Dágóður hópur manna og meyja var mætt á Hvaleyravatn í dag til að hjóla og byrjaði dagurinn ágætlega. Færið var allt í lagi en nokkur mikill snjór var yfir Hvaleyravatni. Fljótlega kárnaði gamanið og lögreglan mætti á svæðið og vísaði öllum aðilum af vatninu. Fjöldi kvartana hafði borist frá öðru útivistafólki, flokkur sem við hjólamenn tilheyrum víst ekki að þeirra mati, og eftir ítrekaðar hringingar frá göngufólki að þá mætti lögreglan á svæðið og bað okkur vinsamlegast um að yfirgefa svæðið sem við og gerðum. Enda lögreglan ekkert annað en kurteis í okkar garð og óþarfi að vera með vesen við hana. Í staðinn fór góður hópur af ökumönnum sem var á Hvaleyravatni yfir á Leirtjörn við Úlfarsfell til að kanna aðstæður þar og viti menn, það voru topp aðstæður á Leirstjörninni í dag. Mun minna af snjó og gripið mjög gott, enda mynduðust "race" um alla braut eftir því sem fleiri drifu sig út á ísinn. Það sem skipti þó mestu máli að við fengum að vera í friði þarna og meira að segja kom annað gangandi fólk sem var að koma ofan af Úlfarsfelli og sýndi þessu nokkurn áhuga og spurði hvort um skipulega ferð væri af okkar hálfu á tjörnina. Ekki þarf að orðlengja það neitt lengra en að allir þeir sem höfðu fyrir því að bregða sér á Leirtjörnina eftir stutt gaman á Hvaleyravatni skemmtu sér konunglega og stigu ánægðir af fákum sínum eftir daginn.
Við ætlum að mæta á Leirtjörnina á morgun upp úr hádegi til að halda áfram upphitun fyrir Íslandsmeistaramótið í íscrossi ásamt því að hafa gaman af því að taka á mótorfákum við góðar aðstæður. Það er mjög góð spá fyrir morgundaginn, blankalogn og um -4°C. Fyrir þá sem hafa áhuga að sjá myndir frá deginum í dag á Leirtjörninni að þá er hægt að nálgast þær með að smella hér. Fyrir þá sem mættu að þá vill ég og mín fjölskylda þakka fyrir skemmtilegan dag og sjáumst vonandi hress á morgun á Leirtjörninni.
Við erum þó með eina ábendingu til félaga okkar og það er að hjóla bara ekki hvar sem er út á ísinn. Það er óþarfi að æða yfir plöntur sem standa upp úr snjónum til þess að stytta sér leið á ísinn og nóg að fara aðeins til hliðar þar sem malarkaflinn er út á tjörnina og þá virðum við umhverfið í leiðinni.