.  En víkjum aftur að keppninni en ef þú vilt ekki vita meir, að þá skaltu ekki lesa lengra.

Lites flokkurinn:  Þessi flokkur stóð svo sannarlega undir nafni í nótt og varð maður svo sannarlega ekki yfir vonbrigðum með aksturslag og keppnisskap þessara drengja.  Keppnin var í alla staði mjög spennandi og alltaf eitthvað um að vera.  Eitthvað sem maður saknar stundum í 450 flokknum þar sem sumir ökumenn virðast "settle in" og sætta sig við sitt hlutskipti og rembast við að halda því.  Í fyrri undanriðlinum var það Ken Roczen sem sýndi mikinn hraða og kláraði riðilinn mjög sannfærandi.  Kom það mér nokkuð á óvart hversu auðveldlega hann tók Blake Baggett sem er í Pro Circuit liðinu og er þetta í fyrsta sinn sem ég sé lið Mitch Payton strita jafnmikið án þess að ná tilætluðum árangri.  Blake Baggett varð þó annar og Kyle Cunningham varð þriðji.  Lætin byrjðu þó í seinni riðlinum þegar Justin Barcia sigraði eftir skemmtilega baráttu við Blake Wharton sem þurfti að hafa sig allan við að eiga við Justin Barcia.  En Justin Barcia lætur ekki á sér hæða og allt í einu var Blake Wharton notaður sem barti fyrir ekki bara Justin Barcia, heldur missti hann bæði Darryn Durham og Malcolm Stewart fram úr sér sem notuðu samskonar taktík á hann og Justin Barcia.  Í aðalkeppninni að þá varð það Darryn Durham sem var með bestu ræsingu og á eftir honum komu þeir Justin Bogle, Justin Barcia og Ken Roczen.  Justin Barcia þurfti nokkra hringi til að komast fram úr liðsfélaga sínum Justin Bogle áður en hann hélt á eftir Darryn Durham sem var með forystu.  Ken Roczen var ekki alveg jafn fljótur að ná fram úr Justin Bogle og þurfti að hafa nokkuð fyrir því.  Hann hafði það fyrir rest en í ljósi þeirra úlniðsmeiðsla sem hann varð fyrir í kringum jólin og þreytist hann þar sem hann brotnaði fyrir utan að hann fékk "arm pump" sem líklegast má rekja til að hann hefur ekki hjólið mikið síðustu vikur og er nýlega komin aftur í gang.  Malcolm Stewart sýndi mjög agressíva takta þegar hann reyndi að fara fram úr Justin Bogle sem endaði með því að hann tók þá báða niður.  Varð Justin Bogle hreinlega brjálaður og lamdi með flatri hendinni í hjálm Malcolm Stewart og mjög líklega hefur hann slasað sig nokkuð á fingrum við það högg því hann hélt stöðugt um fingurnar eftir höggið.  Dæmið endaði því þannig að Justin Barcia sigraði eftir smá darraðadans en var samt mjög sannfærandi.  Darryn Durham varð annar eftir fantakeyrslu og ljóst er að hann er að finna sig vel á Kawasaki hjólinu undir stjórn Mitch Payton.  Ken Roczen varð þriðji og var sáttur vegna meiðsla sinna.  Blake Baggett hjá Monster Energy Kawasaki Pro Circuit og Kyle Cunningham hjá DNA Star Valli Motosports náði ekki að ljúka keppni og olli mér miklum vonbrigðum þar sem þeir voru með ágætis hraða í undanriðlunum og æfingum.  

