Thursday, 05 January 2012 13:28

Antonio Cairoli verður áfram á 350 og KTM kynnir nýtt SX450-F hjól fyrir árið 2012

Written by 

Stefan Everst upplýsti það í viðtali núna um daginn að margfaldur heimsmeistari í motocrossi og sigurvegari síðust þriggja ára Antonio Cairoli yrði áfram á KTM SX350-F hjólinu og færi ekki yfir á 450 eins og Ryan Dungey hefur valið að keyra í AMA mótaröðinni.  Í viðtali sem má sjá hér fyrir neðan þar sem rennt er yfir síðasta tímabil hjá Tony Cairoli að þá talar hann um að hjólið hafi verið bætt mikið síðan það kom fyrst á markað og miðað við þróunina á því, að þá búist hann við því að það verði nánast fullkomið fyrir árið 2012.  

Nú í dag kynnti KTM svo á markað nýtt KTM SX450-F factory hjól sem er samskonar og Ryan Dungey keyrir á í AMA mótaröðinni og er það fyrsta 450 hjólið frá KTM í motocrosslínunni sem er með beinni innspýtingu.  Einnig hefur hjólið fengið nýja grind og plastið hefur fengið smá yfirhalningu.

Read 249 times