Thursday, 29 December 2011 22:08

Nýtt útlit á MotoSport.is og virkt myndaalbúm

Written by 

Það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum en það er komið nýtt útlit á síðuna, þ.e. vefinn MotoSport.is og á meðan á þessari vinnu stóð mátti ég ekki setja neitt nýtt efni inn.  Því hefur ekki verið mikið um uppfærslur á vefnum né það að ég hafi sett inn myndir sem ég hef tekið upp á síðkastið.  Er þetta þriðja útlitið frá því að ég opnaði þessa síðu og jafnframt var gerð uppfærsla á vefkerfinu, þannig að það sé "up to date".  En fyrir einhverjum mánuðum síðan, að þá komu upp hnökrar í myndakerfinu ásamt því að það var vesen með "slideshow-ið" í hausnum á síðunni og birtist það ekki.  Við það var ekki unað og því leitaði ég til Bergs Kristinssonar sem hefur haft með útlit síðunnar að gera nánast frá byrjun og lagaði hann hana til fyrir mig eina ferðina enn.  Vonandi munu ekki komu upp þeir hnökrar sem vera farnir að há útliti númer 2.

Read 214 times