Fjölskyldan brá sér á Hvaleyravatn í dag eftir að hafa séð myndirnar af því frá í gær á fésbókinni. Kom það okkur verulega á óvart hversu góðar aðstæður voru þarna í dag í ljósi leysinga síðustu daga. Ekkert vatn var ofan á ísnum og var gripið eins og best var á kosið. Ekki voru margir að hjóla enda sjálfsagt flestir sem hafa búist við að allt væri á floti en svo var aldeilis ekki. Miðað við spánna næstu daga að þá lítur út fyrir að vatnið verði í mjög góðu standi næstu daga. Brá mér út með myndavélina en ekki voru margar myndir teknar þar sem ég hef ekki hlaðið rafhlöðuna í langan tíma og kláraðist hún fljótlega eftir að við komum. Afraksturinn má þó sjá með að smella hér.