Wednesday, 01 February 2012 10:06

Stærsta strandakeppni heims, Le Touquet, fer fram næstu helgi

Written by 

Um næstu helgi fer fram stærsta keppni sinnar tegundar í þolakstri í heiminum þar sem yfir eittþúsund ökumenn munu ræsa á langri strönd sem kallast Pas-de-Calais í Frakkalandi.  Þetta er svona Klausturskeppni þeirra fransmanna fyrir utan að hún fer öll fram í sandi sem getur verið mjög lýjandi og tekur á.  Þetta er sex tíma keppni og árlega fylgast með yfir tvöhundruð og fimmtíuþúsund áhorfendur (250.000) með herlegheitunum á ströndinni og Motors TV sýnir beint frá þessum ævintýralega viðburði.  Þessi keppni hófst árið 1975 og er því komin nokkur hefð á hana.  Motocrosskappinn Steve Ramon sigraði í þessari keppni í fyrra en hann verður ekki með í ár þar sem hann er að ná sér eftir alvarleg hálsmeiðsl.  Nokkrir af þekktum motocrossköppum hafa skráð sig til leiks og verður gaman að sjá hvernig þeim vegnar og hvort þeir fari í fótspor Steve Ramon með sigri í ár.  Fyrir neðan má sjá þrjú myndbönd frá þessum viðburði og er ævintýralegt að sjá þegar ræst er og yfir eittþúsund hjól taka af stað í einu.

 

Read 240 times Last modified on Wednesday, 01 February 2012 10:21