Þá er þriðja umferðin í AMA Supercrossinu lokið og er fátt um annað talað í þessu sporti í dag en keppnina sem fór fram á laugardaginn. Er það fyrsta og fremst vegna þess skelfilegs atburðar sem átti sér stað í upphafi í aðalkeppninni í fyrsta hring þar sem tveir ökumenn lenda það illa saman að þeir liggja báðir meðvitunarlausir eftir og stórslasaðir báðir tveir. Já, þetta var eiginlega sorgardagur frekar en að hægt væri að horfa á afrek þess aðila sem í raun stóð uppi sem sigurvegari dagsins. Ef þú vilt ekki vita úrslitin eða hverjir áttu í hlut, þó svo að það sé líklegast mjög erfitt vegna pósta á fésinu og umræðum, að þá skaltu ekki lesa lengra heldur horfa á aðalkeppnina hér fyrir neðan. Þú getur líka sótt torrent skránna með að smella hér. Lites flokkurinn er ekki komið á netið og verður ekki sýnt frá þeirri keppni fyrr en í kvöld í USA, þannig að það má búast við að Lites flokkurinn verði aðgengilegur annað kvöld á netinu.
En víkjum að Lites flokknum frá því um helgina. Í fyrri undanriðlinum að þá var það Ryan Sipes sem sýndi á sér klærnar loksins og sigraði. Annar varð Dean Wilson og þriðji varð Zach Osborne sem hefur verið að koma á óvart í supercrossinu þar sem spekúlantar bjuggust ekki við neinu af honum í ljósi þess að hann er staðsettur í Bretlandi og keppir í FIM mótaröðinni. Þannig að innkoma hans hefur komið skemmtilega á óvart. Í seinni undanriðlinum varð það Martin Davalos sem sigraði, Eli Tomac varð annar og Marvin Musquin hélt uppteknum hætti og skilaði sér á meðal þriggja efstu manna. Í aðalkeppninni að þá byrjaði Martin Davalos með látum og náði holuskotinu en hélt því ekki lengi og skaust Eli Tomac framúr strax á fyrsta hring. Það er skemmst frá því að segja að Eli Tomac sigraði keppnina nokkuð auðveldlega og sannfærandi. Dean Wilson var einungis með miðlungs ræsingu og þurfti að hafa fyrir hlutunum. Hann náði með miklu harðfylgi að koma sér upp í annað sætið eftir baráttu við Zach Osborne sem endaði þriðji. Því miður að þá hlekktist Marvin Musquin á og varð hann að hætta keppni. Veit ekki hvort hann hafi meiðs eða hvort að það hafi einfaldlega verið hjólið sem laskaðist eitthvað við fallið. Eli Tomac leiðir nú stigakeppnina til meistara en Dean Wilson er einungis stigi á eftir og stefnir í spennandi keppni í ár um hvor verði meistari. Tyle Rattray er ekki langt undan og munar tveimur stigum á honum og efsta manni.
Í 450 flokknum, að þá hélt James Stewart uppteknum hætti og sigraði nokkuð örugglega í sínum riðli. Ótrúlegt hvernig hann dóminerar undanriðlana en nær ekki að endurspegla þá velgengni yfir í aðalkeppnina sem bendir til þess að hjólið er ekki vandamálið heldur sé eitthvað sálrænt að plaga drenginn. Eða þá það að hann sé einfaldlega ekki í nógu góðu formi og þoli ekki meira en 8 hringi en sem komið er. Annar í fyrri riðlinum varð Mike Alessi og þriðji varð Andrew Short. Í síðari riðlinum varð það Ryan Villopoto sem sigraði sannfærandi en liðsfélagi hans Jake Weimer varð annar. Jake Weimer er allur að koma til og er farin að skila betri árangri en í fyrra. Þriðji varð svo Ryan Dungey, sigurvegarinn frá síðustu keppni.
En það varð einmitt í aðalkeppninni í þessum flokki sem hið skelfilega slys átti sér stað þegar að Trey Canard lenti í þeirri stöðu að fá umbúðir utan af bagga í afturdekkið nánast í byrjun og fyrir vikið gat hann ekki stokkið þrefaldan rythma. Það er við svona aðstæður þegar ökumaður nær ekki að hreinsa stökk eins og hinir sem slysin gerast og það gerðist svo sannarlega þegar Ryan Morais lenti ofan á Trey Canard og báðir ökumann lágu eftir í valnum meðvitunarlausir og stórslasaðir. Eitthvað fannst mér starfsmenn vera seinnir til að stökkva af stað til að aðstoða en kannski liggur það í því að margoft hafa ökumenn legið í valnum en staðið upp aftur og haldið áfram keppni. En þetta var svo skelfilegt að það hefði ekki átt að fara framhjá neinum sem fylgdist með að þarna var stórslys í uppsiglingu. Keppnin var rauð flögguð á meðan hugað var að þeim tveimur og síðan var endurræst hátt í hálftíma seinna. Jake Weimer náði fantræsingu en James Stewart, sem hafði verið með miðlungs ræsingu í fyrra skiptið náði nú fínni ræsingu og Chad Reed var þar næstur á eftir. Ryan Villopoto lenti fljótlega í veseni og datt og var orðin lang síðastur. En það virðist ekki skipta hann orðið máli hvort hann detti eða ekki því hann nær alltaf að vinna sig upp, eitthvað sem bara Ricky Charmichael, James Stewart og Chad Reed gerði í "den" en nú virðist Ryan Villopoto vera sá eini sem hefur fulla trú á því að hann geti unnið upp forskot annara ef hann fellur við. Fljótlega náði Chad Reed forystu eftir hreint út sagt frábæran akstur og James Stewart varð orðin annar eftir að hafa sett "block pass" á Jake Weimer sem við það féll við og datt niður um mörg sæti. James Stewart átti svo eftir að falla við, eins og svo oft áður, og var það einstklega klaufalegt þar sem hann fer of hátt upp í bartann og hægir of mikið á sér og við það missir jafnvægið. Ein aulalegasta detta ársins í supercrossinu. Hann náði þó að halda þriðja sætin sem hann hélt allt til loka og loksins skilaði hann sér á pall í ár í AMA Supercrossinu. Eitthvað sem spekúlantar höfðu ekki séð fyrir, því flestir reiknuðu með að hann væri að berjast um fyrsta til annað sætið allan tímann en ekki við það komast á pall. Chad Reed sigraði eftir hreint út sagt frábæran akstur og verður ekki af karlinum tekið að hann var með mjög góðar línur þetta kvöld. Ryan Dungey náði ekki að fylgja eftir sigrinum frá því um síðustu helgi og varð að sætta sig við annað sætið. Ryan Villopoto varð hins vegar fjórði og verður ekki annað hægt en að dást að pilti fyrir éljusemi en hann hefur dottið í tvígang núna í síðustu tveimur keppnum, en það eru einungis þrjár búnar. Þannig að það eru fleiri ökumenn að detta en bara James Stewart.
Hér má svo sjá hið skelfilega atvik þegar Trey Canard fær Ryan Morais ofan á sig. Trey Canard er með brákaða liði í baki og fór í aðgerð í nótt. Ryan Morais fór mun verr út úr þessu og missti tennur, kjálkabrotnaði illa og brákaði þrjá liði í hálsi. Verður hann ekkert meira með af skiljanlegum ástæðum og nú er spurning hvernig Trey Canard vinnur úr þessu. Það á ekki af Trey Canard að ganga því hann er nýkomin til baka eftir erfið meiðsli og var ekki búinn að ná sér að fullu.