Friday, 10 February 2012 21:47

Enduro- og motocrossbrautin í Þorlákshöfn klárar og opna á morgun

Written by 

Loksins, loksins er hægt að fara að hjóla í Þorlákshöfn en endurobrautin er víst komin í gagnið og er fær.  Haukur #10 ráðleggur þó ökumönnum að fylgja þeim slóðum/línum sem komnar eru því það sé rétta brautin í stað þess að æða um út allt.  Það sem meira er, það er hægt að fara í motocrossbrautina líka en Siggi gerði sér lítið fyrir og mokaði brautina þar sem þurfti og er því hægt að hjóla hringinn.  Menn þurfa þó að fara gætilega sums staðar því þar sem verstu skaflarnir voru eftir er bara skóflufar eftir traktorinn í gegnum skaflinn og ekki full breidd.  Klúbburinn í Þorlákshöfn vildi koma þeim skilaboðum áleiðis til ökumanna að muna eftir miðum í brautin og kaupa miða í brautina í ÞORLÁKSHÖFN en ekki Bolaöldu.  En brögð hafa verið á því að menn hafa flaggað miðum frá VÍK af Bolaöldu svæðinu í Þorlákshöfn og ER ÞAÐ EKKI GILDUR MIÐI.  Þeir sem koma með slíka miða geta átt hættu á að verða vísað úr braut.  Hægt er að kaupa miða hjá Olís í Norðlingaholti.  Nú er bara að koma sér í hjólagírinn og drífa sig í Þorlákshöfn. 

Read 301 times Last modified on Friday, 10 February 2012 21:59