Já, sumir eru einfaldlega kaldari en aðrir og þessi uppfylla þann flokk ágætlega. En þetta er heimsmeistara tilraun þeirra Levi Lavaellee og Robbie Maddison sem fór fram í gær rétt fyrir miðnæti og Red Bull stóð fyrir, en Red Bull hefur staðið fyrir svona viðburðum síðustu þrjú ár. Levi Lavelle ætlaði að framkvæma þetta stökk einn og sér um áramótin 2010 en slasaðist mjög illa. Þannig að það má segja að þessi drengir séu með "big balls". Aðstæður til stökksins voru ekki upp á það besta og var skyggnið að stríða þeim. Í stuttu máli að þá náðu þessir tveir markmiði sínu og settu nýtt heimsmet. Hér má sjá stökkið en þetta var sýnt beint á ESPN og sáum við hjónin þetta í nótt.