Fín mæting var á Leirtjörnina í gær og voru aðstæður mjög fínar til aksturs á ís. Voru þarna um þrjátíu manns þegar mest var og gaman að fylgjast með hvernig menn komust í "race fíling". Ísinn er samt ekki þykkur og voru ökumenn komnir sums staðar í gegn. Þannig að ef menn ætla að fara á önnur vötn eins og t.d. Hafravatn, að þá bið ég menn um að fara mjög varlega og kanna málið vel áður en haldið er út á ísinn því það er ekkert grín að missa hjól niður í vök á vatni eins og Hafravatni. Af þeim svæðum sem menn hafa verið að hjóla á í nágrenni höfuðborgarinnar, að þá held ég að þetta sé skásti staðurinn í dag þar sem á tjörninni eru hvað minnstu snjóalög miðað við á öðrum vötnum. Nú vonar maður bara að mætingin um helgina endurspegli sér í góða mætingu í fyrsta Íslandsmeistaramótið í íscrossi sem hefst næstu helgi. Ekki er ennþá búið að opna fyrir skráningu og hlýtur það að fara að gerast á næstunni. Ég tók engar myndir í gær þar sem ég var of upptekinn að þykjast vera að hjóla eitthvað sjálfur ásamt því að þegar ég loksins hætti að þá fékk svo skelfilegt tak í bakið að ég varð ekki til frekari afreka þann daginn.