450 flokkurinn:  Það var eiginlega allt eftir bókinni í undanriðlunum í 450 flokknum.  Ryan Villopoto sigraði nokkuð örugglega í sínum riðli og liðsfélagi hans Jake Weimer varð annar og Broc Tickle þriðji.  Þar með var Kawasaki með þrjá efstu menn í fyrsta riðli og er það í fyrsta sinn í langan tíma sem það gerist.  Í síðari riðlinum að þá varð það James Stewart sem sigraði á meðan Chad Reed þurfti að ströggla en vann sig upp í annað sætið.  Kevin Windham varð þriðji og var með eins og venjulega flottan akstur.  Fyrir aðalkeppnina var smá spenna að sjá hvort að framhald yrði á keppninni á milli Ryan Villopoto og Chad Reed frá síðustu umferð og það kom á daginn.  Jeff Alessi, bróðir Mike Alessi, náði bestri ræsingu en það stóð ekki lengi og náði Ryan Villopoto fljótlega forystu og Chad Reed elti hann eins og skugginn.  Þegar hér var komið að þá var það Chad Reed sem greinilega var við stjórn og virtist geta hægt á sér og aukið hraðann að vild og náð Ryan Villopoto hvar og hvenær sem er í brautinni.  Ryan Villopoto virtist ekki vera jafn öruggur og upp á síðkastið og gerði nokkur minniháttar mistök sem ýtti undir aukið sjálfstraust Chad Reed sem virtist vera með þetta í hendi sér hvenær hann myndi fara fram úr.  Það var á fjórða hring sem Chad Reed ákvað að sækja á hann af meiri áfergju en áður og þá kom krassið sem enginn hafði séð fyrir því Chad Reed hafði verið öryggið uppmálað allan daginn.  Chad Reed náði ekki yfir þrefalt stökk og framdekkkið sökk í sandinn sem gerði það að verkum að hann fór fram fyrir sig.  Í sjálfu sér virtist fyrsta dettann ekki vera neitt svaðaleg en fótur Chad Reed festist í hjólinu og tók hann með í annan hring og við það meiddist kappinn og varð því miður úr leik.  Þar með var eftirleikur Ryan Villopoto auðveldur því enginn var á sama hraða á hann eða sótti neitt á hann.  Chad Reed varð hreint út sagt brjálaður út í sjálfan sig og ekki er ennþá komið í ljós hversu alvarleg meiðslin eru en eitt er ljóst að þetta gæti hafa verið úrslitastund í AMA Supercrossinu því Chad Reed var sá eini sem virkilega var "on the box all the time" og var að eiga eitthvað í Ryan Villopoto.  Ryan Dungey átti lélega ræsingu og þurfti virkilega að hafa fyrir hlutunum sem hann og gerði.  Náði hann að keyra sig upp í annað sætið en framan af fannst mér hann langt frá því að vera sannfærandi en þegar á leið, að þá var hann farinn að sýna gamla takta.  Jake Weimer náði aftur á pall og endaði þriðji eftir töluverða baráttu við Ryan Dungey og getur hann ekki annað en verið sáttur miðað við gang mála í síðustu keppni.

James Stewart varð fyrir því óhappi að liðsfélagi hans, Davi Millsaps, datt fyrir framan hann í einni beygjunni og komst James Stewart hvergi framhjá honum og endaði á hjólinu hans.  Við það drap hann á hjólinu og fyrr en varði voru þeir félagarnir tveir orðnir þeir síðustu.  James Stewart keyrði sig þó upp og náði að enda í sjötta sæti og er þetta eiginlega í fyrsta sinn í vetur sem ég sé hann keyra sig upp eftir svona atburð og það eitt og sér er jákvætt því hann lék sér af því í "den".  En hann er samt langt frá því að vera eins agressívur og hann var og mun mikið vatn renna til sjávar áður en við sjáum hann í því formi sem hann var hér áður.  Hér eru svo heildar úrslit í báðum flokkum.

450 flokkurinn:
1. Ryan Villopoto (Kaw)
2. Ryan Dungey (KTM)
3. Jake Weimer (Kaw)
4. Mike Alessi (Suz)
5. Josh Hansen (Kaw)
6. James Stewart (Yam)
7. Kevin Windham (Hon)
8. Brett Metcalfe (Suz)
9. Justin Brayton (Hon)
10. Kyle Chisholm (Kaw)
11. Broc Tickle (Kaw)
12. Nick Wey (Kaw)
13. Kyle Partridge (Kaw)
14. Bobby Kiniry (Yam)
15. Davi Millsaps (Yam)
16. Matt Goerke (Suz)
17. Gavin Faith (Hon)
18. Nico Izzi (Yam)
19. Jeff Alessi (Suz)
20. Chad Reed (Hon)

East Lites flokkurinn:
1. Justin Barcia (Hon)
2. Darryn Durham (Kaw)
3. Ken Roczen (KTM)
4. Blake Wharton (Suz)
5. Phil Nicoletti (Hon)
6. Malcolm Stewart (KTM)
7. Jake Canada (Hon)
8. PJ Larsen (KTM)
9. Cole Thompson (Hon)
10. Lance Vincent (KTM)
11. Alex Martin (Hon)
12. Hunter Hewitt (Suz)
13. Austin Politelli (Hon)
14. Justin Bogle (Hon)
15. Blake Baggett (Kaw)
16. Les Smith (KTM)
17. Angelo Pellegrini (Suz)
18. Sean Hackley (KTM)
19. Matt Lemoine (Kaw)
20. Kyle Cunningham (Yam)

Read 334 times Last modified on Tuesday, 21 February 2012 17:17