Nú er að hefjast hin árlega keppni í Dakar rallýinu og á hún að hefjast í byrjun janúar. Þessi keppni reynir mikið á þolrif keppenda og því miður, að þá verða iðulega það alvarleg slys í þessari keppni að menn láta lífið. Eurosport mun sýna beint frá þessari keppni eftir bestu getu og einnig veður hægt að fylgjast með keppendum á netinu. Ökumenn KTM í hjólaflokki verða að teljast sigurstranglegri þar sem þeir hafa verið á toppnum síðustu ár. Hér má sjá einn ökumann þeirra, Cyril Despres, í undirbúningi sínum fyrir keppnina en hann endaði annar í ár en vann árið þar á undan.