Mika Ahola FIM meistari í enduro er látinn. Lést kappinn af meiðslum eftir æfingarslys á Spáni. Mika Ahola hafði nýlega tilkynnt að hann ætlaði að hætta að keppa og fara að skoða hvað heimurinn hefði upp á annað að bjóða en mótorhjól. Þetta er afar sorglegt og mikill missir fyrir fjölskyldu hans sem og mótorhjólaheiminn. Mika Ahola hefur keppt fyrir Honda síðustu ár en en hefur hjólað fyrir Husquarna, TM o.fl. Ja, hvað getur maður sagt en þetta minnir mann óneitanlega á fráfall Nathan Woods sem féll alls ekki fyrir löngu og það sem er sorlegast við þetta allt saman, er að hann var hættur keppni og ætlaði að fara að sinna fjölskyldulífinu. R.I.P!
