Friday, 27 January 2012 20:54

Sá sem getur gert tilkall til þess að vera kallaður hraðasti motocrossmaður heims í dag...

Skrifað af 

Því miður James Stewart, þú ert og varst flottur en þessi hefur tekið við sem nýji kóngurinn og getur með sanni sagt að hann sé hraðasti ökumaðurinn í bransanum í dag.  Ryan Villpoto hefur sýnt það og sannað í fyrstu keppnum ársins að það virðist ekki skipta máli þó hann falli við, og enginn skælir á fullu um að hann eigi að skipta um tegund ef hann dettur, því það stafar einfaldlega að því að hann vinnur sig upp á meðan James Stewart hættir.  Þetta gerði James Stewart hér áður fyrr en ég fullyrði að fjarvera hans frá motocrossinu er að valda því að hann er ekki lengur sá James Stewart sem við þekktum og dáðum.  Sjáið bara Chad Reed...  Búinn að taka þátt í AMA Outdoors síðan 2009 og hefur sjaldan verið betri þó svo að samkeppnin er ótrúlega hörð.  En það verður ekki af Ryan Villopoto tekið að ég tel hann vera þann hraðasta í dag.  

 

 

lesið 282 sinnum