Friday, 30 December 2011 20:16

Ríkisstjórn Belga styrkir MXON 2012 sem fer fram í Lommel

Written by 

 

Þetta kallar maður að gera hlutina með stæl, en ríkisstjórn Belgíu tók þá ákvörðun að styrkja MXON keppnina sem á að fara fram í Lommel í september 2012 um litlar 250.000 EUR sem gera um 40 milljónir króna á núverandi gengi.  Þetta er til fyrirmyndar og vonandi búið að að gefa þann tón sem gefa skal þegar kemur að þessari keppni því þetta er jú heimsmeistaramót motorcrossins og má áætla að þarna verði ekki færr en um 60-70 þúsund áhorfendur fyrir utan lið og aðstandendur.  Mikil hefð er fyrir motocrossi í Belgíu og er þetta eitt af fáum ríkjum í Evrópu þar sem ökumaður í motocrossi hefur verið kosin íþróttamaður ársins í því landi.  Finnar hafa einnig verið duglegir að viðurkenna akstursíþróttir með góðu brautargengi.  Með þessum styrk má gera ráð fyrir að keppnin í Lommel verði ein sú glæsilegasta sem menn eiga eftir að sjá, alla vega til dagsins í dag.

Read 234 times