Thursday, 05 January 2012 13:50

Steffi Laier setur FIM mótaröðina á "hold" og ætlar að fókusa á aðrar keppnir + X-Games

Written by 

Það kom nokkuð á óvart að Steffi Laier hefur tilkynnt að hún ætli að draga sig út úr FIM WMX keppninni fyrir árið 2012 en motocross kvenna hefur farið halloka í FIM mótaröðinni eftir að það var keyrt með MX3 en ekki lengur með MX1 og MX2.  Sú ákvörðun keppnishaldara og sú ákvörðun helstu keppinauta hennar, Livia Lancelot og Ashely Fiolek, að draga sig út úr FIM mótaröðinni af þessum sökum hefur gert það að verkum að Steffi Laier hefur misst áhugann á að keppa í FIM mótaröðinni.  Í staðinn ætlar hún að skella sér í keppni í MX1 í Bretlandi og Þýskalandi ásamt því að taka þátt í einhverjum keppnum í Hollandi.  Aðalfókus hennar verður þót að taka þátt í næstu X-Games.  Þar með er Steffi Laier ekki lengur "official" ökumaður Red Bull KTM en hún hefur verið á KTM í 15 ár.  Spurningin er hvert þetta stefnir með FIM WMX keppnishaldið á næstu árum þar sem fleiri og fleiri topp ökumenn í þeim flokki hafa hætt við þátttöku.

Read 191 times