Thursday, 02 February 2012 13:25

Viðtal við Trey Canard eftir slysið - kappinn lítur furðu vel út

Written by 

Ég verð að segja að mér var mjög brugðið þegar ég sá slysið sem Trey Canard og Ryan Morais urðu fyrir í þriðju umferðinni í AMA Supercrossinu.  Þess vegna var ég ennþá meira hissa þegar ég sé viðtalið hér við Trey Canard sem var tekið í gær hversu vel kappinn lítur út miðað við aðstæður.  Það er ekki að sjá á kappanum að hann hafi fengið 200 kg. beint ofan á sig á 40-50 km/klst. og satt að segja að ef maður vissi ekki betur að þá myndi maður halda að pilturinn hefði hreinlega meiðst lítillega og gæti ekki keppt af þeim sökum.  Trey Canard slasaðist nokkuð illa á baki og þurfti að fara í aðgerð á þremur hryggjaliðum.  Trey Canard lítur mun betur út en Ryan Morais sem braut illa í sér kjálkann, skemmdi þrjá hryggjaliði í baki og hálsi.  Munurinn liggur kannski í því að Trey Canard var með hálskraga en Ryan Morais ekki...  Flestir sérfræðingar sem skoðað hafa myndina hér að ofan af þessu slysi er sammála um það að það sem bjargar Trey Canard frá hálsmeiðslum er kraginn þrátt fyrir að höfuðið kýlist niður.  Mænan hjá Trey Canard er ósködduð og lítur út fyrir að kappinn muni geta haldið áfram að hjóla í framtíðinni þó svo að óljóst er með framtíðina hjá honum hvað keppnishald varðar og verður tíminn að leiða í ljós hversu vel honum gengur að vinna sig til baka í eina erfiðustu keppnisíþrótt í heimi.  Það er umhugsunarefni að ekki eru allir ökumenn á því að nota kraga en það er alveg ljóst að ávinningurinn er mun meiri en tapið eins og sést best á þessu slysi.  Mér finnst alveg ástæða til þess að skoða það hvort þetta eigi ekki að vera skyldu notkun á kraganum við keppni hér heima.   Hér má sjá viðtalið við Trey Canard tekið í gær.

Read 324 times Last modified on Thursday, 02 February 2012 13:39